Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 59
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 Gríski frumkvöðullinn Stelios Haji-Ioannou hefur að undan- förnu verið í sviðsljósinu vegna umræðu um að FL Group hyggist yfirtaka breska lággjaldaflug- félagið easyJet. Hann og fjöl- skylda hans eiga rúmlega fjöru- tíu prósenta hlut í félaginu en Stelios er sjálfur eigandi að easy- vörumerkinu sem á um fimmtán vörumerki svo sem easyPizza, easyCar og fleiri og fleiri. Stelios á sjálfur um 16,6 pró- senta hlut í easyJet en hann fer einnig með hlut fjölskyldu sinn- ar, samtals um 41 prósent. Haft hefur verið á orði að fjölskyldan sé þó ekki eins samhent og hún lítur út fyrir að vera og einhver hinna hluthafanna geti vel hugs- að sér að selja. FL Group jók ný- lega hlut sinn í félaginu um 16,18 prósent. Ekki er búist við öðru en að FL Group muni auka hlut sinn jafnt og þétt í breska lággjalda- flugfélaginu enda þótt gengi hlutanna hafi nú nýverið farið í 300 pens á hlut en félagið hefur að minnsta kosti einu sinni áður náð að rjúfa þann múr. Haft var eftir Stelios í erlend- um fjölmiðlum í kjölfar aukinna kaupa FL Group á hlutum í félag- inu að hann hefði sömu fyrirætl- anir og áður varðandi félagið. Hann hefði tilkynnt Hannesi Smárasyni, forstjóra FL Group, það fyrir ári að hann hefði ekki í hyggju að selja sinn hlut og það stæði. Samþykktir easyJet koma í veg fyrir að erlendir aðilar geti eignast meira en fjörutíu prósent hlutafjár í félaginu. Það ætti þó varla að koma í veg fyrir að FL Group næði að kaupa meirihluta því finna mætti leiðir bæði í gegnum fjárfestingarsjóði og banka til að ná meira en fjörutíu prósenta hlut í félaginu. Enn sem komið er blasir því ekkert annað við en að tilgangur FL Group með fjárfestingu sinni í félaginu sé að ná yfirráðum í fé- laginu. Hlutafjáraukning FL Group gefur félaginu alla fjár- hagslega burði sem þarf til þess en eina vafaatriðið og kannski það stærsta er hvort félaginu takist að sannfæra Stelios og hans fjölskyldu um að nú sé rétti tíminn til að selja. - hb Stelios segist ætla að halda meirihluta STELIOS HAJI-IOANNOU, STOFNANDI OG EIGANDI EASYJET Stelios segist ekki ætla að selja frá sér easyJet enda sé félagið flaggskipið í easy-vörumerkinu sem hann á. Meðal vörumerkja eru easyPizza sem selur pítsur í heimsendingu en á mismunandi verði eftir því hvenær pantað er. Þannig segist Stelios ná að selja fleiri pítsur á öðr- um tímum en hefðbundnum matmálstím- um og nýta því starfskrafta á fullum hraða allan daginn. 22_23_Markadur lesið 1.11.2005 15:42 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.