Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2005 21
Sá frómi lærimeistari Erasmus
frá Rotterdam hafði að kjörorði
að menntaður maður væri betri
maður og allar götur síðan hefur
vestrænt menntakerfi einkennst
af þeirri hugsjón að menntun hafi
gildi í sjálfu sér. Þar til nú. Um
þessar mundir hafa hæstráðendur
menntamála uppi stórfelld áform
um skerðingu á íslensku skóla-
kerfi, í því augnamiði að draga úr
námi til stúdentsprófs. Ljóst er að
þessi skerðing er ekki í þágu nem-
enda landsins, enda eru þeir flest-
ir mótfallnir henni.
En hverjir vilja þá skerðinguna?
Nemendur, foreldrar, kennarar
eða skólamenn? Óekkí. Það virðast
vera fulltrúar atvinnulífsins, sem
ráða hér ferð, en alkunna er að þar
á bæ snýst tilveran ekki um sjálf-
stætt gildi menntunar, heldur dans
í kringum gullkálfinn. Aumlega er
komið fyrir íslensku menntakerfi,
þegar aurasálir, maurapúkar og
mammonítar stýra þróun þess.
Miðað við áætlanir stjórnvalda
er fyrirhugað að fyrsti árgangur
nemenda með skert stúdentspróf
útskrifist árið 2012, sama ár og
síðasti hópurinn lýkur fullgildu
stúdentsprófi. Á því herrans ári
munu því tveir árgangar sækjast
eftir háskólavist. En fyrst sæta-
fjöldi í háskólum landsins er tak-
markaður, hvor hópurinn er þá
líklegri til að hljóta inngöngu?
Vitaskuld sá sem hefur betri und-
irbúning til námsins. Því má búast
við að hópurinn með síðra prófið
fái ekki inngöngu í háskóla, a.m.k.
ekki í fyrstu atrennu.
Ekki þarf neinn höfuðsnilling til
að reikna út að það er árgangur
barna fæddra 1993, sem svo verð-
ur úthýst í íslensku skólakerfi.
Hvers eiga þessir nemendur að
gjalda, að svo gróflega sé brotið
á stjórnarskrárbundnum réttind-
um þeirra til menntunar? Hyggj-
ast yfirvöld menntamála beita
sér fyrir því að efla svo háskóla
landsins að þeir geti tekið við 4000
viðbótarnemendum á ári tveggja
stúdentsárganga? Verður þessi
hópur ef til vill vinnuafl fyrir ný
álver sem þá verður búið að reisa?
Eða er máske sannleikskorn í
þeirri flimtan gárunga og gap-
uxa að reiðuleysi þessa árgangs
verði notað sem rök fyrir stofnun
íslensks hers, áhugasömum pótin-
tátum til þægðar?
Þrátt fyrir að máltækið segi að
bókvitið verði ekki í askana látið,
þá er ljóst að mannkynið stæði
ólíkt aftar á þróunarbraut sinni
án þess. Menntunin er það fjör-
egg samfélagsins, sem við viljum
síst að skessur forheimskunar
varpi á milli sín. Ef við trúum
orðum Erasmusar, að menntaður
maður er betri maður, hvað er þá
síður menntaður maður? Fróðlegt
væri að heyra svar hæstráðenda
menntamála við því.
Skerðing í
skólakerfi
UMRÆÐAN
HELGI INGÓLFSSON FRAMHALDSSKÓLA-
KENNARI SKRIFAR UM STYTTINGU
NÁMSTÍMA
TAKTU FRÁ 7. NÓVEMBER. VERTU MEÐ Í SMÁRABÍÓI, KÓPAVOGI
Vertu með. Aðeins fyrir forritara og tæknimenn.
Skráðu þig strax á www.microsoft.is.
Skráningargjald, aðeins 3.500 kr.
Bestu forritararnir og bestu tæknimennirnir eru með allt undir kontról
Heimsfrumsýning SQL Server 2005
Heimsfrumsýning Visual Studio 2005
Heimsfrumsýning BizTalk Server 2006
Keynote
Smart Client Application Development and Deployment
Design and Development Tools for Building Mission-Critical Applications
Building Highly Available Systems with SQL Server 2005
Delivering Business Insight
Web Development
Architecting Scalable, Flexible and Secure Database Systems with SQL Server 2005
Steve Ballmer - Live from San Francisco
Bestu forritararnir og bestu tæknimennirnir eru stöðugt
á vaktinni. Þeir fylgjast 24/7 með öllum nýjungum. Þeir
vita að atvinnulífið byggir afkomu sína á því að þú
kunnir skil á þeirri tækni sem nauðsynleg er í sókn til
hagræðingar, öryggis og framtíðar.
Vertu með. Komdu á stærstu tækninámstefnu ársins
2005 hjá Microsoft. Skráðu þig á www.microsoft.is strax
í dag. Áríðandi fyrirlestrar.
Aðeins fyrir forritara og tæknimenn.
Sjáðu líka heimsfrumsýningu á SQL Server 2005,
Visual Studio 2005 og BizTalk Server 2006.
Vertu með allar nýjungarnar á hreinu.
Áríðandi fyrirlestrar - aðeins
fyrir forritara og tæknimenn
Kynntu þér nýjungar á stærstu
tækninámstefnu ársins 2005
Steve Ballmer stjórnar beinni útsendingu til Smárabíós
• Kokteill í bo
ði Visual Stud
io 2005
• Spennandi
bíómynd í lok
in. Popp og k
ók.
Forsýning í
boði SQL Ser
ver 2005
• Vertu með -
þú fræðist og
nærist
• Óvænt gjöf
frá Microsoft
Komdu á stæ
rstu tækniná
mstefnu ársi
ns 2005
Skráðu þ
ig strax á ww
w.microsoft.
is
G
C
I A
LM
A
N
N
A
T
E
N
G
S
L
-
G
R
E
Y
C
O
M
M
U
N
IC
A
T
IO
N
S
IN
T
E
R
N
A
T
IO
N
A
L