Fréttablaðið - 02.11.2005, Page 26
[ ]
Í New York má finna fjölskrúð-
ugt mannlíf og litríka menningu.
Ferðamanni sem kemur í fyrs-
ta skipti til New York nægir að
standa skamma stund á Times
Square til að verða fyrir hug-
hrifum og fá kjarna borgarinnar
beint í æð. Þó svo sögur gangi
um að íbúar New York séu harðir
og kjaftforir koma þeir fram við
ferðamenn eins og þeir séu inn-
fæddir.
Manhattan-eyja hefur verið sá
staðir sem flestir ferðamenn hafa
látið sér nægja að skoða en nú er
Brooklyn-hverfið farið að veita
Manhattan harða samkeppni.
Flugleiðir eru eina flugfélagið
sem flýgur í beinu flugi frá Íslandi
til New York. Á heimasíðu þeirra
má finna ógrynni af upplýsingum
um borgina. Hluti þeirra er birt-
ur hér. Listinn er þó engan veg-
inn tæmandi og áhugasamir New
York-farar hvattir til að kynna sér
borgina vel áður en lagt er í hann.
Hverfi sem vert er að sjá
GREENWICH VILLAGE/MEATPACKING
DISTRICT
Village er gamla listamannahverf-
ið á Manhattan. Á 14. stræti er
Meatpacking district sem nú er
óðum að gæðast lífi.
SOHO/TRIBECA
Iðandi mannlíf, spennandi gall-
erí, veitingastaðir og verslanir.
Tribeca er rólegra hverfi en Soho
og vinsælla af íbúum borgarinnar.
WILLIAMSBURG Í BROOKLYN.
Heimilislegra en Manhattan,
rólegt hverfi með stórt hjarta og
iðandi mannlíf innfæddra. Þaðan
má svo skella sér til Coney Island
en þar þykir stemningin engu lík.
EFRI HLUTI FIFTH AVENUE OG MADISON
AVENUE.
Skýjakljúfar, stórar verslanir og
nálægð við Central Park.
Stóra eplið
New York er ekki eingöngu þekkt fyrir háa skýjakljúfa og frelsistyttuna. Borgin hefur upp á allt
að bjóða sem ferðamaður sækist eftir: saga, minjar, söfn, stór mannvirki, mannlíf, menning og
skemmtanalíf.
til annarra landa mega taka langan tíma í undirbúningi. Það getur
verið gaman að eyða nokkrum mánuðum í að lesa sér til um sögu
landsins sem fara á til og jafnvel læra eitthvað í tungumálinu.
Ferðir
Heimsborgin París heillar marga
enda rík af spennandi byggingum,
verslunum, söfnum og veitinga-
stöðum svo nokkuð sé nefnt.
Ferðaskrifstofan Terra Nova setur
saman dagskrárpakka fyrir hópa eftir
óskum þeirra og þörfum og útvegar
gistingu á góðum hótelum. Meðal
þess sem hún hefur upp á að bjóða
er þjónusta fararstjóra í kynnisferð-
um, sigling á Signu og kvöldverður
á glæsilegum og sögufrægum
veitingastað.
Siglt á Signu
TERRA NOVA SÓL BÝÐUR UPP Á
ÝMSA SPENNANDI KOSTI FYRIR
HÓPA Í PARÍS Í VETUR.
�������������������������������� ����������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
���������������������������������������
��������������������������������������������
���������������
���������������������������������
�������������������
���������������
������������������ ���������������
�����������������������������
Eiffelturninn er eitt af táknum Parísar.
Times Square.
Central Park að hausti til.
Á DÖFINNI Í NEW YORK
6. NÓVEMBER Maraþonhlaup í New
York
10.-13. NÓVEMBER Súkkulaðisýning
21. OG 22. NÓVEMBER U2 heldur tón-
leika í Madison Square Garden
27. NÓVEMBER Macy‘s Þakkargjörðar-
hátíðarskrúðgangan
8.-12. DESEMBER Sýning á antikmun-
um
Big Apple Sirkus sýnir TIL 8. JANÚAR
Ísskautar í Rockefeller Center TIL 19.
JANÚAR
19. JANÚAR Martin Luther King-skrúð-
gangan
Þitt fólk á aðeins það besta skilið…
Jólahlaðborð
Valhallar
nýr kostur á markaðnum
Villibráðahlaðborð föstudag, 4.nóv og laugardag 5.nóv að
hætti Úlfars Finnbjörnssonar. Minnum á jólahlaðborðið.”
Yfir borðhaldi á föstudags- og laugardagskvöldum mun
Védís Hervör sjá um að halda uppi notalegri jólastemningu við
undirleik Valda úr Bang Gang.
Við minnum á að nú er opið á Hótel Valhöll allan ársins hring og tilvalið að nýta sér frábæra gisti-
pakka Valhallar og dekra við sig í skammdeginu.
Frábær þriggja rétta óvissumatseðill sem svo
sannarlega hefur slegið í gegn.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu okkar
www.hotelvalholl.is
Hótel Valhöll, Þingvöllum / S: 480-7100
hotelvalholl@hotelvalholl.is
Helgarferð á Snæfellsnes
Gengið um fallega náttúru undir Jökli
Áhugavert svæði til vetrarútivistar.