Fréttablaðið - 02.11.2005, Page 25
[ ]
Garpur Hnefill Valsson er fjög-
urra ára og stundar leikskól-
ann Leikgarð.
Við hefjum umræðurnar á fyrsta
snjó vetrarins.
„Mér finnst gaman að leika mér
í snjónum, renna mér á þotu og
líka gaman að stíga ofan í kaf því
þá kemur svona mjúkt á hárið svo
hárið verði alveg blotnað. En veistu
að í húsinu við hliðina er frændi
minn og hann er með fugl og geim-
flaug sem er hægt að láta fljúga.“
Má hann vera með dót í vinn-
unni? „Já, stundum. Hann er V- og
svo kemur o með tveimur punkt-
um yfir og svo kemur r og svo
kemur d með striki í gegnum og
svo u og svo r.“
Hvað ætlar þú að gera þegar þú
verður stór?
„Ég ætla að verða fréttamaður
og vörður. Ég ætla að vera alls-
kynsfréttamaður, bæði í blöðum
og sjónvarpinu.“
Hvað finnst þér skemmtilegast
að lesa í blöðunum?
„E-m-nemm, allt sem er um
Eminem. Hann með rapphúfu
sem snýr öfugt. Mig langar líka
að verða rappari. Mig langar að
vera allskyns. Strætómaður og
byggingamaður og fréttamaður
og þingmaður og vörubílamað-
ur og gröfumaður og læknir og
flytjumaður.“
Hvað ætlarðu að gera þegar þú
verður þingmaður?
„Veistu að á þinginu þar er
svona gat í veggnum og þá heyrir
maður hvíslað í eyrað?“
Langar þig að breyta einhverju?
„Mig langar að breyta nafninu
mínu. Mig langar að heita Úlfur,
það er kisa með mikið hár. Kisan
mín, hann átti bróður sem hét
Rjómi. Og líka einn sem hét Krús-
ilíus eins og í laginu.“
En hvað þýðir nafnið þitt? Þýðir
það kannski hetja?
„Veistu, að þegar ég fæddist
urraði ég og var mjög sterkur. Ég
borðaði líka grænmeti á leikskól-
anum í súpu.
Stundum fæ ég vondan mat
þar og stundum góðan mat. Besti
maturinn er grjónagrautur og
hafragrautur og kakósúpa. Mér
finnst líka gott spaghettí en ekki
svona hakkkjöt með tómat.“
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera?
„Mér finnst skemmtilegast að
tala í diktafón og skrifa á töflu
og veistu að þegar var konudagur
var Fréttablaðið bleikt, ég hélt að
það væri kalladagur, en veistu að
ég ætla að safna fullt af pening-
um, veistu hvað miklu? Milljón!
Og kaupa bíl og bland í poka fyrir
afganginn. Svo ætla ég að kaupa
gjöf handa mömmu en það er
leyndarmál.“
Fréttamaður, þingmaður
og vörður
hafa flest mjög gaman af því að skrifa bréf og fá bréf. Foreldrar geta hjálpað
börnunum sínum að skrifa bréf og senda vinum eða ættingjum. Þau sem
ekki geta skrifað geta líka bara teiknað mynd. Skemmtanagildið er það sama.
Börn
TVÖ ÞRÓUNARVERKEFNI Á LEIK-
SKÓLUNUM RAUÐUBORG OG
HAMRABORG FENGU NÝLEGA STYRK
ÚR ÞRÓUNARSJÓÐI LEIKSKÓLA.
Verkefnið sem var unnið á Rauðu-
borg heitir Litlu manneskjurnar á
leikskólunum og í því var stuðst við
bókina People Under Three: Young
Children in Day Care. Verkefnið
eykur samskiptahæfni barna og
virðingu þeirra fyrir hverju öðru
og er starfsfólk Rauðuborgar mjög
ánægt með það.
Hitt verkefnið sem var unnið á
Hamraborg heitir Vísindaleikir í
leikskólanum og var það unnið af
leikskólakennurum og sérfræðingum
í náttúruvísindum. Verkefnið gengur
út frá því að börnin læri ýmis vísindi
í gegnum leiki.
Lært í gegnum leiki
Garpur Hnefill Valsson ætlar sér ýmislegt í framtíðinni.
Hamraborg 7 • Kópavogi • Sími 564 1451
www.modurast.is
SKEIFAN 8 • Sími 568 2200 • Fax 568 2203
SMÁRALIND • Sími 534 2200 • www.babysam.is
Skeifan opið laugardag 10-16
Smáralind opið laugardag 11-18
Smáralind opið sunnudag 13-18
Verið velkomin
í krúttlegustu
barnabúðina
í bænum
Smáralind sími 517-5330 www.adams.is adams@adams.is
Frábært úrval af
jólafötum.
NÝ SENDING
Jólanáttföt og
náttkjólar
Verð frá 1395.-
Laugaveg 53 s. 552 3737
Opið mán. - föst. 10 -18.
Laugard. 10 -16