Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN10
F R É T T A S K Ý R I N G
Eins og kom fram fyrir helgi högnuðust
viðskiptabankarnir þrír um 66 milljarða
króna á fyrstu níu mánuðum ársins, sem
er um helmingsaukning á milli ára. Upp-
gjör allra bankanna voru framar afkomu-
spám markaðsaðila, sem höfðu gert ráð
fyrir um 63,5 milljarða hagnaði á sama
tímabili.
Hreinar vaxtatekjur hafa aldrei verið
meiri og jukust mjög á síðasta ársfjórð-
ungi. Margt bendir þó til að með aukinni
útrás viðskiptabankanna muni aðrar
rekstrartekjur, einkum þjónustutekjur,
vaxa hratt á næstu misserum.
Fátt bendir til annars en að veislan
haldi áfram og næsta ár verði álíka gott.
BÖRNIN VAXA HRATT
Ævintýralegur vöxtur lýsir sennilega best
starfsemi bankanna á þessu ári. En vöxt-
urinn hefur verið mikill á undangengnum
árum. Heildareignir bankanna hafa til að
mynda vaxið úr eitt þúsund milljörðum
árið 2001 í 4.800 milljarða. Frá síðustu ára-
mótum hafa eignirnir aukist um 1.100
milljarða króna.
Verðmæti bankanna hefur einnig vaxið
gríðarlega á nokkrum árum eða sjöfaldast.
Markaðsvirði Íslandsbanka, Landsbanka,
Kaupþings og Búnaðarbankans var 117
milljarðar í árslok 2001 en er nú komið vel
yfir 850 milljarða króna. Bankarnir eru þó
enn litlir í alþjóðlegum samanburði. KB
banki sem er stærstur að markaðsvirði er
áttunda stærsta fjármálastofnun á
Norðurlöndum.
KB banki hagnaðist um 34,5 milljarða á
fyrstu þremur fjórðungunum sem er yfir
160 prósenta aukning á milli ára. Þar af er
hagnaður þriðja ársfjórðungs – 9,7 millj-
arðar króna – tæplega 48 prósentum meiri
miðað við sama tímabil í fyrra.
Arðsemi eigin fjár nam 32 prósentum á
umræddu tímabili. Heildareignir KB
banka eru komnar í 2.300 milljarða króna
og hafa vaxið um 750 milljarða frá síðustu
áramótum.
GÓÐ ARÐSEMI
Landsbankinn græddi 16,2 milljarða á
fyrstu níu mánuðum ársins sem er 38 pró-
senta auking á milli ára. Uppgjör hans var
það sem var mest umfram væntingar
markaðsaðila. Hagnaður bankans á þriðja
ársfjórðungi var 5,1 milljarðar samanbor-
ið við tæpa 5,8 milljarða í fyrra. Ef tillit er
tekið til virðisrýrnurnar viðskiptavildar
að upphæð 3,3 milljarðar, sem fellur til
vegna samruna eigna Burðaráss inn í
Landsbankann, er hagnaður fyrir skatta
og afskriftir um 45 prósentum meiri.
Eignir Landsbankans vaxa ekki síður
mikið. Þær eru nú komnar í 1.142 millj-
arða og hækka um 405 milljarða frá ára-
mótum eða um 55 prósent. Arðsemi eigin
fjár var rétt um 48 prósent hjá Landsbank-
anum.
Afkoma Íslandsbanka er 4,5 milljörðum
betri á fyrstu níu mánuðum þessa árs en
því síðasta og um tíu prósentum betri en
meðaltalsspá fyrir þriðja árshluta gerði
ráð fyrir. Bankinn skilaði alls 15,4 millj-
örðum króna í hagnað fyrir árið í heild
sem er fjörutíu prósenta aukning. Á þriðja
ársfjórðungi skilaði bankinn 4,8 milljarða
hagnaði sem er yfir þrjátíu prósenta aukn-
ing á milli ára. Arðsemi eigin fjár var 34
prósent.
Heildareignir Íslandsbanka aukast
hlutfallslega mest en þær hafa aukist um
95 prósent frá áramótum eða um 641 millj-
arð og eru nú 1.319 millarðar.
VAXTATEKJUR TVÖFALDAST
Á þriðja ársfjórðungi námu hreinar vaxta-
tekjur bankanna 22,5 milljörðum króna og
aukast um fimm milljarða frá öðrum árs-
fjórðungi eða um þrjátíu prósent!
Mesta aukningin var hjá KB banka sem
jók vaxtatekjur sínar á milli fjórðunga um
nærri helming vegna innkomu
Singer&Friedlander. Í tilviki allra bank-
anna jukust hreinar vaxtatekjur almennt
vegna meiri verðbólgu á fjórðungnum en
verðtryggðar eignir þeirra eru umfram
skuldir.
Þegar þriðji árshluti er borin saman við
sama tímabil í fyrra sést að hreinar vaxta-
tekjur bankanna nærri tvöfaldast. Þær
voru nærri 11,9 milljarðar á síðasta ári. Ís-
landsbanki jók tekjur sínar um 128 pró-
sent á milli ára en aukningin varð nokkru
minni hjá hinum bönkunum.
