Fréttablaðið - 02.11.2005, Page 50
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN14
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
Þóranna Jónsdóttir stjórnenda-
ráðgjafi lagði stund á MBA-nám
við IESE í Barcelona. Í skólanum
var nemendum uppálagt að
leggja hug og hjarta í verkin og
þá myndi árangurinn ekki láta á
sér standa. Þar var jafnframt
lögð áhersla á að hafa gaman af
viðfangsefnunum og njóta þess
sem tekist var á við. Að mati
Þórönnu á þetta við í mjög víð-
tækum skilningi. „Njóti maður
þess að læra og þroskast munu
góðar einkunnir fylgja í kjölfar-
ið. Á sama hátt munu fyrirtæki
sem leggja áherslu á og njóta
þess að skapa virði fyrir við-
skiptavini uppskera meiri hagn-
að en þau sem einblína á hagnað-
inn sem slíkan.“ Hún telur þetta
ekki síst eiga við í lífinu sjálfu.
Læra þurfi að njóta ferðalagsins
í stað þess að vera alltaf að bíða
með hamingjuna þar til einum
eða öðrum áfanganum er náð.
Hugmyndir Stepens Covey
sem skrifaði bókina „Seven
habits of highly effective
people“ hafa einnig verið
Þórönnu hugleiknar. Covey talar
um að verkefnum megi skipta í
„mikilvæg“ og „ekki mikilvæg“
og að sjálfsögðu eigi fólk að ein-
beita sér að þeim mikilvægu. Það
reynist þó ekki alltaf auðvelt.
Það sem er hins vegar athyglis-
verðara er að mikilvægu verk-
efnunum má skipta í þau sem eru
áríðandi og þau sem eru ekki
áríðandi. „Það eru oft á tíðum
einmitt þau mikilvægu verkefni
sem eru ekki áríðandi sem eru
stóru verkefnin í lífinu. Til þess
að sinna þeim þarf maður að
gefa sér tíma en ekki bíða þess
að tíminn gefi sig fram,“ segir
Þóranna. - hhs
B E S T A R Á Ð I Ð
Tilviljun frekar en útpæld viðskiptahugmynd
olli því að húsgagnaverslunin Tekk Company
var stofnuð í lok september árið 1998. Hjónin
Elín María Sigurjónsdóttir og Eyþór Kol-
beinsson, sem eiga verslunina ásamt Finni,
bróður Eyþórs, og konu hans Telmu Birgis-
dóttur, voru búsett í Hollandi þegar hug-
myndin fæddist að flytja inn húsgögn. „Við
byrjuðum á því að velja í einn gám sem við
prófuðum á sölusýningu í Blómavali án þess
að vera búin að hugsa eitthvað lengra,“ segir
Elín. Gámurinn kláraðist á stuttum tíma. „Við
hittum á eitthvað sem gekk upp,“ bætir hún
við.
Ákveðið var að stofna húsgagnaverslun
undir nafninu Tekk-Vöruhús í gamla Alaska-
fjósinu í Breiðholti. Þeim bauðst í framhald-
inu að fara inn í Kringluna, sem kom verslun-
inni á lappirnar, og þaðan lá leiðin inn í
Bæjarlind þar sem fyrirtækið hefur tvöfald-
ast að stærð.
Tekk keypti meðal annars húsgagnaversl-
unina Company af Bolla Kristinssyni og sam-
einaði nöfnin í eitt. Er verslunarrýmið nú um
ellefu hundruð fermetrar að flatarmáli.
HLÝLEIKINN Í FYRIRRÚMI
Í atvinnuhverfinu í Lindunum í Kópavogi
hefur safnast saman fjöldi húsgagnaversl-
ana. „Kópavogsmenn vilja meina að þetta
svæði sé miðja húsgagnaverslana,“ segir Ey-
þór. „Við vildum staðsetja okkur
þar sem þessi geiri er.“
Þegar þau eru spurð
um sérstöðu Tekk
svara þau því að þau
horfi ekki mikið á
hvað aðrir geri held-
ur reyni þau að vinna
út frá eigin hugmynd-
um. „Við teljum að okkur
hafi tekist að koma inn á mark-
aðinn með blöndu af húsgögnum og alls
konar gjafavörum en þar höfum við styrkt
okkur að undanförnu. Einnig leggjum við
mikla áherslu á uppsetningu og útlit verslun-
arinnar. Ég vil meina að hlýleikinn sé að jafn-
aði í fyrirrúmi í versluninni en svo getum við
farið út í antíkstíl og nútímastíl á öðrum stöð-
um í henni,“ bendir Elín á.
