Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 12
2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Sjálfstætt starfandi
hjartalæknar tóku þá ákvörðun á
fundi í fyrradag að fresta uppsögn
samnings við Tryggingastofnun rík-
isins fram í desember. Þeir höfðu
áður ákveðið að segja upp samningn-
um nú um mánaðamótin.
Ástæða þessa er sú að eininga-
kvóti sá sem samningur Trygginga-
stofnunar og sjálfstætt starfandi
hjartalækna kveður á um, dugir
ekki fyrir unnum læknisverkum
til mánaðamóta. Það þýðir að lækn-
arnir fá hlut sjúklings greiddan, en
ekkert frá Tryggingastofnun eftir
að kvótinn er uppurinn.
„Hjartalæknar eru afar óánægð-
ir með samninginn og framkvæmd
hans,“ segir Axel Sigurðsson
hjartasérfræðingur, sem á sæti í
stjórn Félags sjálfstætt starfandi
hjartalækna. „Það er erfitt að sætta
sig við að vinna ákveðin verk en fá
ekki greitt fyrir þau. Það getur ekki
talist eðlilegt. Við getum ekki sinnt
þessari þjónustu nema fá borgað
fyrir hana.“
Axel segir að hjartalæknar ætli
þó að reyna að þrauka eitthvað
áfram í þeirri von að lausn finnist
á málinu. Þeir geti þó ekki beðið í
margar vikur til viðbótar. - jss
Sjálfstætt starfandi hjartalæknar ósáttir við samning sinn við Tryggingastofnun:
Segja upp eftir einn mánuð
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest dóm héraðsdóms í máli
íslenska ríkisins gegn svínabúinu
Sléttusvín þar sem ríkið var dæmt
til að endurgreiða svínabúinu
kostnað sem hlaust af sýnatökum
vegna salmonellusýkingar.
Fyrir fjórum árum greindist
salmonella í saursýnum á svína-
búinu og í kjölfarið voru frekari
próf gerð með stroksýni af kjöti.
Ágreiningur reis milli eigenda
svínabúsins og yfirvalda um hver
ætti að bera straum af kostnaði
vegna prófanna. Bændur héldu því
fram að greiða ætti úr sérstökum
sjóði sem sláturleyfishafar greiða
í samkvæmt tilskipun frá land-
búnaðarráðuneytinu til að standa
straum af kostnaði við heilbrigð-
iseftirlit kjötskoðunarlækna með
sláturafurðum.
Hæstiréttur staðfesti dóm
héraðsdóms um að greiða ætti
fyrir prófin úr umræddum sjóði.
Guðmundur B. Helgason, ráðu-
neytisstjóri landbúnaðarráðu-
neytisins, segist ekki eiga von
á eftirmálum vegna dómsins.
Aðspurður segir hann hugsan-
legt að svínabændur sem greitt
hefðu fyrir sýnatöku kynnu að
krefjast endurgreiðslna í ljósi
dómsins. „Við höfum þó ekki
skoðað það sérstaklega,“ segir
Guðmundur. - sda
Hæstiréttur staðfesti dóm um að ríkið greiði fyrir sýnatöku á svínabúi:
Bóndinn þarf ekki að borga
HJARTALÆKNAR Margir hjartalæknar eru
með stofur í Læknasetrinu í Mjódd.
SVÍNABÚIÐ SLÉTTUSVÍN VANN MÁL GEGN RÍKINU Í HÆSTARÉTTI Landbúnaðarráðuneytið
hefur ekki skoðað hvort málið hafi fordæmisgildi og hvort fleiri svínabændur muni í kjöl-
farið krefjast endurgreiðslu á kostnaði vegna sýnatöku.
í nóvember
5FordMustang
og 3 milljónir
í skottinu á
tvöfaldan miða
Dregið
vikulega!
www.das.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
A
S
30
05
4
1
0/
20
05
Dregið fimmtudaginn 3. nóv. nk.
Síminn er 561 7757
Einfaldur mi›i kostar
a›eins 900 kr. á mánuði