Fréttablaðið - 02.11.2005, Síða 80
36 2. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Seinni umferðin í riðla-
keppni meistaradeildarinnar
hófst í gær og fjórðu umferðinni
lýkur í kvöld. Stórleikur kvöldsins
er klárlega viðureign Juventus
og Bayern Munchen í Tórínó.
Juventus tapaði sínum fyrsta leik
í ítölsku deildinni um helgina gegn
AC Milan og verður fróðlegt að
sjá hvernig þeir koma undan þeim
leik.
Fyrri leik liðanna í Þýskalandi
lyktaði með 2-1 sigri Bayern sem
er með fullt hús á toppi riðilsins.
Tölfræðin er með Juve í kvöld
enda hefur liðið unnið 13 af 19
heimaleikjum sínum gegn þýsk-
um félögum.
Ensku félögin Man. Utd og Ars-
enal eru einnig í eldlínunni í kvöld.
Man. Utd sækir franska félag-
ið Lille heim en Arsenal tekur á
móti Spörtu frá Prag. Lille náði
eftirminnilegu markalausu jafn-
tefli gegn United á Old Trafford
og sveinar Sir Alex hyggja án vafa
á hefndir.
Arsenal vann útileikinn gegn
Spörtu, 2-0, og ætti því ekki að
vera í vandræðum með að afgreiða
tékkneska félagið í kvöld. - hbg
Stórleikur í Tórínó í meistaradeildinni:
Hefnir Juve gegn Bayern?
FABIO CAPELLO Þarf sárlega á sigri að
halda gegn Bayern Munchen í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
A-RIÐILL:
BAYERN 3 3 0 0 4-1 9
JUVENTUS 3 2 0 1 6-3 6
C.BRUGGE 3 1 0 2 2-3 3
R.VIENNA 3 0 0 3 0-5 0
B-RIÐILL:
ARSENAL 3 3 0 0 6-2 9 9
AJAX 3 1 1 1 4-3 4
THUN 3 1 0 2 2-4 3
S.PRAG 3 0 1 2 1-4 1
C-RIÐILL:
BARCELONA 3 2 1 0 6-1 7
UDINESE 3 1 1 1 5-5 4
PANATHIN. 3 1 1 1 2-4 4
W.BREMEN 3 0 1 2 2-5 1
D-RIÐILL:
MAN.UTD 3 1 2 0 2-1 5
BENFICA 3 1 1 1 3-3 4
VILLARREAL 3 0 3 0 1-1 3
LILLE 3 0 2 1 0-1 2
LEIKIR KVÖLDSINS:
C.Brugge-Rapid Vín, Juventus-Bayern, Thun-Ajax,
Arsenal-Sparta, Barcelona-Panathinaikos, W.Bre-
men-Udinese, Benfica-Villarreal, Lille-Man.Utd.
STAÐAN Í RIÐLUNUM
FÓTBOLTI Manchester United hefur
neitað að tjá sig um orðróm þess
efnis að Sir Aelx Ferguson hafi
bannað sjónvarpsstöð félagsins,
MUTV, að senda út viðtal sem
tekið var við fyrirliða liðsins, Roy
Keane, eftir niðurlæginguna gegn
Middlesbrough um síðustu helgi.
Keane á að hafa farið ham-
förum í viðtalinu og hraunað
hressilega yfir fimm félögum
sínum - Alan Smith, John O´Shea,
Liam Miller, Kieran Richardson
og Darren Fletcher - og sagt þá
hreinlega ekki vera nógu góða til
að spila með félaginu.
Viðtalið ku hafa verið svo
svakalegt að yfirmenn stöðvar-
innar þorðu ekki að fara með það í
loftið fyrr en Fergie hefði séð það.
Sir Alex á að hafa trompast, fyr-
irskipað að viðtalið yrði ekki sýnt
og síðan lesið yfir hausamótunum
á Keane. - hbg
Roy Keane, fyrirliði Man. Utd, er ekki að skafa utan af því frekar en fyrri daginn:
Hraunaði yfir fimm samherja
ROY KEANE Ekki vanur að liggja á skoðun-
um sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Mánaðarlaunin sem Valur
Fannar Gíslason fær eftir að hafa
skrifað undir samning við Val í
gær, og Fréttablaðið greindi frá í
gær, eru í námunda við laun með-
alleikmanna í norsku og sænsku
úrvalsdeildinni. Þetta segja
íþróttafréttamenn hjá norska
blaðinu Verdens Gang og sænska
blaðinu Aftenposten sem Frétta-
blaðið ræddi við í gær.
Launataxtinn í norsku úrvals-
deildinni fyrir meðalleikmann er
talinn aðeins hærri en sá í sænsku
deildinni en margt bendir til þess
að launaþakið sé hærra í Svíþjóð,
en þar eru allra bestu leikmenn-
irnir að fá meira borgað en kolleg-
ar sínir í Noregi.