En hvaðan koma vörurnar? „Við fáum
vörur alls staðar að; frá Hollandi, Belgíu,
Þýskalandi, Spáni og Bandaríkjunum og Asíu.
Tekk er ekki hluti af erlendu merki þannig að
vörurnar eru keyptar frá mörgum framleið-
endum,“ segir Eyþór.
Af einstökum hlutum er salan mest í sóf-
um og borðstofusettum. Leðurhúsgögnin eru
vinsæl sem og húsgögn í hvítu, svörtu og úr
eik. Mikill vöxtur hefur einnig
legið í heimilisvörum, til
dæmis fyrir baðið. Þar
má nefna sölu í hand-
klæðum og öðrum
fylgihlutum. Meðal
vörunýjunga má
nefna nýja línu í amer-
ískum sófum og þá hafa
heimilisvörur frá danska
fatamerkinu Day verið teknar
inn. Hjónin segja að aðall Tekk Companys
sé fjölbreytt lína og mikið úrval.
SPRENGING Á HÚSGAGNAMARKAÐI
Húsgagnamarkaður er mjög öflugur um
þessar mundir og hefur verið stöðugur
tröppugangur öll árin hjá Tekk. Árlegur vöxt-
ur hefur verið að meðaltali þrjátíu prósent og
mun velta fyrirtækisins fara yfir 500 milljón-
ir þetta árið. Þau telja að margt komi við sögu
sem gerði þeim kleift að ná sterki stöðu á
markaðnum. „Eftir á að hyggja var markað-
urinn hugsanlega smá staðnaður þegar við
komum inn. Það var greinilega pláss fyrir
nýja aðila með ferskar hugmyndir.“
Þau benda á að uppgangur á Íslandi síð-
ustu árin skili sér í meiri neyslu almennings
en einnig hafi áhugi aukist mjög fyrir hús-
gögnum og allri umræðu um þau, eins og sést
best á vinsældum innlits- og útlitsþátta og
tímarita um híbýli. „Við finnum fyrir mikilli
eftirspurn eftir því að fá stílista heim til
fólks til að aðstoða það við að velja réttu hús-
gögnin og fá hugmyndir. Við erum með þessa
þjónustu í dag en sjáum þar fyrir okkur
mikla aukningu á næstunni,“ segir Eyþór.
Þau nefna einnig að mikil viðhorfsbreyt-
ing hafi orðið hérlendis sem hafi þanið hús-
gagnamarkaðinn út. Í dag eigi margir sumar-
hús og telji það sjálfsagt að kaupa inn ný og
falleg húsgögn í stað þess að stóla á gamla
sófasettið og lúna borðið. Blómlegur nýbygg-
ingamarkaður hjálpar einnig til.
Eyþór og Elín eru opin fyrir frekari vexti
Tekk Company hér á landi og fylgjast vel
með því sem gerist í kringum þau. Þau eru
sammála um að þetta hafi verið afar
skemmtilegur tími og auðvitað er alltaf gam-
an þegar vel gengur. „Við ætlum að halda
þessu áfram meðan við höfum gaman af
þessu. Við höfum á að skipa góðum hóp af
starfsfólki og stemningin á vinnustaðnum er
góð.“
Tekk Company
Stofnár: 1998
Eigendur: Elín María Sigurjónsdóttir, Eyþór
Kolbeinsson, Finnur Kolbeinsson og Telma Birgisdóttir.
Velta: Yfir 500 milljónir á þessu ári
Fjöldi starfsmanna: Tólf starfsmenn á lager og í
verslun auk fjögurra eigenda.
Í húsgögnin
fyrir tilviljun
Húsgagnaverslunin Tekk
Company nýtur mikilla vinsælda
í þeirri húsgagnasprengingu sem
hefur átt sér stað. Eggert Þór
Aðalsteinsson hitti tvo af eig-
endunum, sem segja að velta
fyrirtækisins fari yfir hálfan
milljarð á árinu.
