Fréttablaðið - 02.11.2005, Síða 42
Aukið
rekstraröryggi
Nýstofnað dótturfyrirtæki Pennans býður eigendum
Kyocera-ljósritunarvéla og prentara upp á sérstaka þjón-
ustu og er biðtíminn eftir viðgerðarmanni eingöngu
tveir til þrír tímar.
Áður en strokleðrið kom til sögunnar var hvítt
brauð notað til þess að þurrka út blýant og kol
og listamenn sem vinna með kol nota það
jafnvel enn þann dag í dag. Heiðurinn að fyrsta
strokleðrinu á enski verkfræðingurinn Edward
Naime, sem fyrir tilviljun notaði gúmmí í stað
brauðs til að þurrka út blýantsstrik. Í kjölfarið
fór hann að selja strokleður dýrum dómum árið
1770.
En eins og brauð skemmist hrátt gúmmí
fljótlega, sem varð til þess að Charles Goodye-
ar fann aðferð árið 1839 til að herða gúmmíið
og láta það endast. Aftur á móti var það hinn
bandaríski Hyman Lipman sem var fyrstur til að
setja strokleðrið aftan á blýantinn árið 1858.
2 ■■■■ { skrifstofan } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Hvítt brauð sem
strokleður
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
/G
ET
TY
I
M
AG
ES
sögumoli }
„Penninn er að stórbæta þjónustu
við mjög kröfuharða viðskiptavini
sem stóla á rekstraröryggi,“ segir
Jón S. Garðarsson, framkvæmda-
stjóri Pennans tækni, nýstofnaðs
dótturfyrirtækis Pennans.
Fyrirtækið selur Kyocera-ljósrit-
unarvélar og prentara, sem hægt er
að bæta skanna og faxi við og gera
að fjölnotatækjum. Tæki þessi eru
mjög endingargóð, enda notar jap-
anska fyrirtækið Kyocera keramik
við framleiðslu á vélunum, sem er
mjög hart efni. Þar af leiðandi hafa
íhlutir í tækjum Kyocera mjög
langan endingartíma, sem tryggir
lágan viðhaldskostnað, að sögn
Jóns.
Penninn byrjaði að selja Mita-
ljósritunarvélar árið 1978 og þegar
Mita sameinaðist Kyocera um miðj-
an tíunda áratuginn hóf Penninn
innflutning á Kyocera-vélunum. Á
þeim tíma framleiddi Kyocera ein-
göngu prentara.
„Þegar fyrirtækin sameinuðust
varð Kyocera mjög öflugur fram-
leiðandi bæði á ljósritunarvélum og
prenturum,“ segir Jón og bætir við
að Kyocera-fyrirtækið sé afar um-
hverfisvænt í öllum sínum störfum.
„Með því að stofna þetta dóttur-
fyrirtæki erum við að gera þetta
skilvirkara og hafa ljósritunarvéla-
söluna og -viðgerðir á einni hendi
inni í einu fyrirtæki, sem er miklu
sprettharðara en stór heild eins og
Penninn er,“ segir Jón. Þó verður
áfram hægt að kaupa Kyocera-
vélarnar í verslunum Pennans og
Pennavina um allt land, en verð
þessara véla er sambærilegt við
aðrar tegundir í innkaupum, að
sögn Jóns.
Sex þjónustumenn starfa hjá
fyrirtækinu, en áður voru þeir þrír,
og telur Jón að viðbragðstími
þeirra við bilunarútköllum verði
eingöngu tveir til þrír tímar að
meðaltali. Jón S. Garðarsson er framkvæmdastjóri nýs dótturfyrirtækis Pennans sem sér um að selja og þjónusta Kyocera-ljósritunarvélar.
Stílhrein og svöl
Nútímaskrifstofan kallar á að rýmið sé vel nýtt án þess að fólk finni fyrir þrengslum.
Nútímaskrifstofan er fyrst og
fremst stílhrein og svöl. Húsgögn-
in eru í gráum tónum, eða svört-
um og stál og ál áberandi. Leitað
er leiða til að fela snúrur og sem
minnst haft upp á borðum, enda
eru þau nett og taka sem minnst
pláss. Skjalaskápar, hillur og
fleira eru lokaðir þannig að papp-
írar, möppur og fleira er falið.
Húsgögnin á myndunum eru frá
A. Karlssyni og eru seld í eining-
um, sem auðveldlega er hægt að
pússla saman eftir eigin höfði.
Mikið er notað af stáli og allar
snúrur eru settar í stokka eða
jafnvel þræddar upp innanverða
fæturna. Flatskjái er hægt að
festa á arm við borðið, svo hann
tekur ekki upp borðpláss.
Skrifstofustóllinn #19 er hannaður
af Marcus Koepke og hefur unnið til
fjölda verðlauna fyrir góða og glæsi-
lega hönnun. Mikið er lagt í hann út
frá vinnuvistfræði. Efnið í honum
heldur jöfnu hitastigi, örvar blóm-
streymið, dregur úr vöðvaspennu, og
dreifir þyngdini jafnt.
Hann er hannaður á þann veg að
auðvelt er að setja upp stillingar sem
henta hverjum og einum. Eitt af því
sem gerir hann sérstakan er setan
sem lyftist upp þegar maður hallar
sér aftur, þannig að maður kemst
ekki upp með að sitja í rangri stell-
ingu. Auk þess þykir hann ansi flott-
ur og hefur hann sést á skjánum í
þáttum eins og 24 með sjálfum Ki-
efer Sutherland.
Stóllinn fæst hjá A.Karlsson.
Hugsar vel um líkamann
SKRIFSTOFUSTÓLLINN #19
Myndirnar eru á skrifstofum Ingvars Helgasonar. Húsgögnin eru frá A. Karlssyni.
02-03 skrifstofan lesið 1.11.2005 15:28 Page 2