Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 4
4 2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR DANMÖRK Danska utanríkisráðu- neytið rannsakar nú ásakanir um að ræðismaður Dana í Jórdaníu hafi haft milligöngu um að færa Saddam Hussein, fyrrverandi ein- ræðisherra í Írak, mútugreiðsl- ur frá dönskum fyrirtækjum á tímum efnahagsþvingana Samein- uðu þjóðanna. Skýrsla sérstakrar rannsókn- arnefndar um olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna sem var í gildi á árunum 1996-2003 leiddi í ljós að dönsk yfirvöld höfðu sjálf hreinan skjöld hvað viðskipti við Írak áhrærir. Hins vegar grein- di dagblaðið Jyllands-Posten frá því í gær að það hefði gögn undir höndum sem sýndu að ræðismað- ur Danmerkur í Jórdaníu hafi rukkaði dönsk útflutningsfyrir- tæki um mútugreiðslur til ríkis- stjórnar Saddams Hussein. Talið er að greiðslurnar hafi numið um tíu prósentum af verðmæti alls útflutnings til Íraks og þær hafi verið innheimtar á árunum 2000- 03, en Sameinuðu þjóðirnar lögðu blátt bann lagt við slíkum greiðsl- um. Forystumenn stjórnarandstöð- unnar hafa farið fram á að ræð- ismaðurinn, Tawfiq Amin Kawar, verði leystur frá störfum og krefja Per Stig Møller utanríkisráðherra skýringa á málinu. - shg Ræðismaður Danmerkur í Jórdaníu með óhreint mjöl í pokahorninu: Safnaði mútum fyrir Saddam GRÆDDI Á TÁ OG FINGRI Saddam Hussein átti einungis í viðskiptum við þau dönsku fyrirtæki sem greiddu honum ríflega þóknun fyrir. NOREGUR Dagblaðið Dagens Nær- ingsliv birti um helgina fréttir þar sem fjórir virtir læknar og sál- fræðingar í Osló eru sakaðir um að hafa gegn þóknun falsað lækn- isvottorð fyrir glæpamenn svo að þeir fengju vægari refsingu. Embætti héraðslæknisins í Ósló og Akershus hefur vísað málinu til lögregluyfirvalda enda eru ásakanirnar litnar mjög alvarleg- um augum. Einn fjórmenninganna er starfs- maður lögreglunnar en hann neit- ar staðfastlega að hafa haft vit- neskju um iðju hinna læknanna þriggja. ■ Spilltir norskir læknar: Sagðir hafa falsað vottorð SKOÐANAKÖNNUN Flestir lands- menn eru ánægðir með störf Geirs H. Haarde utanríkisráð- herra af ráðherrum ríkisstjórnar- innar, samkvæmt skoðanakönnun Gallup. Tæplega sextíu prósent svarenda voru ánægðir með störf Geirs og hefur ánægja með störf hans aukist um rúm tíu prósent frá því í apríl. Rúmlega 80 prósent sjálfstæð- ismanna eru ánægðir með störf Geirs, en mest hefur ánægjan aukist meðal stuðningsmanna ann- arra flokka. Um 70 prósent framsókn- armanna sögðust ánægðir og rúm 53 prósent Sam- fylkingarfólks. Minnst ánæ- gja með störf Geirs er meðal stuðningsfólks vinstri grænna, en einungis 34 prósent þeirra voru ánægðir með störf hans. Næst mest ánægja er með störf Þorgerðar K. Gunnarsdótt- ur menntamálaráðherra, en rúm- lega 52 prósent þjóðarinnar er ánægð með hennar störf. Þar til nú hefur minnsta ánægjan verið með störf Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra, en nú eru það störf Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra sem minnst ánægja er með, en rúmlega 22 prósent sögðust ánægð með hans störf. Af ráðherr- um Framsókn- arflokks er mest ánægja með störf Guðna Ágústs- sonar landbún- aðarráðherra en rúmlega 49 pró- sent eru ánægð með störf hans. Það er nokkru meira en í apríl, þegar hlutfallið var rúm 38 prósent. Min- nst er ánægjan með störf Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra af ráðherrum Framsóknarflokks, en 33,5 prósent voru ánægð með störf hans. Það er aðeins meira en í apríl þegar 27,9 prósent voru ánægð með störf hans. Mest er ánægjan meðal framsóknarmanna, tæp 73 prósent. 