Hreinar þóknanatekjur bankanna á
fjórðungnum námu 13,2 milljörðum króna.
Um helmingurinn féll til hjá KB banka
sem tók inn 6,9 milljarða. Til samanburðar
námu þóknanatekjur bankans fyrir allt
síðasta ár 2,9 milljörðum króna. Fyrir-
tækjaráðgjöfin lauk við þrjú stór verkefni
á fjórðungnum, kaup Skipta á Landssím-
anum, yfirtöku Össurar á Royce Medical
og kaup Baugs á tískuverslunarkeðjunni
Jane Norman. Gengishagnaður hefur ekki
haft minni þýðingu í afkomu KB banka frá
því á öðrum ársfjórðungi árið 2004.
Þjónustutekjur Landsbankans aukast
mikið á milli ára þótt þær hafi ekki vaxið
frá öðrum árshluta. Meginvöxtur bankans
liggur á erlendum vettvangi en tekjur af
starfsemi Teather&Greenwood koma af
fullum þunga inn í níu mánaða uppgjörið
en svo bætist evrópska verðbréfafyrir-
tækið Kepler inn í reikninga bankans á nú-
verandi árshluta. Fjárfestingartekjur
Landsbankans voru hæstar hjá bönkunum
en gengishagnaður var yfir sex milljarðar
króna. Samruni eigna frá Burðarási hafði
sitt að segja.
Afkoma Íslandsbanka markast af miklu
vægi vaxtatekna sem hlutfall af rekstrar-
tekjum og hafa þóknanatekjur og gengis-
hagnaður því minna að segja. Ýmislegt
bendir þó til þess að hlutur tekna vegna
fyrirtækjaráðgjafar og af verðbréfum
geti aukist í tekjuköku Íslandsbanka.
83 MILLJARÐAR?
Í ljósi þróunarinnar stefnir allt í að heild-
arhagnaður bankanna á árinu 2005 verði
yfir 83 milljarðar en þá er stuðst við af-
komuspár bankanna fyrir árið í heild.
Erfitt er að spá fyrir um afkomu félaga á
fjórða ársfjórðungi, enda ennþá tveir
mánuðir eftir af honum og því er ljóst að
margt getur breyst. Það er mikil aukning
frá árinu 2004 þegar hagnaðurinn var 40
milljarðar.
KB banki mun skila mestum hagnaði,
eða um helmingi af heildartölunni, og
stefnir í að afkoma ársins verði um 43
milljarðar. Afkoma Landsbankans á árinu
stefnir í að verða á bilinu 21-22 milljarðar
króna. Niðurstöðurtala Íslandsbanka gæti
endað í nítján milljörðum.
Í allri þessari umfjöllun er ekki tekið
tillit til Straums-Burðaráss Fjárfestingar-
banka sem skilar uppgjöri í dag. Honum er
spáð rúmlega 4,3 milljarða hagnaði á
þriðja árshluta.
Slá spámönnunum við
Hagnaður viðskiptabankanna var umfram væntingar. Allt stefnir í að hagnaður ársins verði um 83
milljarðar. Mikill vöxtur er á flestum tekjusviðum og fátt mun stöðva þá þróun vegna mikilla verkefna
á erlendum vígstöðvum. Eggert Þór Aðalsteinsson gluggaði í uppgjör stóru bankanna.
FYLGJAST SPENNT MEÐ BÖNKUNUM
Miklar væntingar eru gerðar til bankanna
og hafa þeir í nær öllum tilvikum staðist
prófraunina. Frá áramótum hafa bankarnir
hagnast um 66 milljarða sem er umfram
væntingar hjá öllum. Þessi mynd er frá
kynningarfundi Landsbankans sem fram fór
í Iðnó í kjölfar birtingar níu mánaða upp-
gjörs.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/E
.Ó
L
V I Ð S K I P T A B A N K A R N I R Þ R Í R
H E L S T U N I Ð U R S T Ö Ð U T Ö L U R O G S T Æ R Ð I R
V I Ð L O K Þ R I Ð J A Á R S H L U T A ( A L L A R T Ö L U R Í M I L L J Ó N U M K R Ó N A )
KB banki Landsbankinn Íslandsbanki
Hreinar vaxtatekjur 9.487 6.332 6.713
Þjónustutekjur 6.862 4.383 2.007
Gengishagnaður 4.772 6.074 785
Hreinar rekstrartekjur 22.909 16.949 9.574
Rekstrarkostnaður -9.512 -4.982 -3.359
Hagnaður eftir skatta 9.708 5.105 4.400
Arðsemi eigin fjár 32% 48% 34%
Heildareignir 2.310.000 1.142.000 1.319.000
Eigið fé 173.500 98.749 76.047
Markaðsvirði 394.000 245.000 201.000
VH-hlutfall* 10,3 11,2 11,7
VI-hlutfall** 2,3 2,4 2,5
* Markaðsvirði/Tólf mánaða hagnaður
** Markaðsvirði/Eigið fé
10_11_Markadur lesið 1.11.2005 15:15 Page 2