Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 68
2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði,
stórafmæli, andlát og jarðar-
farir í smáletursdálkinn hér
að ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma
550 5000.
ANDLÁT
Gunnlaugur Sigurgeirsson,
prentari og sjómaður, andaðist
á heimili sínu, Skeggjagötu 17,
Reykjavík, sunnudaginn 16. októ-
ber. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Arngrímur Gíslason, Mararbraut
9, Húsavík, andaðist á Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga miðvikudaginn
19. október. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Björn Eiríksson, Bólstaðarhlíð
45, áður til heimilis í Mávahlíð 36,
Reykjavík, andaðist á Landspítal-
anum við Hringbraut miðvikudag-
inn 26. október.
Hermann Búason andaðist á
Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi,
fimmtudaginn 27. október.
Jónína Sjöfn Jóhannsdóttir,
Blikabraut 6, Keflavík, lést á
Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 27. október.
Guðbjörg Jónsdóttir, áður til
heimilis á Nýlendugötu 15a, lést á
elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
föstudaginn 28. október.
Þórður Óskarsson, fyrrverandi
útgerðarmaður á Akranesi, Urðar-
ási 8, Garðabæ, lést á Landspítal-
anum í Fossvogi föstudaginn 28.
október.
Ásdís Björnsdóttir, Ögmundar-
stöðum, Skagafirði, lést laugardag-
inn 29. október.
Friðbjörg Midjord, Fellsási,
Breiðdal, andaðist á Landspítal-
anum í Fossvogi laugardaginn 29.
október.
Óskar Kristjánsson, útgerðar-
maður frá Súgandafirði, lést á
Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 29. nóvember.
Þóra Birna Brynjólfsdóttir lést á
Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudag-
inn 30. október.
JARÐARFARIR
13.00 Gylfi Jónsson vélvirki,
Fannafold 116, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju.
13.00 Þuríður Jónsdóttir frá
Grafardal, til heimilis á Kárs-
nesbraut 135, Kópavogi,
verður jarðsungin frá
Áskirkju í Reykjavík.
14.00 Árni Hinrik Jónsson, áður
Suðurgötu 44, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju.
AFMÆLI
Kjartan Ólafs-
son alþingismað-
ur er 52 ára.
Alfre Woodard
leikkona er 52
ára.
Bryndís
Loftsdóttir
verslunarstjóri
er 35 ára.
Eva Sólan, þula
og ljóðskáld, er
33 ára.
GEORGE BERNARD SHAW (1856-
1950) LÉST ÞENNAN DAG.
„Stjórnvöld sem ræna Pétur til að
borga Páli geta ávallt reitt sig á
stuðning Páls.“
GEORGE BERNARD SHAW VAR
BRESKT LEIKRITASKÁLD SEM
HLAUT BÓKMENNTAVERÐLAUN
NÓBELS ÁRIÐ 1925.
Á þessum degi árið 1947 flaug hinn sérlundaði
bandaríski auðkýfingur Howard Hughes risaflugvél-
inni Spruce Goose í fyrsta og eina skiptið. Flugvélin,
sem var að mestu smíðuð úr timbri, er rúmlega 180
tonn að þyngd og vænghafið er tæpir 98 metr-
ar, sem er mesta vænghaf flugvélar fyrr og síðar.
Flugið stóð yfir í rétt um það bil mínútu og á þeim
tíma flaug ferlíkið rúmlega eins og hálfs kílómetra
vegalengd.
Í síðari heimsstyrjöldinni fengu bandarísk stjórn-
völd Hughes til að smíða fyrir sig þrjá „flugbáta“ sem
áttu að geta flutt mikinn mannafla og vopn. Smíði
flugbátsins lauk þó ekki fyrr en að stríðinu loknu og
var því flugvélin, sem hlaut viðurnefnið Spruce Goose
eða Grenigæsin, aldrei notuð eða framleidd í fleiri
eintökum. Hughes, sem varð sérlundaðri eftir því
sem árin liðu, hafði hins vegar flugbátinn ávallt reiðu-
búinn í fluggeymslu sem kostaði hann offjár. Spruce
Goose er nú til sýnis í flugminjasafni í Oregon þar
sem hún var gerð upp fyrir nokkrum árum.
ÞETTA GERÐIST > 2. NÓVEMBER 1947
Grenigæsin hefst á loft
SPRUCE GOOSE
MERKISATBURÐIR
1906 Fyrsta kvikmyndahúsið,
Reykjavíkur Biograftheat-
er, tekur til starfa í Fjala-
kettinum við Aðalstræti.
1913 Morgunblaðið kemur út í
fyrsta sinn.
1930 Haile Selassie er krýndur
keisari Eþíópíu.
1938 Togarinn Ólafur frá
Reykjavík ferst í norðan-
veðri á Halamiðum með
allri áhöfn.
1946 Íslendingar taka við
stjórn flugumferðar á
Norður-Atlantshafi.
1948 Harry Truman er endur-
kjörinn forseti Bandaríkj-
anna.
1963 Forseti Suður-Víetnam,
Ngo Dinh Diem, er
myrtur.
2000 Verslunarmiðstöðin
Glerártorg á Akureyri er
opnuð.
Þegar Félag framsókn-
arkvenna í Reykjavík var
stofnað fyrir sextíu árum
var andrúmsloftið nokk-
uð annað en það er í dag.
