Fréttablaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 12
12 4. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
ÆVINT†RIN ERU ENN
A‹ GERAST
Pathfinder SE
Ver›tilbo› 4.290.000.-
Lúxusjeppi á vetrardekkjum, sjálfskiptur,
7 manna, cruise control og allur pakkinn.
44.619.- á mánu›i*
m.v. 20.000 km akstur á ári
79.229.- á mánu›i*
Rekstrarleiga me› fljónustu í 36 mán.
PATHFINDER
NISSAN
*L‡sing 30% útborgun og
eftirstö›var í 84 mánu›i.
32” dekk fylgja me›!
SKIPT_um landslag
UPPLÝSINGATÆKNI Rannsókn efna-
hagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra á hugsanlegum hugverka-
stuldi sem hófst með rassíu í
fyrrahaust stendur enn.
Gerð var húsleit hjá tólf ein-
staklingum og tölvur og tölvu-
búnaður gerður upptækur. Allir
voru handteknir og gistu tveir
fangageymslur nóttina. Fólkið
var grunað um að sækja og dreifa
kvikmyndum, sjónvarpsþáttum,
forritum, tónlist og tölvuleikjum
með DC++ skráaskiptiforritinu.
Brot gegn höfundarréttarlögum
geta varðað allt að tveggja ára
fangelsi.
Aðgerðir lögreglu í fyrra komu
í framhaldi af kæru samtaka höf-
undarrétthafa í febrúar 2004.
Hallgrímur Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Smáís, samtaka
myndrétthafa, segir sig vissulega
farið að lengja eftir niðurstöðu
í málinu, en segist litlar spurn-
ir hafa af gangi rannsóknarinn-
ar. „Auðvitað vildi ég að komin
væri fram niðurstaða og vonandi
með þeim hætti að gefin verði út
ákæra,“ segir hann og telur ríða
á að fá niðurstöðu dómstóla um
lögmæti niðurhals og skráaskipta
á netinu. „Við teljum að lögin séu
mjög skýr. Allt í kring um okkur
falla dómar, sem betur fer rétt-
höfum í hag, þannig að ég hef svo
sem ekki áhyggjur af því að vinna
ekki málið. Það er hins vegar ansi
slæmt að ekki sé komin niður-
staða, því hún myndi skýra lín-
urnar og eyða óvissu.“
Hallgrímur segir umhverfi
skráaskipta hafa breyst töluvert
síðan húsleitirnar voru gerðar í
fyrra. Þá mátti í kjölfarið merkja
töluverðan samdrátt í netum-
ferð um tíma. Eftir að látið var í
auknum mæli af gjaldtöku fyrir
erlent niðurhal segir hann hlut
DC++ skráaskiptiforritsins hafa
minnkað og fleiri farnir að nota
það sem kallast Bittorrent. „Þá
er fólk jafnvel að logga sig inn á
erlendar síður,“ segir hann, en
bætir um leið við að tilfinning
hans sé að dregið hafi verulega
úr skráaskiptum af þessum toga.
„Ég held okkur hafi tekist að opna
augu fólks fyrir því að þetta var
ekki eðlilegt. Vilji fólk brjóta af
sér þá gerir það það, en við höfum
heyrt í fjölmörgum sem segjast
bara ekki standa í þessu, enda
ekki ómaksins vert.“
Ekki náðist í Jón H. Snorrason,
yfirmann efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra, við vinnslu
fréttarinnar. - óká
Vill láta kæra
hugverkastuld
Framkvæmdastjóra Smáís er farið að lengja eftir
niðurstöðu í rannsókn lögreglu á meintum ólögleg-
um skráaskiptum á netinu. Hann vill fá ákæru.
UPPTÆKUR TÖLVUBÚNAÐUR HJÁ LÖGREGLU Hér getur á að líta hluta af þeim tölvubúnaði
sem gerður var upptækur hjá 12 einstaklingum í húsleit lögreglu í lok september í fyrra.
Málið, sem snýst um ólögleg skráaskipti á netinu, er enn í rannsókn. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
STJÓRNMÁL Skráðum félögum í
Samfylkingunni á Akureyri hefur
fjölgað um 17,5 prósent á undan-
förnum tveimur vikum.
Á morgun er prófkjör flokksins
vegna sveitarstjórnarkosning-
anna á næsta ári og eru alls 843
flokksfélagar á kjörskrá, að með-
töldum þeim tæplega 130 sem
nýlega hafa skráð sig í Samfylk-
inguna á Akureyri.
Kosið verður um fjögur efstu
sæti listans og samkvæmt próf-
kjörsreglum skulu þau skipuð
tveimur konum og tveimur kör-
lum.
- kk
Samfylkingin Akureyri:
Fjölgun vegna
prófkjörs
HALLGRÍMUR
KRISTINSSON
Hallgrímur, sem er
framkvæmdastjóri
Smáís, vonast eftir
að einstaklingar
sem skiptust á
höfundarréttar-
vörðu efni á netinu
verði kærðir fyrir
brot á lögum um
höfundarrétt.
COLORADO, AP Bob Dougherty,
57 ára gamall íbúi smábæjarins
Nederland í Colorado í Banda-
ríkjunum, varð fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu þegar
hann fór í verslunarferð til borg-
arinnar Boulder.
Eftir að hafa spásserað um í
byggingavöruversluninni Home
Depot, þurfti Dougherty að fara
á snyrtinguna. Það sem hann
vissi ekki var að óprúttnir menn
höfðu sett tonnatak á klósettset-
una, þannig að hann gat ekki með
nokkru móti losað sig.
Dougherty kallaði eftir hjálp
en starfsmenn verslunarinnar
tóku köll hans ekki alvarlega
heldur héldu þeir að hann væri að
grínast. Það var ekki fyrr en eftir
dágóða stund sem starfsmönnun-
um varð ljóst að Dougherty var
full alvara.
Þegar sjúkraflutningamenn
komu á vettvang þurfti að losa
klósettsetuna og flytja Dougherty
með hana fasta við sig á sjúkrahús
þar sem hún var losuð. Hann varð
sár á afturendanum eftir límið
sterka.
Dougherty hefur höfðað mál
gegn versluninni Home Depot
þar sem hann telur sig hafa orðið
fyrir skaða á líkama og sál eftir
lífsreynsluna. Hann er hjartveik-
ur og segir að hann hafi um tíma
haldið að hann væri að fá hjarta-
áfall. - th
Hjartveikur maður höfðar mál gegn verslun:
Límdist fastur
við klósettsetu
ÞÝSKALAND, AP Leiðtogar tveggja
stærstu stjórnmálaflokka Þýska-
lands héldu í gær áfram viðræðum
um myndun samsteypustjórnar og
reyndu að láta innanflokksmisklíð
í báðum flokkum ekki trufla þær.
Angela Merkel, kanslaraefni
kristilegra demókrata, og forystu-
menn jafnaðarmannaflokksins
SPD hófu nýja lotu viðræðnanna
sem nú hafa staðið í meira en hálf-
an mánuð.
En flokkarnir eru enn að jafna
sig á því að í vikunni skyldi for-
maður SPD tilkynna að hann
hygðist láta af flokksformennsk-
unni og Edmund Stoiber, einn
helsti þungavigtarmaðurinn í liði
kristilegra, ákvað að taka ekki
sæti í stjórninni.
Merkel fullyrti í gær að við-
ræðurnar væru á góðum skriði,
þrátt fyrir „taugatitring“ síð-
ustu daga, og það ætti að takast
að leggja væntanlegan málefna-
samning fyrir flokksþing beggja
flokka um miðjan mánuðinn.
Matthias Platzeck, forsætisráð-
herra Brandenborgar sem er eitt
þýsku sambandslandanna sextán,
hefur verið tilnefndur sem vænt-
anlegur arftaki Franz Müntefer-
ings sem formaður SPD. - aa
Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram í Þýskalandi:
Merkel segist vera bjartsýn
ANGELA MERKEL
Verðandi kanslari.
KATTLIÐUG Japanska skautadrottningin
Mao Asada getur teygt sig á ýmsa lund
eins og hún sýndi á meistaramóti í
listhlaupi á skautum sem nú fer fram í
Peking í Kína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær dóm héraðsdóms þess efnis
að uppsagnir varnarliðsins á
greiðslum rútufargjalds til rafiðn-
aðarmanna sem vinna hjá varnar-
liðinu séu ólögmætar. Dómurinn
telur einnig að greiðslur til starfs-
manna vegna ferðatíma séu ólög-
mætar. Varnarliðið hætti þessum
greiðslum til rafiðnaðarmanna
þann 1. nóvember 2003. Kjör
starfsmannanna eru samkvæmt
ákvörðun kaupskrárnefndar frá
árinu 1955. Ríkið greiðir máls-
kostnað. - saj
Hæstiréttur staðfestir dóm:
Ólögmæt
kjaraskerðing
HÆSTIRÉTTUR Staðfesti dóm héraðsdóms.