47,4 prósent sjálfstæð- ismanna eru ánægðir með störf forsætisráðherra, 23,2 prósent samfylkingarfólks og 8,2 prósent stuðningsmanna vinstri grænna. Spurt var: Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með störf Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra? Eins var spurt um alla ráðherra í ríkisstjórninni og var röð þeirra breytt á milli viðtala. Úrtakið var 1.227 manns á aldrinum 18 til 75 ára. Svarhlutfall var um 62 pró- sent. svanborg@frettabladid.is Mest ánægja með störf Geirs Haarde Ánægja landsmanna með störf utanríkisráðherra og landbúnaðarráðherra hefur aukist mjög á hálfu ári. Dómsmálaráðherra vermir botninn í könnun Gallup. DÓMSMÁL Stjórnarformaður, stjórn- ar maður og framkvæmda stjóri hluta fél ags ins Ísvár voru dæmdir í þrigg ja mánaða fang elsi fyrir að standa ekki skil á opin ber um gjöld- um árið 2002. Dómurinn, sem var upp kveð- inn í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, er skilorðsbundinn í tvö ár hjá mönn unum þremur. Tveir þurfa að borga 1,5 milljónir króna í sekt og sá þriðji 1,2 milljónir. Í dómsorðinu segir að ágrein- ings laust hafi verið að fyrirtækið hafi ekki staðið skil á gjöldum en deilt hafi verið um hver hafi átt að bera ábyrgð á skilunum. Enginn mannanna vildi viður- kenna að hafa borið ábyrgð á dag- legum rekstri fyrirtækisins. Dóm- urinn kvað þá ekki geta firrt sig skyldum sínum með því að benda hver á annan. - óká Þrír dæmdir fyrir fjársvik: Báru hver annan sökum BANDARÍKIN, AP Sameinuðu þjóð- irnar hafa afþakkað boð Banda- ríkjamanna um að þau heimsæktu Guantanamo-fanga- búðirnar á Kúbu. Þetta stafar af því að fulltrúar samtak- anna áttu ekki að fá að ræða einslega við fangana meðan á heimsókninni stæði. Vel á fjórða ár er liðið síðan Sameinuðu þjóðirn- ar óskuðu eftir því að fá að skoða aðstæður í fangelsinu en það var ekki fyrr en nýlega sem varnar- málaráðuneyti Bandaríkjanna samþykkti beiðnina, en með fyrr- nefndu skilyrði. Um 500 fangar eru vistaðir í fangelsinu á Guantanamo en flestir voru handteknir í Afgan- istan eftir innrás Bandaríkjamanna í landið haustið 2001. Síðan þá hafa meintar pyntingar á föngunum ítrekað verið gagnrýndar. ■ Guantanamo-fangelsið: Heimsókn SÞ- fulltrúa aflýst GEIR H. HAARDE BJÖRN BJARNASON STURLA BÖÐVARSSON EINAR K. GUÐFINNSSON ÁRNI M. MATHIESEN SIGRÍÐUR A. ÞÓRÐARD. ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR HALLDÓR ÁSGRÍMSSON GUÐNI ÁGÚSTSSON JÓN KRISTJÁNSSON ÁRNI MAGNÚSSON VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR apríl 2004 október 2004 apríl 2005 október 2005 apríl 2004 október 2004 apríl 2005 október 2005 60,9% 52,4% 33,7% 50,5% 25,9% 34,6% 50,7% 49,4% 46,1% 38,2% 32,9% 27,9% 32,1% 50,4% 44,2% 41,1% 33,5% GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 01.11.2005 Gengisvísitala krónunnar 60,62 60,9 107,3 107,82 72,78 73,18 9,749 9,807 9,35 9,406 7,601 7,645 0,52 0,523 87,42 87,94 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 102,3125 MANFRED NOWAK Vinsældir ráðherra Sjálfstæðisflokks Vinsældir ráðherra Framsóknarflokks Enginn viðbótardómur 23 ára manni var ekki gerð viðbótar refsing fyrir brot sem hann framdi áður en hann var dæmdur í hálfsárs fangelsi skilorðs- bundið í fimm ár í byrjun árs fyrir brot árið 2004. Hann hafði ekið of hratt og stolið stolið 30.000 krónum af greiðslu- kortum í veski sem hann fann. HÉRAÐSDÓMUR BJARTSÝNISVERÐLAUN Tónlistar- manninum Ragnhildi Gísladóttur voru í gær veitt Íslensku bjart- sýnisverðlaunin. Forseti Íslands afhenti henni verðlaunin við athöfn í Íslensku óperunni. Ragnhildur er lærður tón- menntakennari en leggur nú stund á nám í tónsmíðum við Listahá- skóla Íslands. Ragnhildur hefur verið áberandi í íslensku tónlist- arlífi í þrjá áratugi. Hún stofnaði kvennarokksveitina Grýlurnar og gekk til liðs við Stuðmenn árið 1984. ■ Íslensku bjartsýnisverðlaunin: Ragga Gísla heiðruð RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR Forseti Íslands afhenti Röggu verðlaunin í gær. BJÖRGUN TF-LÍF, þyrla Landhelgis- gæslunnar, sótti í gærmorgun veikan sjómann á togaranum Guðmundi í Nesi, sem þá var staddur 85 sjómílur út af Patreksfirði. Þyrlan lenti á Reykjavíkur- flugvelli í hádeginu og maðurinn fluttur með sjúkrabíl síðasta spölinn á Land- spítala-háskólasjúkrahús við Hringbraut. LANDHELGISGÆSLAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.