Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 75
2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR 31
Valkyrjur Þráins Bertelssonar
sverja sig í sömu ætt og Dauðans
óvissi tími sem kom út í fyrra, það
er að segja hér er á ferð bók með
tvíþættan tilgang. Öðrum þræði
er hún hefðbundin glæpasaga
og hins vegar samfélagsrýni og
ádeila með sterkum tilvísunum í
atburði líðandi stundar.
Söguþráðurinn er á þá leið að
þegar Freyja Hilmarsdóttir, rót-
tækur femínisti og rithöfundur,
finnst myrt hverfur handrit að
bók sem hún var að skrifa. Í því
eru upplýsingar sem gætu komið
sér illa fyrir valdamikla menn.
Víkingur Gunnarsson og félagar
hans hjá rannsóknarlögreglunni
sjá um rannsókn málsins en Elín
Óskarsdóttir ríkislögreglustjóri
kemur einnig að rannsókninni
því í handritinu eru upplýsingar-
um rannsókn á fjárhagsóreiðum
fyrirtækisisns Minus Group. Inn
í þetta blandast yfirvofandi stofn-
un nýrrar öryggisdeildar lögregl-
unnar með tilheyrandi togstreitu
og baktjaldamakki sem teygir
anga sína inn á kontóra æðstu
ráðamanna þjóðarinnar sem nota
undirmenn sína og embættismenn
eins og peð í valdataflinu. Þá bæt-
ist við þriðja sagan þar sem fylgst
er með yfirheyrslum lögreglunn-
ar á morðingja sem neitar að gefa
upp hvar líkið af eiginkonu hans
er niðurkomið.
Valkyrjur fjallar öðru fremur
um breytta tíma, með sínum kost-
um og löstum, sem Þráinn kýs
að persónugera í konum og jafn-
réttisbaráttu síðari ára. Kvenper-
sónur bókarinnar eru sterkar og
greindar enda þurfa þær á öllu
sínu að halda í samskiptum og
samkeppni við þá sem hafa tögl og
hagldir í samfélaginu. Karlarnir
eru í flestum tilfellum búrar af
gamla skólanum sem í tölvuvædd-
um samtíma nýrra gilda streitast
á móti eigin hnignun, meðal ann-
ars með rótgróinni kvenfyrirlitn-
ingu.
Það má matreiða mikið úr því
hráefni sem Þráinn hefur valið
sér og fléttan byrjar vel. En upp-
skriftin er að sama skapi vanda-
söm og lítið má út af bregða til að
útkoman verði annað hvort bragð-
dauf eða of sterk. Frásagnargáfa
Þráins er ótvíræð; í fyrsta lagi er
hann frábær stílisti sem skrifar
hnyttinn og áreynslulausan texta,
lausan við óþarfa skrúðmælgi eða
tilgerð. Þegar Þráni tekst best til
standa honum fáir á sporði í háðs-
ádeilunni en kaldhæðnina vegur
hann aftur á móti upp með mik-
illi samkennd fyrir breyskleikum
persóna sinna.
Þráinn virðist hins vegar ekki
hafa gert upp við sig hvort hann
vilji skrifa reyfara eða samfé-
lagsádeilu og fellir annað form-
ið ekki nægilega vel inn í hitt.
Fyrir vikið verður fléttan, sér-
staklega í morðrannsókninni, los-
araleg þegar á líður. Oft líður of
langt á milli kafla þar sem þeirri
atburðarás er sinnt og maður
gleymir jafnvel stundum að glæp-
ur hafi yfirleitt verið framinn í
byrjun bókarinnar. Þetta hefði
hugsanlega blessast ef köflun-
um með yfirheyrslunum vegna
líkleitarinnar hefði verið sleppt.
Þeim er ofaukið og gera það að
verkum að of litlu púðri er eytt í
morðrannsóknina sem fær fyrir
vikið snubbóttar og ósannfærandi
málalyktir.
Þráinn er í essinu sínu þegar
kemur að baktjaldamakkinu þar
sem æðstu ráðamenn og embætt-
ismenn landsins koma við sögu.