HEIÐRÚN ÝRR JÚLÍUSDÓTTIR hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri rannsóknar-
sviðs Plexus
Consulting Group í
Washington DC. Fyrir-
tækið er almanna-
tengslafyrirtæki og er
í náinni samvinnu við
KOM Almannatengsl í
Reykjavík og hefur
meðal annars verið ráðgefandi fyrir ís-
lenska sjávarútvegsráðuneytið í Wash-
ington. Heiðrún er stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík og hefur lokið BA-
prófi í alþjóðlegri stjórnmálafræði og
ensku frá háskólanum í Växjö í Svíþjóð.
ALLAN STRAND OLESEN, framkvæmda-
stjóri ISB Luxembourg S.A., hefur verið
ráðinn sem fram-
kvæmdastjóri yfir
starfsemi Íslands-
banka í Benelúx-lönd-
unum, Þýskalandi og
Norðurlöndunum, að
undanskildum Noregi.
Skrifstofurnar í Lúxem-
borg og Kaupmannahöfn verða ábyrgar
fyrir fjárfestingarstarfsemi bankans í
Danmörku, Benelúx-löndunum og Þýska-
landi auk Svíþjóðar og Finnlands. Allan
Strand hefur aðsetur í Lúxemborg.
BJÖRGVIN JÓN BJARNASON er nýr fram-
kvæmdastjóri hjá innanlandssviði Sam-
skipa (Landflutningar-
Samskip). Björgvin er
fæddur árið 1966,
kvæntur Guðlaugu
Sigurðardóttur og
eiga þau þrjú börn.
Hann útskrifaðist sem
iðnrekstrarfræðingur
frá Tækniskóla Íslands árið 1989 og með
BS-gráðu í iðnaðartæknifræði frá sama
skóla 1992. Áður en Björgvin kom til
starfa hjá Samskipum var hann fram-
kvæmdastjóri hjá Síld og fiski ehf. og
Rekstrarfélaginu Braut ehf. frá febrúar
2004. Þar áður starfaði hann sem stjórn-
unarráðgjafi hjá IBM Business
Consulting Service.
RAGNAR ÞÓR RAGNARSSON er nýr fram-
kvæmdastjóri upplýsingasviðs Sam-
skipa. Hann er fædd-
ur árið 1971, kvæntur
Hólmfríði Einarsdóttur
og eiga þau tvö börn.
Hann útskrifaðist með
BS-gráðu í tölvunar-
fræði frá Háskóla Ís-
lands árið 1993 og
MBA-gráðu í „Shipping and Logistics“
frá Copenhagen Business School árið
2005. Ragnar hóf störf hjá Samskipum
árið 1993 sem tölvunarfræðingur og var
deildarstjóri tölvudeildar frá 1996 til
2000 þegar hann varð framkvæmdastjóri
hjá Þróun hf. Árin 2002-2003 starfaði
Ragnar hjá ráðgjafafyrirtækinu Nobex.
Hann réðst til starfa hjá Samskipum á
ný í janúar 2004 sem forstöðumaður
upplýsingatæknideildar.
EYÞÓR KOLBEINSSON OG ELÍN MARÍA SIGURJÓNSDÓTTIR, TVEIR AF EIGENDUM TEKK COMPANY „Við finn-
um fyrir mikilli eftirspurn eftir því að fá stílista heim til fólks til að aðstoða það við að velja réttu húsgögnin og fá hugmynd-
ir. Við erum með þessa þjónustu í dag en sjáum þar fyrir okkur mikla aukningu á næstunni.“
ÞÓRANNA JÓNSDÓTTIR STJÓRN-
ENDARÁÐGJAFI Hennar reynsla er að
leggi maður hug og hjarta í verkin láti ár-
angurinn ekki á sér standa.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
al
li
Að njóta þess að læra
Tekk er ekki hluti af erlendu merki þannig að vörurnar eru keyptar frá mörgum
framleiðendum.
14-15 Markadur lesið 1.11.2005 15:16 Page 2