Fréttablaðið - 02.11.2005, Page 58
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN22
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja er hugtak sem er
sífellt að verða meira áberandi í nútíma viðskipta-
lífi. Það vísar til þeirra skyldna sem fyrirtæki
gegna gagnvart hluthöfum og þeim aðilum sem
fyrirtækin hafa áhrif á. Grundvallarhugmyndin er
sú að fyrirtæki hafi skyldum að gegna í því að bæta
samfélagið.
Á síðustu árum hefur það færst í aukana að
fyrirtæki sýni samfélagslega ábyrgð. Árið 2005
höfðu 52 prósent af stærstu fyrirtækjum heims og
33 prósent af 100 stærstu fyrirtækjum sextán landa
gefið út skýrslur sem fjölluðu sérstaklega um
hvernig þau sinna samfélagslegri ábyrgð sinni.
Þrátt fyrir aukninguna eru þær skoðanir einnig
uppi um að það sé hlutverk ríkisins að styrkja mál-
efni sem þessi en ekki einkafyrirtækja.
Magnús hafði sérstakan áhuga á að kanna hug
stjórnenda bankastofnana á þessu máli. Hann vildi
vita hvaða ástæður lægju að baki þegar ákvörðun
er tekin um að verja fjármunum til menningar-
starfsemi. Auk þess vildi hann kanna hvert umfang
framlags þeirra er. Ásamt Nýsköpunarsjóði náms-
manna styrkti Samband íslenskra bankamanna
verkefnið og Ágúst Einarsson, prófessor við Há-
skóla Íslands, var leiðbeinandi. Magnús sendi for-
svarsmönnum KB banka, Íslandsbanka, Lands-
banka og Sambandi íslenskra sparisjóða fyrir-
spurnir og fékk svör frá öllum viðskiptabönkunum
og 16 af 23 sparisjóðum.
Í niðurstöðum Magnúsar kom ýmislegt áhuga-
vert fram. Sparisjóðirnir og viðskiptabankarnir
þrír, KB banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, telja
sig allir bera samfélagslega ábyrgð. Viðskiptalegar
forsendur tvinnast þar saman við enda færa sumir
bankanna framlögin sem hluta af auglýsinga- og
markaðskostnaði. Þeir telja að slíkur stuðningur
hafi jákvæð áhrif á ímynd fyrirtækisins og að hann
auki virði vörumerkis fyrirtækisins. Einnig að
stuðningur við menningarstarfsemi muni fjölga
viðskiptavinum lítið til skamms tíma en mikið til
lengri tíma.
Framlög flestra bankanna hafa hækkað umtals-
vert síðustu árin. Til að mynda hafa framlög KB
banka farið úr tæpum 67 milljónum árið 1999 í rúm-
ar 147 milljónir árið 2004. Það er að
meðaltali um 14,4 prósenta aukning
milli ára. Framlög Íslandsbanka hafa
farið úr 138 milljónum árið 2002 í
157,6 milljónir nú í ár sem er að með-
altali 4 prósenta aukning milli ára.
Framlög þeirra þrettán sparisjóða af
23 sparisjóðum á landinu, sem gáfu upplýsingar um
framlög til menningarstarfsemi á árunum 2000-
2004, hafa farið úr rúmum 50 milljónum í 125,5
milljónir árið 2004. Það er að meðaltali 20,2 pró-
senta aukning milli ára. Landsbankinn veitir um
100 milljónum árlega.
Hjá öllum bönkum og sparisjóðum fá íþróttirnar
stærstan hluta framlaga, um 37 prósent af heildar-
framlögum. Á eftir íþróttunum koma menning og
listir með að meðaltali 19,7 prósent af heildarfram-
lögum.
Þrátt fyrir að framlög til menningarmála hafi
hækkað töluvert undanfarin ár hafa framlög sem
hlutfall af hagnaði lækkað talsvert í tilfelli við-
skiptabankanna. Framlög KB banka
sem hlutfall af hagnaði hafa farið úr
1,68 prósentum árið 2002 í 0,93 pró-
sent árið 2004 og framlög Íslands-
banka hafa farið úr 4,03 prósentum í
1,23 prósent á sama tímabili. Spari-
sjóðirnir eru að mati Magnúsar öfl-
ugir í að sýna samfélagslega ábyrgð. Þeirra fram-
lag sem hlutfall af hagnaði er talsvert hærra en
viðskiptabankanna og var 2,58 prósent af hagnaði
árið 2004.
Magnús, sem er á þriðja ári í hagfræði við Há-
skóla Íslands, segir margar spurningar hafa vaknað
hjá sér við vinnu skýrslunnar. Efni sé í frekari at-
huganir á samfélagslegri ábyrgð íslenskra fyrir-
tækja. Hann segir það vel koma til greina að hann
haldi sjálfur áfram með rannsóknina og íhugar
jafnvel að gera úr henni lokaverkefni. - hhs
M Á L I Ð E R
Samfélagsleg
ábyrgð fyrirtækja
Hvað er félagsleg ábyrgð?
Með félagslegri ábyrð er átt við
þær siðferðilegu skyldur sem
fyrirtæki hafa sem þátttakend-
ur í samfélaginu. Fyrirtæki
axla slíka ábyrð, meðal annars
með því að styðja við mikil-
væga þætti samfélagsins, eins
og listir og aðra þætti menning-
ar, og gæta að og vernda um-
hverfi sitt og
annarra.