Helstu aukapersónur draga dám
af og dár að þekktum mönnum í
íslensku samfélagi og aðstæður
eru teygðar til og togaðar. Þetta er
hins vegar vandmeðfarið form og
krefst hófsemdar og temprunar ef
vel á að vera. Á köflum eru vísan-
irnar í atburði líðandi stundar full
fyrirferðarmiklar og jafnvel held-
ur langt seilst. Til dæmis virðist
forsætisráðherra, sem dregur lík-
indi sín af ónefndum manni, skot-
ið inn í söguna nánast í þeim eina
tilgangi að láta hann míga í sig á
Þingvöllum.
Samfélagsádeilan er þó engu að
síður áhugaverðasti og skemmti-
legasti hluti bókarinnar. Nærvera
Þráins er mikil og frásögnin oft í
anda pistla hans, til dæmis þegar
hann veltir upp aðkallandi spurn-
ingum um jafnrétti eða aukið eft-
irlit hins opinbera með þegnum
sínum. Þær setur hann fram í rök-
ræðum aðalpersónanna, en kemst
sem betur fer sjaldnast að endan-
legri niðurstöðu í predikunartóni.
Þrátt fyrir ákveðna vankanta
er bókin lestrarins virði þótt ekki
væri nema fyrir fantagóð stíl-
brögð Þráins. Það er hins vegar
óskandi að hann marki sér skýr-
ari stefnu og þétti frásögnina í
næstu bók því Þráinn Bertelsson
hefur mun meira að bjóða en hann
gerir í Valkyrjum.
Bergsteinn Sigurðsson
Breyttir tímar
BÆKUR
UMFJÖLLUN
VALKYRJUR
Höf: ÞRÁINN BERTELSSON ÚTG: JPV
Valkyrjur er virkilega vel skrifuð bók sem spyr
aðkallandi spurninga en líður á köflum fyrir
ómarkviss efnistök.
VIÐ BYRJUM VIKU TVÖ MEÐ KRAFTI.
FRUMSÝNINGAR HELGARINNAR ERU:
Í Háskólabíói og Regnboga 26. október - 14. nóvember
„Ein heimildarmynd og þessar mörgæsir
hada að þær séu aðal málið?!“
- jökull ii
Dagskráin er fáanleg til útprentunar á www.icelandfi lmfestival.is.
Þar geturðu líka gefi ð myndunum einkunn og unnið passa á næstu hátíðir.
Saul Metzstein (Kanada, Ísland,
UK/2005/101 mín.)
Frumsýnd á laugardaginn
Sigurvegari Gullpálmans á
Cannes fyrir á árinu. Áhrifamikil
og grípandi mynd eftir meistara
raunsæisins, Dardenne bræður.
Mörgæsamyndin sem er að slá
í gegn um allan heim. Magnað
þrekvirki sem á eftir að heilla
alla upp úr skónum.
Sigurvegari fjögurra aðalverð-
launa á Cannes í maí. Hugljúf og
beitt, rómantísk, gamanmynd.
Íslensk framleiðsla með Jason
Biggs í aðalhlutverkinu, sem
fer á kostum sem hermaður á
Grænlandi sem kemst ekki burt.
Jean-Pierre/Luc Dardenne
(Belgía Frakkl./2005/95m.)
Jean-Pierre/Luc Dardenne (Belgía
Frakkl./2005/95m.)
Miranda July
(USA,UK/2005/91mín.)
GUY XL’ ENFANT ME AND YOU AND
EVERYONE WE KNOW
LA MARCHE DE
L’EMPEREUR
Frumsýnd á morgun
Ótrúleg heimildarmynd um
lamaða menn í hjólastólum sem
keppa í grimmilegri útgáfu af
rugby. Sigurvegari á Sundance.
Henry Alex Rubin og Dana Adam
Shapiro (USA/2005/85 mín.)
MURDERBALL
Frumsýnd á morgun
Íslensk heimildarmynd um einn
merkasta listamann samtímans.
Meðal annars nýtt viðtal við
Matthew Barney tekið af Sjón.
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson og
Bjarni Massi (Ísland/2005/45 mín.)
MATTHEW BARNEY:
SITE SPECIFIC
Frumsýnd á morgun Frumsýnd á föstudaginn Frumsýnd á föstudaginn
Kl. 20:00 með
Leikstjóranum Luc Jacqeut
Kl. 20:00 með framleið-
andanum Sam Taylor
☎ 552 3000
Föstudag 11/11 LAUS SÆTI
Laugardag 12/11 LAUS SÆTI
Föstudag 26/11 LAUS SÆTI
VS Fréttablaðið
“Frábær skemmtun!”
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI