Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 29
Aðalfundur LÍÚ
Tapa á
háu gengi
Sjávarútvegur
Sátt í
sjónmáli
Kauphöllin í Tókýó
Viðskipti
stöðvuð
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 2. nóvember 2005 – 31. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
FL Group stærst | FL Group er
nú stærsti hluthafinn í easyJet
með 16,2 prósenta hlut. Eignar-
hlutur félagsins er orðinn meira
en tuttugu milljarða króna virði.
Undir væntingum | Hagnaður
Össurar var 52 milljónir króna á
þriðja ársfjórðungi. Á sama tíma í
fyrra nam hagnaðurinn 338 millj-
ónum.
Kaupþing áminnt | Sænska fjár-
málaeftirlitið áminnti Kaupþing
banka í Svíþjóð fyrir meðferð á
eignarhlutum í tveimur sjóðum
bankans. Málið varðar meðferð
eignarhluta sjóðanna í fyrirtæk-
inu Airsonett AB.
Síminn afskráður | 162 af 1252
hluthöfum Símans nýttu sér yfir-
tökutilboð sem nýir eigendur Sím-
ans gerðu þeim.
Nýr markaður | Kauphöll Íslands
opnar nýjan hlutabréfamarkað í
desember. Nýi markaðurinn er
sérstaklega fyrir minni fyrirtæki
og frumkvöðlafyrirtæki.
Stærstir í Evrópu | Íslenskir að-
ilar eru orðnir einu stærstu sölu-
aðilar Apple-vara í Evrópu eftir
að hafa keypt 38 prósent í norska
félaginu Office Line.
66 milljarðar | Hagnaður við-
skiptabankanna þriggja, Íslands-
banka, KB banka og Landsbank-
ans, á fyrstu níu mánuðum ársins
nam um 66 milljörðum króna eftir
skatta.
AB selur í Össuri | Sænski fjár-
festingasjóðurinn AB Industri-
värden hefur selt allt hlutafé sitt í
Össuri hf.
Stjórnendur hagnast | Sjö
stjórnendur hjá KB banka hafa
ákveðið að nýta sér kauprétt á
hlutum í bankanum. Markaðsvirði
hlutanna er um 929 milljónir
króna.
Opna Taco Bell
í stað Wendy’s
Eigendur vilja Taco Bell á
höfuðborgarsvæðið.
Fyrsti Taco Bell-staðurinn
verður opnaður hér á landi eftir
tíu daga á svæði varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli þar sem áður
var hinn þekkti Wendy’s-ham-
borgastaður. Taco Bell er með
þekktustu skyndibitakeðjum
heims og selur mexíkóskan
skyndibita. Það eru sömu eigend-
ur og að kjúklingastaðnum Kent-
ucky Fried Chicken sem koma að
rekstri Taco Bell.
„Við höfum auðvitað áhuga á
því að opna á höfuðborgarsvæð-
inu í framhaldinu. Við höfum
bæði staði í Mosfellsbæ og í Hafn-
arfirði sem gætu hentað undir
Taco Bell en þetta er tilrauna-
starfsemi og við verðum að sjá,“
segir Helgi Vilhjálmsson, eigandi
Kentucky, oft kenndur við Góu.
Hann segir að beðið sé með
eftirvæntingu eftir staðnum.
„Þeir eru að verða mjög hungrað-
ir þarna suður frá.“
Fyrsti Taco Bell-staðurinn var
opnaður í Bandaríkjunum árið
1962 og um 6.500 Taco Bell-staðir
eru þar í landi en aðeins um 280
utan Bandaríkjanna. Áttatíu
prósent af stöðunum eru rekinr
sjálfstætt samkvæmt viðskipta-
sérleyfum frá Taco Bell. - hb
Björgvin Guðmundsson
skrifar
„Í byrjun síðustu viku eftir að ný stjórn var kjörin
í Icelandic Group áttum við samtöl um samstarf
þessara fyrirtækja. Síðan unnum við nótt sem nýt-
an dag til að ná þessum samningum,“ segir Gunn-
laugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður
Icelandic Group, sem hefur keypt þýskt fyrirtæki
sem framleiðir frystar sjávarafurðir.
Þýska fyrirtækið heitir Pickenpack – Hussman &
Hahn Seafood og er í eigu Finnboga Baldvinssonar
og Samherja. Finnbogi er forstjóri Pickenpack og
bróðir Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Sam-
herja. Verður þeim greitt með nýju hlutafé í
Icelandic Group og munu eiga 21,25 prósent í félag-
inu að því loknu. Miðað við markaðsverðmæti
hlutabréfanna í dag er kaupverðið 5,5 milljarðar
króna.
Gunnlaugur segir gífurlegan feng að fá Sam-
herja til samstarfs og Finnboga, sem verður for-
stjóri Icelandic í Evrópu. Hann hafi snúið rekstri
Hussman & Hahn við eftir að hafa keypt fyrirtækið
árið 2000. Það var síðan sameinað Pickenpack 2003.
