Fréttablaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 47
8 ■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ TERMINATOR Malarvagnar með yfirbreiðslu • Pallurinn er úr Hardox 450 þolstáli sem tryggir mikla endingu á álags- flötum og slétta yfirborðsáferð. • Kruz malarvagnar eru fáanlegir á grind, grindarlausir eða með hálfgrind. • Kruz malarvagnar eru fánlegir hvort heldur er úr stáli eða áli. • Vagninn vegur aðeins 6400 kg. • Þrautseigir og endingargóðir. • Áratugar löng reynsla. Flugumýri 28 · 270 Mosfellsbæ Sími 544 2090 · Fax 544 2091 www.global-taeki.com Vörubílastöðin Þróttur hefur verið starfrækt allt frá árinu 1931 er vörubílstjórar Reykjavíkur tóku sig saman og stofnuðu félagið. Síðan þá hefur félagið vaxið og dafnað og nú í dag telur félagið alls níutíu meðlimi og hátt í 200 tæki og vél- ar. ,,Í dag þjónustum við meðal annars við flutninga, snjómokstur, uppgröft við nýbyggingar, garð- vinnu, malbiksflutningar, vega- vinnu, trjáfellingar og fleira. Margir félagsmenn eiga margs- konar vinnuvélar, allt upp í fjörutíu tonna gröfur og niður í mini-gröfur, en síðan er öll flóran þarna á milli sem nokkrir félags- menn hafa yfir að ráða. Svo hefur verið gríðarleg endurnýjun í flota fyritækisins á undanförnum árum,“ segir Þórður Adolfsson, framkvæmdastjóri Þróttar. Hann segir að einstaklingar sækist helst eftir þjónustu hjá fyrirtækinu sem lúti að garðvinnu, framkvæmdum í kringum lóðir og öðru slíku. Vörubílastöðin útvegar fólki, fyrir- tækjum og stofnunum einnig mold, jarðveg og sambærileg efni. ,,Öll þjónusta sem viðkemur jarð- vinnuframkvæmdum er hér í boði, nema að við erum ekki að sprengja stórgrýti eða annað slíkt,“ segir Þórður að lokum. Mikil endurnýjun véla og tækja á síðastliðnum árum Þróttur er stærsta og elsta vörubílastöð landsins. Þó Drottningin sé orðin 37 ára gömul og hafi meira en 20.000 tíma á bakinu er hún enn í fullu fjöri og stóla Jón Magnús Pálsson, eigandi JMP véla, og starfsmenn hans mikið á hana. „Þetta er helvíti duglegur grip- ur,“ segir Jón Magnús. Ýtan er keyrð rúma 20.000 tíma, sem er gríðarlega mikið fyrir jarðýtu, en Íslenskir aðalverktakar fluttu hana inn árið 1969 og var hún hjá þeim í mörg ár. „Hún er búin að vera með í þessum verkefnum sem hafa átt sér stað hérna á höfuðborgarsvæðinu í gegnum árin,“ segir Jón og bætir því við að Drottningin lít- i afar vel út. Jón sjálfur hefur verið viðloð- andi jarðvegsbransann síðan árið 1994 en hefur rekið sitt eigið fyrir- tæki síðan árið 2000. „En Drottningin hefur fylgt mér í tæpan áratug og hún er gulls ígildi,“ segir Jón. „Hún er orðin 37 ára gömul og er í alveg topp standi.“ JMP vélar er verktakafyrirtæki í jarðvegsiðnaði og starfa sjö manns alls hjá því. Fyrirtækið vinnur aðallega í útboðsmarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem það undirbýr húsgrunna, grefur götur og stendur í fleiri svipuðum jarð- vegsverkefnum. Auk Drottningar- innar reka JMP vélar fjóra bíla og tvær gröfur. Tveir bílanna eru fjög- urra öxla og tveir eru trailerar. Drottningin er enn söm við sig, þrátt fyrir langan vinnualdur, segir Jón Magnús Pálsson, eigandi JMP véla. Drottningin er engri lík Jón Magnús Pálsson, eigandi JMP véla, á 37 ára gamla ýtu sem kölluð er Drottningin. 08-09 vinnuvélar NOTA lesa 3.11.2005 15:55 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.