Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 17
SÓLVEIG ÓLAFSDÓTTIR OG GHALIB Sólveig og pakistanskur samstarfsmaður hennar Ghalib líta upp frá önnum Á skrifstofu Rauða krossins í Islamabad. MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2005 17 EINN SÁ ALLRA MANNSKÆÐASTI Jarðskjálftinn í Pakistan í októberbyrjun olli bæði miklu manntjóni og eyði- leggingu. Berist hjálpargögn ekki með meiri hraða er óttast að ennþá fleiri láti lífið þar sem Himalaya-veturinn færist nú yfir hamfarasvæðin. Atburðurinn: Laugardaginn 8. október kl. 8.50 að staðartíma varð jarðskjálfti af stærðinni 7,6 í Pakistan. Miðja skjálftans var nærri héraðshöf- uðborg pakistanska hluta Kasmír, Muzaffarabad. Kasmír er á mótum tveggja meginlandsfleka, Indlandsflekans og Evrasíuflekans, og gengur sá fyrri undir þann síðari og því myndast þar mikil spenna í bergi sem losnar um öðru hverju í skjálftum sem þessum. Manntjón: Áreiðanlegar tölur liggja ekki fyrir um manntjón. Pakistönsk stjórnvöld segja að um 55.000 manns hafi farist en yfirvöld í sjálf- stjórnarhéruðunum sem verst urðu úti telja að allt að 79.000 manns hafi týnt lífi. Flestir hinna látnu voru íbúar pakistanska Kasmír, að minnsta kosti 13.000 fórust í svonefndu Norðvesturhéraði og 1.360 eru sagðir hafa látist í indverska hluta Kasmír. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna telur að 17.000 börn hafi dáið í hamförunum. Eignatjón: Talið er að 3,3 milljónir manna hafi misst heimili sín enda þurrkuðust bæir á borð við Balakot nánast út í skjálftanum. Tjónið er talið nema um 300 milljörðum íslenskra króna. Hjálparstarf: Erfiðlega hefur gengið að koma hjálpargögnum til þeirra svæða sem verst urðu úti. Þau eru erfið yfirferðar, enda svæðið fjöllótt og afskekkt og vont veður hefur hamlað starf- inu. Mestu munar þó um að alþjóðasamfélagið hefur ekki orðið nema að litlu leyti við ákalli Sameinuðu þjóðanna um að láta það fé af hendi rakna sem nauðsynlegt er til að afstýra enn meiri hörmungum. Þar sem grimmdarvetur Himalaya-fjallanna er á næsta leiti er óttast að tugir þúsunda til viðbótar muni deyja berist aðstoð ekki fljótt. VIÐ BÆINN BALAKOT Þessi mynd er tekin rétt við bæinn Balakot sem fór allur í rúst í jarðsjálftanum. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is Hvers vegna var Höddi ekki settur í markið? Innbúskaskó TM Dæmi um hvað Innbúskaskó TM bætir: // Tjón á verðmætum sem teljast hluti af almennu innbúi fólks, s.s. fartölvu, myndavél, gleraugum og öðrum dýrum munum, færðu bætt. Hámarksupphæð tjóns er 250.000 kr. // Tjón af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra atburða er bætt, s.s. ef hlutur á heimilinu fellur í gólf eða það hellist yfir hann. Dæmi um hvað Innbúskaskó TM bætir ekki: // Ef þú týnir, gleymir eða skilur verðmæti eftir á almannafæri færðu þau ekki bætt. // Ef tjónið er af völdum eðlilegs slits, ófullnægjandi viðhalds eða framleiðslugalla fæst það ekki bætt. // Tjón sem verður af völdum þjófnaðar úr ólæstum hýbýlum, bílum, tjöldum eða fellihýsum fæst ekki bætt. Við sumum spurningum fást bara engin svör. Óhöpp henda okkur og við því er ekkert að gera. En þú getur brugðist við strax með því að tryggja hjá tryggingarfélagi sem gefur þér skýr svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála. Ef gleraugun þín brotna í hita leiksins er gott að vera vel tryggður. Innbúskaskó TM bætir tjón á hlutum sem ekki fást bættir með Fjölskyldutryggingu. Vertu við öllu búinn og bættu Innbúskaskóinu við Fjölskyldutryggingu TM. Það tekur enga stund að ganga frá því. Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á. Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T M I 28 60 5 1 1/ 20 05 ALBANAR MÓTMÆLA Lögregla stendur vörð í suður-albanska bænum Sarande í gær. Þar stóð fyrir mótmælum fólk sem upprunalega tilheyrði albanska minnihlutanum í norður- gríska héraðinu Chameria, en Grikkir ráku fólkið úr landi eftir síðari heimsstyrjöld fyrir að hafa verið talið hliðhollt öxulveldunum. Til mótmælanna var efnt í tilefni af áformaðri heimsókn Grikklandsforseta. Fólkið vill fá aftur land og eigur og fá grískan ríkisborgararétt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP an) virða þó aðstæður séu með þessu móti og ég verð að taka tillit til þess. Ég fer því afsíð- is þegar ég þarf að næra mig í stað þess að borða fyrir framan fastandi fólk. Þetta er bara smá dæmi um það sem huga ber að þegar maður vinnur með mörgu og ólíku fólki.“ Gott að koma heim Verkefnið sem Sólveig er þát- takandi í stendur í einn mánuð en þá fer hún til Sri Lanka þar sem hún hefur unnið undanfarið fyrir Alþjóðaráð Rauða kross- ins. „Ég kem svo heim fyrir jól og það verður ósköp gott. Þó þetta starf sé mjög gefandi tekur það heilmikið á líkamlega sem og andlega. Það er því alveg nauð- synlegt að koma heim og pústa aðeins. En meðan ég veit það að ég hef komið einhverjum til góða og bjargað einhverj- um mannslífum þá get ég horft stolt til baka og það hvetur mig til frekari starfa.“ FRÉTTAVIÐTAL JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON jse@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.