Fréttablaðið - 02.11.2005, Síða 46
„Líkaminn er gerður til að hreyfa
sig og við þurfum alltaf á hreyfing-
unni að halda, en eftir því sem
störfin verða einhæfari minnkar
hreyfing í starfi.“ segir Auður
Ólafsdóttir, formaður Félags ís-
lenskra sjúkraþjálfara. Hún segir
mestu máli skipta ef fólk situr
mikið við vinnu sína að finna leið-
ir til að hreyfa sig en ekki sitja í
stólnum allan tímann. Aðgerð eins
og að standa upp og ná sér í vatn
eða hlaupa í prentarann geti skipt
sköpum.
„Rannsókn var gerð hér sem
sýndi sýndi að aðalmálið væri að
skipta um stellingu,“ segir Auður.
Rannsóknin sem hún vísar til var
unnin þannig að sett var upp
tölvuforrit hjá þremur hópum af
fólki, einn þeirra fékk fyrimæli um
að gera ekki neitt, annar fékk fyr-
irmæli um að gera sérstakar æf-
ingar, en sá þriðji var bara látinn
standa upp reglulega og ná í
vatnsglas eða eitthvað slíkt. Nið-
urstaðan var sú að álagið var
meira á stoðkerfi þeirra sem sátu
kyrrir allan daginn en þeirra sem
hreyfðu sig. Ekki var munur á
þeim sem gerðu sérstakar æfingar
og þeim sem einungis stóðu upp
og hreyfðu sig.
„Fólk verður að vera vakandi
fyrir því hvað hentar því. Ekki
nægir að sitja í góðum stól, heldur
þarf að nota stillingarnar á honum
reglulega til að breyta um stöðu.
Hvíldin felst í tilbreytingunni,“
segir Auður.
6 ■■■■ { skrifstofan } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
TTT auglýsingastofa/Ljósm
.S
S
J
Mark
skrifstofustólar
Ótrúlegt verð!
Mark er ný og glæsileg lína skrifstofustóla frá
Á. Guðmundssyni ehf. fyrir vinnustaði og heimili.
Stólarnir eru hannaðir af Pétri B. Lútherssyni.
Hæðarstilling
á baki
Pumpa til að
stilla stuðning
við mjóhrygg
Hæðarstillanlegir
armar
Hallastilling
á baki
Sleði til að færa setu
fram og aftur
Mjúk hjól
Hæðarstilling
á setu og baki
Hægt er að stilla stífleika
setu og baks eftir þyngd
notanda
Veltustilling
á setu og baki
TILBO
Ð
Bæjarlind 8-10 • Sími 510 7300 • www.ag.isHeildarlausnir í skrifstofuhúsgögnum
Mark 30 fullt verð kr. 57.855
Tilboðsverð:Kr.40.900
Mark 10 fullt verð kr. 19.900
Tilboðsverð:Kr.13.930
Mark 20 fullt verð kr. 38.010
Tilboðsverð:Kr.26.976
Blóm á skrifstofunni
POTTABLÓM GETA LÍFGAÐ MIKIÐ UPP Á SKRIFSTOFUNA OG
GEFIÐ HENNI HEIMILISLEGRI BLÆ. EN ALVEG EINS OG HEIMA Í
STOFU ÞARF AÐ VELJA TEGUND SEM HENTAR LOFTSLAGINU OG
VELJA BLÓMINU BIRTU VIÐ HÆFI.
Lilja Marteinsdóttir í Breiðholtsblómum segir að best sé að velja harðgerar plöntur á skrif-
stofuna sem þola þurrk, en ekki er úr vegi að vera með árstíðarblóm þar og skipta þeim
út fjórum sinnum á ári.
Oft er þurrt loft í skrifstofubygg-
ingum, svo ekki borgar sig að vera
með blóm sem þurfa mikinn raka,
eins og til dæmis burknategundir.
„Fólk vill oft vera með blóm til að
vera með meiri raka, en málið er að
ef maður setur blóm sem þurfa raka
inn á svona skrifstofur geta þau
ekki lifað þar, svo maður er óbeint
í smá klemmu,“ segir Lilja Mart-
einsdóttir í blómabúðinni Breið-
holtsblómum í Mjóddinni, en Lilja
er menntaður garðyrkjufræðingur,
stílisti og blómaskreytir.
Lausnin er að velja blóm sem henta
umhverfinu og ekki er verra að
velja plöntur sem þola að þorna.
Eins er best að sama manneskjan
sjái alltaf um að vökva, því óregla í
vökvun hefur sömu áhrif á plöntur
og óregla í mataræði hefur á fólk
og getur hreinlega drepið blómin.
Fíkustré og yukkur geta lifað í
þurru loftslagi en vilja mikla birtu
og svo lengi sem nílarsef stendur í
vatni er það hamingjusamt og þarf
litla athygli. Auk þeirra lifa dreka-
tré, flöskuliljur, vaxblóm og mána-
gull vel á skrifstofum, en þó þarf að
hafa birtuna í huga. Aglaoneman
sjómannsgleði er grágræn planta
sem þolir vel bæði dimmu og þurrk
og er því upplögð á skrifstofur þar
sem aldrei er dregið frá.
Ef skrifstofan er grá og leiðinleg er
upplagt að setja plöntuna í litríkan
leirpott til að lífga upp á umhverfið.
Einnig getur líka verið sniðugt að
vera með árstíðarblóm. Um þessar
mundir eru nóvemberkaktusinn og
jólastjarnan sígild, og þegar kemur
fram í janúar eru alparósir mjög
fallegar. Síðan taka páskaliljur við
og svo er hægt að vera með
blómstrandi ástareld yfir hásumarið.
„Þessi blóm færa gleði og maður
þarf bara að sætta sig við að maður
hendir þeim þegar þau hætta að
vera falleg og kaupir ný, enda eru
þau ódýr,“ segir Lilja.
Unnið við bogaborð
Bogaborð eru orðin mjög algeng. Áður fyrr vann fólk við brunna, þar sem
hnappaborðið var á útdragi. Fólk situr þar með hnappaborðið á lærinu og axl-
ir slakar. Við bogaborðin þarf allt annað vinnulag. Fólk situr þá með magann í
boganum og stærsti hlutinn af handleggnum er uppi á borðinu. Ýta þarf
hnappaborðinu upp á borðið og hvíla handleggina á borðinu. Svo til allur
handleggurinn á að hvíla á borðinu. Auk þess þarf að stilla stólinn í samræmi
við þá stellingu. Skjárinn á að vera þannig staðsettur að efri brún hans er í
augnhæð, þannig er aðeins er horft niður á við.
Skiptir mestu
að breyta oft
um stöðu
Auður Ólafsdóttir sjúkraþjálfari segir að einhæfari störf
kallir á minnkandi hreyfingu. Of lítil hreyfing getur vald-
ið álagi á stoðkerfið.
Auður Ólafsdóttir, formaður Félags íslenskra sjúkraþjálfara. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
06-07 skrifstofan lesið 1.11.2005 15:42 Page 2