Fréttablaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 16
2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR16
fréttir og fróðleikur
Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur
leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða
ofbeldi. Síðan húsið var opnað árið 1998 hafa
alls 915 börn komið í skýrslutökur og könnun-
arviðtöl.
Hvers vegna var Barnahús stofnað?
Barnahúsi var komið á laggirnar eftir að
Barnaverndarstofa gerði könnun á nýgengni
kynferðisbrota gegn börnum og afdrifum
málanna í barnaverndar- og réttarvörslukerfinu,
og komst að því að stundum þurftu börnin að
margendurtaka sögur sínar. Húsið var byggt á
bandarískum fyrirmyndum og er hugmynda-
fræðin að baki þess tvíþætt: annars vegar að
koma í veg fyrir endur tekið áfall hjá barninu,
hins vegar að reyna að upplýsa málið eins
vel og unnt er. Hjá Barnahúsi starfa kvensjúk-
dóma- og barnalæknar, hjúkrunarfræðingur,
félagsráðgjafi, uppeldis- og afbrotafræðingur
og sálfræðingur. Sérfræðingar þessir hafa sótt
námskeið í yfirheyrslu barna í Bandaríkjunum.
Hvernig starfar Barnahús?
Barnahús er rekið af Barnaverndarstofu, sem
fer með stjórn barnaverndarmála í umboði
félagsmálaráðuneytisins. Húsið, sem er í
grónu íbúðarhverfi í Reykjavík, sinnir börnum
hvaðanæva af landinu, og fara sérfræðingar í
heimahéröð barnanna sé þess óskað. Flest eru
börnin á aldrinum sex til níu ára og greina 73
prósent allra barnanna sem koma í Barnahús
frá kynferðisofbeldi. Læknisfræðileg sönnunar-
gögn finnast eingöngu í fimm til tíu prósentum
tilvika, og því er það afar mikilvægt að rétt sé
staðið að skýrslutökunni og stuðst við bestu
fáanlega þekkingu við framkvæmd hennar.
Barnahús veitir einnig barnaverndarnefndum,
kennurum, leikskólakennurum, heilbrigðis-
starfsfólki og fleiri aðilum leiðbeiningar um
hvað skuli gera ef grunur um kynferðisofbeldi
vaknar, sem og ráðgjöf til foreldra barnanna.
FBL GREINING: BARNAHÚS
Barnvænar yfirheyrslur
Kvennaathvarfið
fékk á dögunum
óvænta styrki
að verðmæti 1,1
milljón króna.
Drífa Snædal,
fræðslu- og
framkvæmdastýra
athvarfsins segir
að fénu verði
varið í sjálfshjálp-
arhópa og ætti
fjárhæðin að
nægja næstu tvö árin.
Hvað eru sjálfshjálparhópar? Það
eru sjálfstyrkingarhópar þar sem konur
hittast í lokuðum hópi og styrkja
hverja aðra. Yfirleitt eru þetta konur
sem eru lausar úr ofbeldissambönd-
um en eru að glíma við afleiðingarnar.
Það hefur gefist afskaplega vel á
mörgum stöðum og gerir það hjá
okkur líka.
Taka margar konur þátt í hópunum?
Sex til átta konur taka þátt í hvert
skipti. Við hjá Kvennaathvarfinu rekum
einn hóp í einu. Hópurinn hittist tíu
sinnum með leiðbeinanda. Þeim er
svo boðið að halda áfram án leiðbein-
andans.
Hvað heldur þú að margar konur
hafi tekið þátt í hópunum frá upp-
SPURT & SVARAÐ
STYRKUR TIL KVENNAATHVARFS
Milljón í
sjálfshjálp
DRÍFA SNÆDAL
Fræðslu-og fram-
kvæmdastýra
kvennaathvarfsins
FUGLAFLENSAN VEKUR
ÓTTA Á ÍSLANDI
HUNDRUÐ
FUGLA Í
BLÓÐPRUFU
DV2x15-lesið 1.11.2005 20:29 Page 1
Enn bíða erfið verk hjálp-
arstarfsmanna á hamfara-
svæðunum í Pakistan eftir
jarðskjálftann 8. október
síðastliðinn. Yfirvöld í
landinu áætla að 55 þúsund
manns hafi týnt lífi, 78
þúsund manns slasast og 3
milljónir misst heimili sín.
Sólveig Ólafsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi hjá alþjóðasam-
bandi Rauða krossins er í
norðvestur hluta Pakistan
og lýsir þeim vanda sem við
mönnum blasir þar.