„Konur áttu helst að vera
hljóðlátar, prúðar og stilltar
líkt og í kvæði Davíðs Stef-
ánssonar þar sem það var
aðalsmerki kvenna,“ segir
Áslaug Brynjólfsdóttir for-
maður framsóknarkvenna í
Reykjavík sem hefur starf-
að með flokknum í tæp þrjá-
tíu ár. Í þessu ljósi fannst
Áslaugu merkilegt að slag-
orð kvennafrídagsins nýlega
var „Konur höfum hátt“ og
sýni það vel þær breyting-
ar sem orðið hafi á þessum
áratugum.
„Markmið félagsins frá
upphafi var að vinna að
aukinni þátttöku kvenna í
stjórnmálum,“ segir Áslaug
sem er tíundi formaðurinn á
sextíu árum. „Síðan höfum
við reynt að stuðla að því
að koma hæfum konum í
öruggt sæti,“ segir Áslaug
en fyrsta konan til að kom-
ast á þing fyrir Framsókn-
arflokkinn var Rannveig
Thorsteinsdóttir árið 1948.
„Svo leið ansi langur tími
þangað til Valgerður [Sverr-
isdóttir] komst á þing árið
1987,“ upplýsir Áslaug en
í millitíðinni hafði félagið
haft frumkvæði að því að
stofna Landsamband Fram-
sóknarkvenna árið 1981 en
Áslaug sjálf kom að stofn-
un þess ásamt þeim Sigríði
Magnúsdóttur og Valborgu
Bentsdóttur. „Síðan höfum
við staðið okkur betur en
nokkur annar flokkur því
við vorum um tíma með þrjá
kvenráðherra og þrjá karl-
ráðherra,“ segir Áslaug, en
upphaflega hugsunin með
Félagi framsóknarkvenna
var að veita þeim liðsinni
sem minna máttu sín í þjóð-
félaginu og leggja áherslu
á ýmis nauðsynjamál sem
voru talsvert önnur fyrir
sextíu árum. Sérstaklega
var þeim umhugað um hag
kvenna og fjölskyldunnar.
„Stemningin er öll að
lifna við,“ segir Áslaug um
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík en hún viður-
kennir að starfsemin hafi
verið í töluverðri lægð síðan
borginni var skipt í tvö
kjördæmi. „Félagið hefur
verið misöflugt en við erum
að reyna að lífga upp á það
aftur,“ segir Áslaug sem
telur jafn nauðsynlegt að
hafa kvenfélag nú og fyrir
sextíu árum. „Þar eru öðru-
vísi samræður og konur eru
kannski djarfari. Ég finn að
þegar ekki er kvenfélag þá
er stór hópur af miðaldra
konum sem ekki lætur eins
mikið til sín taka,“ segir
Áslaug sem telur að mesti
sigur félagsins frá stofnun
hafi verið að koma þrem-
ur kvenráðherrum í ríkis-
stjórn. ■
FÉLAG FRAMSÓKNARKVENNA Í REYKJAVÍK ER 60 ÁRA
Ekki lengur stilltar og prúðar
KONUR Í SÓKN „Síðan höfum við staðið okkur betur en nokkur annar
flokkur því við vorum um tíma með þrjá kvenráðherra,“ segir Áslaug Brynj-
ólfsdóttir.
Okkar innilegustu þakkir færum við
öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Gunnbjörns Jónssonar
Hraunvangi 7, Hrafnistu, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu,
elskulegs starfsfólks B2 Hrafnistu, starfsfólki B2
Landspítala Fossvogi, MND-teymi, MND-félaginu og
Sr. Sigríði Kristínu Helgadóttur fyrir þann stuðning
sem þau sýndu honum í veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Gróa Gunnbjörnsdóttir Ingimar Kristjánsson
Sigfús Brynjar Gunnbjörnsson Anna Björk Brandsdóttir
Jón Valdimar Gunnbjörnsson Ragna Jóna Helgadóttir
Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir Rósinkar Snævar Ólafsson
Kristbjörg Gunnbjörnsdóttir Heimir Lárus Hjartarson
Guðjón Heiðar Gunnbjörnsson Elínborg Sigvaldadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þóra Birna Brynjólfsdóttir
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 30. október.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
föstudaginn 4. nóvember kl. 13.00.
Magnús Gústafsson Edda Birna Gústafsson
Birna Magnúsdóttir
Björn Magnússon Dagbjört Ósk Steindórsdóttir
Einar Magnússon Áslaug Jónsdóttir
Jórunn María Magnúsdóttir Haukur Bragason
Baldur Dan Alfreðsson
Þórir Dan Viðarsson Jóhanna Stella Baldvinsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Jónína Sjöfn Jóhannsdóttir
Blikabraut 6, Keflavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 27. október.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
4. nóvember kl. 10.30.
Hreggviður Bergmann
Magnús Bergmann
Vignir Bergmann Sara Líf Sefánsdóttir
Fríða Bergmann Samúel Már Smárason
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Guðbjörg Jónsdóttir
áður til heimilis á Nýlendugötu 15a,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn
28. okt. Jarðsett verður frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 3. okt. kl. 13.00.
Jón H. Þórarinsson Marilou Suson
Guðlaug Kristófersdóttir
Jónína S. Kristófersdóttir Kjartan L. Pálsson
Ingólfur Kristófersson Hildur Guðmundsdóttir
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
Estherar Á. Laxdal
frá Tungu, Svalbarðsströnd.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á B-gangi á dvalarheimil-
inu Hlíð, Akureyri.
Synir hinnar látnu og fjölskyldur.
www.steinsmidjan.is