Sameinað fyrirtæki er sagt stærsta framleiðslu-
fyrirtæki Þýskalands á sviði frystra sjávarafurða.
Í ár er áætlaður rekstrarhagnaður Pickenpack –
Hussman rúmur milljarður króna. Gert er ráð fyrir
að veltan verði fjórtán milljarðar árið 2006 og tekj-
ur Icelandic í Evrópu aukist á næsta ári um 28 pró-
sent.
„Það eru gríðarleg samlegðartækifæri fyrir
hendi. Við ætlum okkur að vera leiðandi í sölu á
fiski og þetta styður einnig við starfsemi okkar í
Asíu þaðan sem við fáum ufsann til vinnslu,“ segir
Gunnlaugur Sævar. Afkoma verksmiðja í Bretlandi
hafi ekki verið viðunandi og ætlunin sé að bæta þar
úr með hagræðingu í framleiðslu á frystum afurð-
um í samstarfi við Pickenpack.
Um 65 prósent af allri framleiðslu Pickenpack
eru fiskréttir sem fara í smásöluverslanir. Gunn-
laugur segir sölu á frosnum fiskréttum stöðuga en
vöxtur sé í sölu á kældum og ferskum afurðum. Það
eigi sérstaklega við Bretland. Kaupin á þýska fyrir-
tækinu séu því í samræmi við stefnu Icelandic
Group.
F R É T T I R V I K U N N A R
4 12-13 7
Hafliði Helgason
skrifar
Hluthafafundur FL Group sam-
þykkti í gær tillögur sem fyrir
fundinum lágu um aukningu
hlutafjár.
Hannes Smárason, forstjóri
félagsins kynnti skipulagsbreyt-
ingar félagsins í öflugt fjárfest-
ingarfélag.
Tillaga lá fyrir fundinum um
að auka hlutafé FL Group um 44
milljarða að markaðsvirði. Auk
þess lá fyrir tillaga um heimildir
stjórnar til útgáfu hlutafjár með-
al annars vegna kaupa á Sterl-
ing.
Vilhjálmur Bjarnason, hlut-
hafi í FL Group, greiddi einn at-
kvæði gegn tillögunni sem var
samþykkt af öðrum hluthöfum
sem mættir voru á fundinn.
Vilhjálmur lagði fram nokkrar
spurningar á fundinum meðal
annars þá sem hann hafði boðað í
kjölfar sögusagna um flutning
þriggja milljarða frá félaginu til
Luxemborgar sem ekki tengdust
rekstri FL Group. Vildi Vilhjálm-
ur að endurskoðendur vottuðu að
slíkt hefði ekki átt sér stað.
Skarphéðinn Berg Steinars-
son, stjórnarformaður FL Group
vísaði til þess að endurskoðendur
hefðu farið yfir uppgjör fyrri
hluta árs félagsins og myndu
endurskoða komandi uppgjör.
Þeir myndu horfa til þess sem og
annarra þátta sem lúta að reikn-
ingum félagsins. Vilhjálmur vildi
einnig vita hvort þorri viðskipta
með bréf easyJet væru á vegum
FL Group og þau ein og sér á bak
við hækkun félagsins. Skarphéð-
inn sagði félagið ekki hafa haft
óeðlileg áhrif á gengi í Kauphöll-
inni í London.
Útrásarvísitalan hækkar:
BTC og Saunalahti
hækka mest allra
Búlgarska símfyrirtækið BTC
hækkar mest allra félaga í útrás-
arvísitölunni, um 7,8 prósent á
milli vikna, og finnska símfyrir-
tækið Saunalahti hækkar næst-
mest, um 6,1 prósent. Breska
lággjaldaflugfélagið easyJet og
breska iðnaðarfyrirtækið NWF
koma svo næst með um 5,3 pró-
sent hækkun hvort félag. Útrás-
arvísitalan hækkar um 3,18 pró-
sent á milli vikna og er hún nú
108,9 stig.
Mest lækkar sænska fyrir-
tækið Cherryföretag, um 4,9 pró-
sent, og næstmest breska tísku-
vörukeðjan French Connection,
um 3,4 prósent. - hb
Ætla að vera leið-
andi í sölu á fiski
Icelandic Group kaupir þýskt fyrirtæki sem framleiðir fryst-
ar sjávarafurðir á 5,5 milljarða króna. Veltan í Evrópu eykst
um 28 prósent og möguleikar á hagræðingu í framleiðslu.
Samþykkja hlutafjáraukningu
Hluthafar FL Group samþykktu hlutafjáraukningu á fundi í gær. Einn hlut-
hafi var á móti og lagði fram nokkrar spurningar sem tengdust rekstrinum.
01_24_Markadur-lesið 1.11.2005 16:08 Page 3