„Ég hef starfað nokkuð lengi
við hjálparstörf víðs vegar um
heim en ég verð að segja það að
þó ég sé upplýsingafulltrúi þá
á ég varla til orð sem lýsa því
ástandi sem við manni blasir
hér,“ segir Sólveig. „Það eru
hreinlega heilu fjallaþorpin
sem hafa hrunið niður hlíðarn-
ar og það er gjörsamlega ekk-
ert eftir. Ekki bætir svo úr skák
að nú er vetur að ganga í garð
og nú þegar er hitinn kominn
niður við frostmark á kvöldin.
Því liggur mikið við að reyna að
koma fólkinu til hjálpar áður en
það fer að snjóa.
Bersýnilegur árangur af starfinu
„En aftur á móti fallast mér ekki
hendur því að maður sér það
greinilega að starf Rauða kross-
ins er að bera mikinn ávöxt. Ég
sá það vel um daginn þegar ég
fór til 30 þúsund manna bæjar
sem heitir Balakot en þar eru
nær allir heimilislausir eftir
hamfarirnar. Þar er hins vegar
búið að dreifa hjálpargögnum
og komið hefur verið á lagg-
irnar vatnshreinsistöð svo allir
hafa aðgang að hreinu vatni.
Þetta hefur þýtt það að tölu-
vert hefur dregið úr sjúkdómum
og ástandið þarna er svo miklu
betra en í þeim þorpum þar sem
enn hefur ekki tekist að koma
fólki til aðstoðar vegna þess að
samgöngur liggja alveg niðri.
Þannig að maður sér að þetta er
að skila árangri og það stappar
í manni stálinu.“
Enn fjöldi fólks án aðstoðar
„Við vorum að byrja í fyrradag
á því að koma hjálpargögnum
til afskekktari svæðana með
þyrlum en samgöngur liggja
niðri mjög víða.
Það liggur mjög mikið á því
að koma fólki þar til hjálpar því
víða verður orðið nokkuð snjó-
þungt í lok mánaðarins. Í gær
komum við hjálpargögnum til
300 fjölskyldna en enn er mik-
ill fjöldi fólks sem aðstoð okkar
hefur ekki náð til.“
Dáist af lífsvilja fólksins
„Það getur vissulega verið erf-
itt að standa frammi fyrir fólki
sem allt hefur harmasögur að
segja og geta aðeins hjálpað því
að ósköp takmörkuðu leyti. En
það sem hjálpar manni við þær
aðstæður er að fólkið fagnar því
að sjá annað fólk sem er komið
víða að og verða þannig vart við
það að heimsbyggðinni stendur
ekki á sama. Svo þykir fólki gott
að rekja raunir sínar og létta af
harmi sínum. Þess vegna lít ég
svo á að sem upplýsingafulltrúi
sé ég ekki aðeins að ná upplýs-
ingum frá fólki heldur komi ég
því að einhverju gagni.
En það sem gefur manni hvað
mest er að verða vitni að því
hvað ótúlegur lífvilji og þrótt-
ur virðist leysast úr læðingi hjá
mannfólkinu þegar hörmungar
dynja yfir. Ég fyllist aðdáun
þegar ég verð vör við þennan
kraft í fólki og ég veit það að
hjálpargögn og aðstoð koma að
gagni en það sem mestu ræður
um örlög fólksins er þessi lífs-
vilji þess. Kraftaverkin gerast
þega hann er til staðar en án
hans er þetta vonlítið.“
Fastandi hjálparstarfsmenn
„Það er að mörgu að hyggja í
þessu starfi mínu sem upplýs-
ingafulltrúi. Það er sífellt verið
að endurmeta aðstæður og laga
allar áætlanir eftir því þannig
að ég verð að fylgjast vel með á
öllum stöðum svo ég sé alltaf að
gefa réttar upplýsingar.
Svo verður maður að taka
tillit til þeirrar menningar sem
hér ríkir en ég vinn mjög mikið
og náið með heimamönnum.
Þannig vill nú til að þetta ber
upp á Ramadam sem er helgas-
ta og mesta hátíð múslima og
þá ber þeim að fasta frá sólar-
upprás til sólarlags. Þetta vilja
flestir samstarfsmenn mínir
frá pakistanska Hálfmánan-
um (Rauði krossinn í Pakist-
Hjálpargögn eru góð en vilji
til að lifa ræður úrslitum
SVONA ERUM VIÐ
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005
531
1.465
FJÖLDI BARNA AÐ TVEGGJA ÁRA ALDRI Á
LEIKSKÓLUM SEM VER ÞAR NÍU KLUKKU-
STUNDUM EÐA LENGUR Á DAG
KONUR OG BÖRN Konur rekja raunir sínar
fyrir Sólveigu og aðra hjálparstafsmenn.
Það getur tekið á að heyra harmasögur
sem hver hefur að segja á þessum slóðum.