Þurfa öll fyrir-
tæki að axla fé-
lagslega ábyrgð?
Já, alveg eins og
sérhver einstak-
lingur hefur
samfélagslega
ábyrð og er háð-
ur skráðum og
óskráðum regl-
um. Fyrirtæki
geta ekki skorast
undan þessari
ábyrgð enda er
hún einnig í
þeirra þágu.
Hverjir eru hags-
munir fyrirtækja
af því að sýna fé-
lagslega ábyrgð?
Hagsmunir fyr-
irtækja liggja í
því að með virkri
þátttöku við að axla félagslega
ábyrgð og bera þær skyldur
sem þeim fylgja auðga þau
samfélagið. Það hefur jákvæð
ytri áhrif sem eykur verðmæta-
sköpun, bætir lífskjör og eykur
hag fyrirtækja.
Hafa fyrirtæki sem ganga vel
meiri félagslega ábyrgð en önn-
ur?
Ekkert endilega, en þau fyrir-
tæki sem ganga vel geta sýnt
virkari þátttöku en þau sem
berjast í bökkum fjárhagslega.
Nægir ekki að fyrirtæki gegni
skyldum sínum gagnvart hlut-
höfum sínum?
Nei, ekki lengur. Þótt megin-
hlutverk fyrirtækja sé að gæta
hagsmuna hluthafa sinna þá
ber að skilja þá hagsmuni víðar
en í arðgreiðslum
eða hækkun á
gengi hlutabréfa.
Fyrirtæki hafa
ávinning, meðal
annars hvað varð-
ar ímynd, af virk-
um styrkveiting-
um og ábyrgri
hegðun. Nútíma
hluthafar, sem
einstaklingar, eru
miklu meðvitaðri
um félagslega
ábyrð sína en
áður.
Skortir á að ís-
lensk fyrirtæki
axli sína félags-
legu ábyrgð?
Já, en það er að
breytast, meðal
annars með bættri
menntun yngri
stjórnenda.
Á að færa skyldur um félagslega
ábyrgð fyrirtækja í lög?
Nei, en það ætti að veita fyrir-
tækjum ívilnanir í sköttum ef
þau leggja til menningar- og
vísindamála. Slík löggjöf er í
gildi í fjölda landa og hefur
virkað vel og er hvati fyrir fyr-
irtæki til að sinna þessum mál-
um. Slík löggjöf byggir brýr
milli fyrirtækja og menningar-
starfsemi og vísinda og það er
mjög af hinu góða.
Bætir lífskjör og
auðgar hag fyrirtækja
T Ö L V U P Ó S T U R I N N
Til Ágústar
Einarssonar
prófessors við Háskóla Íslands
Bankar borga meira
til menningarlífsins
Bankar og sparisjóðir hafa verið hvað sýnilegastir íslenskra fyrirtækja í
framlögum til menningarstarfsemi. Magnúsi Óskari Hafsteinssyni hagfræði-
nema lék forvitni á að vita hvaða ástæður lægju þar að baki og hlaut styrk
úr Nýsköpunarsjóði til að kanna það.
MAGNÚS ÓSKAR HAFSTEINSSON, HÖFUNDUR SKÝRSLU UM
FRAMLÖG VIÐSKIPTABANKANNA TIL MENNINGARSTARF-
SEMI Í niðurstöðum skýrslunnar kom fram að bankarnir telja sig
bera samfélagslega ábyrgð. Viðskiptalegar forsendur tvinnast þar
saman við enda færa sumir þeirra framlögin sem hluta af auglýs-
inga- og markaðskostnaði.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA
Framlög KB banka sem hlutfall af hagnaði hafa farið úr 1,68 prósentum árið
2002 í 0,93 prósent árið 2004 og framlög Íslandsbanka hafa farið úr 4,03 prósent-
um í 1,23 prósent á sama tímabili. Sparisjóðirnir eru að mati Magnúsar öflugir í
að sýna samfélagslega ábyrgð. Þeirra framlag sem hlutfall af hagnaði er tals-
vert hærra en viðskiptabankanna og var 2,58 prósent af hagnaði árið 2004.
Engar spólur
Hrö› endurheimt gagna
Enginn stofnkostna›ur
Háflróu› dulkó›un
Vöktun 24/7
www.securstore.is575 9200
SecurStore – sjálfvirk, örugg netafritun
fla› er til
léttari lei›
til a› geyma gögnin
M
IX
A
• fít
• 5
0
8
3
4
F R A M L Ö G V I Ð S K I P T A B A N K A N N A
T I L M E N N I N G A R M Á L A Á R I Ð 2 0 0 4
Milljónir króna Framlag semhlutfall af hagnaði
150
100
50
0
3%
2,5%
2%
1,5%
1%
0,5%
0
KB banki Landsbankinn* Íslandsbanki Sparisjóðirnir
* Ekki var unnt að fá nákvæmar tölur frá Landsbankanum en eftir því sem Markaðurinn kemst næst lætur nærri
að 100 milljónum hafi verið veitt til menningarmála á árinu 2004.
147.109.301 100.000.000 141.068.000 125.500.183
0,93%
0,79%
1,23%
2,58%
22_23_Markadur lesið 1.11.2005 15:40 Page 2