Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 37
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Ofurtölva IBM, Blue Gene/L, sló á dögunum eigið
hraðamet og getur nú gert 280,6 billjón útreikninga
á sekúndu. Afköst hennar hafa fjórfaldast á þeim
tólf mánuðum sem hún hefur verið í smíðum. Það
myndi taka venjulega manneskju með vasatölvu
áratugi að gera sömu útreikninga og ofurtölvan á
einni sekúndu. Sérfræðingar gefa út lista á hálfs
árs fresti yfir hraðskreiðustu ofurtölvurnar og lenti
Blue Gene/L í efsta sætinu í júní síðastliðnum.
Tölvan var smíðuð fyrir rannsóknamiðstöð
bandaríska orkumálaráðuneytisins. Þegar hún
verður fullsmíðuð er áætlað að hún og ofurtölvan
ASC Purple sameini krafta sína. Eiga þær meðal
annars að standa vörð um kjarnorkuvaraforða
Bandaríkjanna. Ofurtölvur á borð við þessar þjóna
sífellt meiri tilgangi við að leysa flókin verkefni.
Gífurlegur vinnsluhraði og nákvæmni þeirra hefur
meðal annars nýst við að bæta nákvæmni veður-
spáa, hönnun nýrra bíla og að gera nákvæmari
sjúkdómsgreiningar. - hhs
Ofurtölva slær eigið hraðamet
Blue Gene gerir 280,6 billjón reikniaðgerðir á sekúndu.
OFURTÖLVAN BLUE GENE/L FRÁ IBM Venjuleg manneskja með vasareikni þyrfti áratugi til að reikna út það sem tölvan gerir á sekúndu.
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Ítalskir vísindamenn hafa nú klónað fjórtán
grísi. Þetta eru sömu aðilar og klónuðu hest í
fyrsta sinn sumarið 2003. Að sögn vísindamann-
anna sem að rannsókninni stóðu á að nota grísina
í rannsóknir á líffæraflutningum. Það er nefnilega
víst svo að svín eru líffærafræðilega og lífeðlis-
fræðilega svipuð mönnum.
Klónun grísanna var hluti af stofnfrumurann-
sóknum á klónuðum dýrum sem Evrópusamband-
ið stendur fyrir. Vísindamenn hafa nú klónað
sauðfé, mýs, nautgripi, geitur, kanínur ketti, svín,
múldýr og hunda. - hhs
Fjórtán grísir klónaðir
Meg Whitman, framkvæmda-
stjóri eBay, er áhrifamesta
kaupsýslukona heims ef marka
má lista sem tímaritið Fortune
setti saman nýverið. Þetta er í
annað sinn sem Whitman hlýtur
tilnefninguna. Þrátt fyrir
að hlutabréf í eBay hafi
lækkað á árinu stendur
eBay enn styrkum fótum
undir stjórn Whitman að
mati Fortune.
Í öðru sæti listans
situr Anna Mucahy,
stjórnarformaður og
f r a m k v æ m d a s t j ó r i
Xerox, og í því þriðja
Brenda Barnes, for-
stjóri Sara Lee. Í fjórða
sætinu er fjölmiðlakon-
an Oprah Winfrey,
s t j ó r n a r f o r m a ð u r
Harpo, og í því fimmta Andrea
Jung, stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri Avon. Carly Fiona,
fyrrum framkvæmdastjóri Hew-
lett Packard, dettur út af listan-
um en hún var þar í efsta sæti í
fjölda ára. Martha
Stewart, sem er ný-
verið komin úr fang-
elsi fyrir að hafa logið
til um sölu á hluta-
bréfum sínum, kemur
aftur inn og situr í 21.
sæti listans.
Fortune skipar í
sæti listans eftir stærð
og mikilvægi fyrir-
tækisins, persónuleg-
um ítökum, framaferl-
inum og menningar- og
samfélagslegum áhrif-
um kvennanna. - hhs
Framkvæmdastýra
eBay áhrifamest
Fortune birtir lista sinn yfir áhrifamestu
kaupsýslukonur heims.
MEG WHITMAN ER
ÁHRIFAMIKIL KONA
Tímaritið Fortune hefur
valið framkvæmdastýru
eBay áhrifamestu kaup-
sýslukonu heims.
08-09 Markadur lesið 1.11.2005 15:15 Page 3