Fréttablaðið - 02.11.2005, Page 23

Fréttablaðið - 02.11.2005, Page 23
[ ] FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL SMÁAUGLÝSINGAR Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar SMÁAUGLÝSINGAR SÍMI: 550 5000 ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is Haukur Pálsson er nemandi á öðru ári í Kvikmyndaskóla Íslands. Hann hefur alltaf haft mikinn áhuga á kvikmyndum og gerði sína fyrstu stuttmynd þegar hann var 12 ára. Haukur ákvað að fara í kvikmyndaskólann eftir að vinur hans hafði farið í skólann og hann sá hvað námið var spennandi. Hann segir að skólinn sé fjórar annir og tekið sé inn í hann bæði á haustin og um áramótin. „Vinur minn er til dæmis að klára um jólin en ég klára í vor,“ segir Haukur. Haukur segir að námið í Kvikmynda- skólanum sé aðallega verklegt. „Við fáum reyndar nokkrar bækur og förum í ein- hverja bóklega tíma. Við förum til dæmis í kvikmyndaskoðun þar sem við horfum á bíómyndir og tölum um þær með leikstjór- um og kvikmyndafræðingum. Það eru allt- af einhverjir nýir að koma frá útlöndum og sennilega hafa flestir íslenskir kvikmynda- gerðarmenn eitthvað kennt hérna.“ Haukur segir að í skólanum sé allt sem tengist kvikmyndagerð kennt. „Við lærum framleiðslu, skipulagningu, handritsgerð, upptöku og klippingu og svo erum við með frumsýningu á því sem við gerum.“ Hann segir að námið sé mjög skemmtilegt en honum finnst samt lang skemmtilegast að taka upp. Haukur segir að sex vikur af náminu séu starfsnám. „Ég var í starfsnámi í síðustu viku hjá RÚV og núna er ég hjá Saga Film. Svo var ég líka á Ástarfleyinu,“ segir hann. Haukur stefnir á að fara í framhalds- nám í kvikmyndagerð þegar hann er búinn með kvikmyndaskólann. „Mig langar að fara til Danmerkur og svo væri ég líka til í að fara til Austur-Evrópu.“ Hann segir að margir Íslendingar fari til Prag að læra kvikmyndagerð. „Það er mjög hagkvæmt að fara þangað og svo er mikil kvikmynda- menning þar.“ emilia@frettabladid.is Langar til Austur-Evrópu Góðan dag! Í dag er miðvikudagur 2. nóvem- ber, 306. dagur ársins. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 9.14 13.11 17.07 Akureyri 9.09 12.56 16.42 Heimild: Almanak Háskólans KRÍLIN Það var miklu skemmtilegra í skólanum í gamla daga, þá voru ekki steinar í sandkassanum! Haukur Pálsson er í starfsþjálfun hjá Saga Film. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ICEMUN Íslenskir háskólanemar í líki Sameinuðu þjóðanna bls. 2 FRAMTÍÐARMAÐUR Garpur Hnefill spáir í lífið og tilveruna bls. 3 NEW YORK Stóra eplið hefur upp á allt að bjóða bls. 4 Myndakvöld verður hjá Útivist næsta mánudagskvöld, 7. nóv- ember kl. 20 í Húnabúð, Skeif- unni 11. Sýndar verða myndir úr hópferð Íslendinga til Afríku í febrúar sl. Meðal annars af göngu á Kilimanjaro, safaríferð um þjóðgarð í Kenía og mannlífi í Afríku. Aðgangseyrir er 700 krónur og inni í því er klassískt kökuhlaðborð Útivistar. Verðmat fyrirtækja nefnist tveggja kvölda námskeið sem Anna Linda Bjarnadóttir héraðs- dómslögmaður heldur í Húsi verslunarinnar og hefst á morg- un, 3. nóvember kl. 17-20. Þar kennir hún lestur ársreikninga. Kristján M. Bragason fjármála- verkfræðingur flytur fyrirlestur um verðmat. Nánari námskeiðs- lýsing er á www.isjuris.is Íslenskukennsla fyrir innflytj- endur er nú í boði hjá Alþjóða- húsinu þar sem lögð er áhersla á vinnustaðatengt mál. Ingibjörg Hafstað hefur umsjón með kennslunni. Og Vodafone hefur gefið út bækling sem er ætlaður foreldr- um og forráðamönnum barna. Þar er fjallað um hvernig börn og unglingar geta notað farsíma með öruggum og ábyrgum hætti. Einnig ýmsar hliðar farsímanotk- unar og hvenær börn hafi þroska til að nota farsíma. LIGGUR Í LOFTINU [ FERÐIR - NÁM - BÖRN ] � � � � � � � � � � � � ���������������������������� ����������������������������������������� ChristmasKopar, dimmrautt og perluhvíttJ��������������������������� ������������� ��������������������������������� ��������������

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.