Launahæstu leikmennirnir í
norsku úrvalsdeildinni eru með frá
1-1,5 milljón króna í mánaðarlaun
og eru þá ekki tekin með í reikn-
inginn ýmis fríðindi sem gætu
fylgt - fríðindi á borð við húsnæði,
aðgang að bifreið o.s.frv. Rune
Olavsson hjá Allsvenskan segir að
íslenskur leikmaður sem komi nýr
inn í sænsku úrvalsdeildina geti
nokkuð vel við unað með fimm
milljónir í árslaun, þau sömu og
Valur Fannar fær hjá Val sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Vísaði Olavsson í óvísindalega
rannsókn sem blaðið gerði fyrir
frétt sem birtist á síðasta ári en er
fullyrt að eigi enn rétt á sér. „Það
eru alltaf nokkrir risar sem rífa
upp meðaltalið en séu þeir teknir
frá væri álitlegt að segja að með-
allaunin væru rétt um hálf milljón
á mánuði,“ segir Olavsson.
Oddlye Moe, blaðamaður hjá
VG, taldi að þeir íslensku leik-
menn sem eru til mála hjá norsku
úrvalsdeildarfélögum væru lík-
lega flestir með hærri laun en þau
sem Valur Fannar er með hjá Val
en að svo þyrfti alls ekki að vera
um þá alla.
„Hálf milljón á mánuði væru
vel viðunandi fyrir íslenskan leik-
mann sem á enn eftir að sanna
sig í úrvalsdeild á Norðurlöndun-
um og þá er ég að tala um algjör
hámarkslaun,“ segir Moe.
vignir@frettabladid.is
Rétt undir meðallaunum
í Noregi og Svíþjóð
Launin sem Valur greiðir Vali Fannari Gíslasyni eru nálægt meðallaunum at-
vinnumanna á Norðurlöndunum að því norskir og sænskir fjölmiðlar segja.
STEFÁN GÍSLASON Er mjög líklega með nokkuð hærri laun hjá Lyn en bróðir hans hjá Val.
Hér sést hann í baráttu við Zlatan Ibrahimovic í landsleik Íslendinga og Svía um daginn.
Valsmenn ekki hættir
Valsarar hafa ekki ennþá lokað fyrir
þann möguleika á að þeir fái til sín
fleiri leikmenn fyrir næstu leiktíð í
Landsbankadeildinni. “Við erum ennþá
að líta í kringum okkur,” sagði Börkur
Edvardsson í gær.
> Danirnir stóðu sig vel
Dönsku knattspyrnumennirnir Bo
Henrikssen, Hans Mathisen og Kim
Nörholt gerðu góða hluti hjá liði Victory
á Maldíveyjum, sem þremenningarnir
gengu til liðs við eftir að Landsbanka-
deildinni lauk hér heima. Nörholt fékk
stöðu aðstoðarþjálfara og félaginu og
tók þá Henrikssen og Mathisen með sér.
Danirnir reyndust hvalreki á fjörur Vict-
ory því að með þá innanborðs fór liðið
alla leið í deildarkeppninni
þar í landi og tryggði sér
meistaratitilinn um
helgina. Henrikssen
var einstaklega
iðinn við kolann og
skoraði mark að
meðaltali í
leik.
Valur afhjúpaði tvo nýjustu liðsmenn
sína á formlegan hátt í gær, þá Val
Fannar Gíslason og Pálma Rafn Pálma-
son, sem koma báðir til liðsins á frjálsri
sölu. Ennfremur skrifuðu þeir Sigurbjörn
Lárusson, fyrirliði, og markvörðurinn
Kristinn Geir Guðmundsson undir
áframhaldandi samning við félagið og
þá áréttuðu Valsmenn að þeir byggjust
fastlega við því að þeir Guðmundur
Benediktsson og Sigþór Júlíusson
spiluðu með liðinu a.m.k. eitt ár í
viðbót.
„Ég vildi breyta til og fá nýja áskor-
un,“ sagði Valur Fannar í samtali
við Fréttablaðið spurður um
ástæður þess að hann hefði
kosið að ganga til liðs við
Val, en hann skrifaði undir þriggja ára
samning við félagið. „Ég fór frá Fram í
Fylki á sínum tíma og það voru góð skipti
fyrir mig. Ég hef eignast fullt af góðum
vinum í Árbænum en ég vildi samt sem
áður kynnast einhverju nýju og ég vona
að Valur reynist mér eins vel og Fylkir,“
sagði Valur Fannar og bætti
því við að hann hefði
ekki rætt við nein
önnur lið en Val.
Pálmi Rafn skrifaði
aðeins undir eins árs
samning með mögu-
leika á framlengingu,
en Húsvíking-
urinn knái
h e f u r
ennþá hug á því að komast að hjá
erlendu félagi og vildi því ekki binda sig
lengur. „Valur ætlar sér stóra hluti og von-
andi get ég bætt liðið. Ég verð allavega
með þeim næsta sumar og svo sjáum
við til um framhaldið,“ sagði Pálmi Rafn.
Fréttablaðið greindi frá því í gær að
þeir Valur Fannar og Pálmi Rafn væru
samtals með 9,2 milljónir í árslaun
hjá sínum nýju vinnuveitendum.
Spurður um hvort einhver fótur væri
fyrir þeirri upphæð á fundinum í gær
sagði Börkur Edvardsson, for-
maður knattspyrnudeildar
Vals: „Þetta er trúnaðar-
mál milli leikmanna og
félags og verður ekki
rætt.“
KNATTPSPYRNUFÉLAGIÐ VALUR: AFHJÚPAÐI TVO NÝJA LEIKMENN Í GÆR
Samningar leikmanna verða ekki ræddir