Fréttablaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 68
TIL LEIGU FASTEIGNIR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
FÖSTUDAGUR 4. nóvember 2005 19
KÓPAVOGSBÆR
Auglýsing um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogs á
auglýstri tillögu að breyttu aðalskipulagi.
Í samræmi við 3. mgr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt-
ingum, er hér með auglýst afgreiðsla bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi tillögu:
Kópavogstún. Breytt aðalskipulag.
Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs 11. október 2005 var lögð
fram til síðari umræðu tillaga Bæjarskipulags að breyttu Að-
alskipulagi Kópavogs 2000-2012. Skipulagssvæðið af-
markast af Urðarbraut í vestur, Kópavogsbraut í norður,
Hafnarfjarðarvegi í austur og Kópavogi til suðurs. Í breyting-
unni felst að svæði fyrir þjónustustofnanir verður íbúðar-
svæði og opin svæði. Mörk bæjarverndar á svæðinu norð-
an gamla Kópavogsbæjarins breytist á þann hátt að opið
svæði með bæjarvernd, um 3.500 m2 að flatarmáli, víkur
fyrir blandaðri landnotkun (þjónustu og opnu svæði til sér-
stakra nota). Aðkoma verður frá Urðarbraut og Kópavogs-
braut. Gert er ráð fyrir nýju hringtorgi á Kópavogsbraut
norðan Sunnuhlíðar og breytingu á vegtengingu að hring-
torgi á Digranesvegi í miðbæ Kópavogs með akreinum
bæði til suðurs og norðurs. Gert er ráð fyrir nýjum aðal-
göngustígum um miðbik svæðisins. Breytingin er sett fram
á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. í apr-
íl 2005. Hin auglýsta tillaga að breyttu aðalskipulagi Kópa-
vogstúns náði til um 14 ha lands (svæði undir bæjarvernd
undanskilið) og á því var í tillögunni gert ráð fyrir að byggð-
ar yrðu alls 325 íbúðir í einbýlishúsum, parhúsum og fjöl-
býlishúsum auk 57 þjónustuíbúða. Var þéttleiki byggðarinn-
ar áætlaður 23-27 íbúðir á ha og fyrirhugaður íbúafjöldi lið-
lega 1000. Tillagan var auglýst í samræmi við 18. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 13. júlí til 10. ágúst
2005 með athugasemdafresti til 24. ágúst 2005. Athuga-
semdir og ábendingar bárust. Tillagan var lögð fram að nýju
í skipulagsnefnd 4. október 2005 ásamt þeim athugasemd-
um og ábendingum er bárust á kynningartíma og umsögn
Bæjarskipulags um framangreindar athugasemdir og
ábendingar. Er umsögnin dags. 4. október 2005. Á fundi
nefndarinnar var jafnframt lögð fram sameiginleg yfirlýsing
Landspítala – háskólasjúkarahúss og Kópavogsbæjar dags.
4. október 2005. Í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að aðilar
eru í sameiningu að fara yfir núverandi starfsemi LSH á
Kópavogstúni. Meðal þess sem rætt hefur verið er nýting
aðliggjandi lóða Kópavogsbæjar og eru aðilar sammála um
að unnið verði áfram að skipulagi á þessu svæði á grund-
velli þess ramma sem settur hefur verið og að líknarstarf-
semi LSH verði áfram staðsett á Kópavogstúni í núverandi
húsnæði. Í niðurlagi yfirlýsingarinnar segir að stefnt sé að
ljúka ìviðræðunum og skipulagsvinnu á næstu mánuðum
með niðurstöðu sem báðir aðilar geta sætt sig viðî. Skipu-
lagsnefnd samþykkti með tilvísan í yfirlýsinguna að fresta
skipulagi á ìmiðjusvæðiî Kópavogstúns. Frestunin nær til
4.3 ha lands þar sem fyrirhugaðar voru 122 íbúðir í fjölbýli
og 6 einbýlishús eða samtals 128 íbúðir af þeim 325 íbúð-
um auk 57 þjónustuíbúða sem fyrirhugaðar voru á skipu-
lagssvæðinu. Á því svæði sem aðalskipulagsbreytingin nær
til og hér um ræðir er áætlað að verði samtals 197 nýjar
íbúðir auk 57 nýrra þjónustuíbúða. Miðað við um 10 ha ný-
byggingarsvæði (14,0 ha – 4,3 ha sem frestunin nær til)
verður þéttleiki byggðarinnar um 20 íbúðir á ha (25 íbúðir
á ha ef þjónustuíbúðirnar eru meðtaldar). Áætlaður íbúa-
fjöldi á svæðinu miðað við 3 íbúa á íbúð og 1,5 íbúa í þjón-
ustuíbúð er um 690 íbúar. Tillagan var samþykkt eins og að
ofan greinir 11. október 2005 með áorðnum breytingum
ásamt umsögn Bæjarskipulags um framkomnar athuga-
semdir og ábendingar. Bæjaryfirvöld hafa sent þeim er at-
hugasemdir gerðu umsögn sína. Aðalskipulagsbreytingin
hefur verið send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til um-
hverfisráðherra um afgreiðslu.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreinda skipulagsá-
ætlun og afgreiðslu hennar er hægt að nálgast á Bæjar-
skipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl.
8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum
frá 8:00 til 14:00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
TILKYNNINGAR
SÍMI 533 4040
FAX 533 4041
OPIÐ MÁN.-FIM. 9-18 OG FÖS. 9-17
Dan V.S. Wiium hdl., l gg. fasteignasali
Ármúli 21, Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
T R A U S T O G Ö R U G G Þ J Ó N U S TA
Reisulegt
endaraðhús
með sérstæðum
38.0 fm bílskúr.
Húsið er 214,6
fm. Alls 252,6
fm
Í kjallara er sér inngangur og möguleiki á sér íbúð.
Staðsetning hússins er einstaklega góð, gróinn og
skjólsæll staður. Verð 55,5 millj.
LAUGALÆKUR - BÍLSKÚR
Tveggja hæða
hús á frábærum
stað í kópavogs-
dalnum. Stærð
206,4 fm. Skiptist
í tvær stofur, 3 -
4 herbergi, tvö
baðherbergi, eldhús, þvottahús og innb.bískúr.
Góður og skjólsæll staður. Þaksvalir og sólpallur.
Stutt í alla þjónustu og skóla. LAUST FLJÓTLEGA.
LINDASMÁRI - ENDARAÐHÚS
Rúmgóð og falleg
5 herb. horníbúð
um 123 fm. á
1.hæð í lyftuhúsi
ásamt stæði í
sameiginlegri bíl-
geymslu. Fjögur
svefnherbergi. Góðar innréttingar.
GLÆSILEGT ÚTSÝNI.
HAMRABORG - ÚTSÝNI
HÖRÐALAND
Glæsileg og
mikið endur-
nýjuð 4ra herb.
endaíbúð á
efstuhæð í litlu
fjölbýli á falleg-
um og rólegum
stað. Eldhús með nýlegum ljósum viðarinnrétt-
ingum. Fallegt útsýni. Suður svalir. Hús og
sameign í góðu ástandi. Verð: 22,8 millj.
Ólafur Guðmundsson
Sölumaður Simi: 8964090
Kristinn Valur Wiium
Sölumaður Simi: 8966913
SÍMI 533 4040
FAX 533 4041
OPIÐ MÁN.-FIM. 9-18 OG FÖS. 9-17
Dan V.S. Wiium hdl., l gg. fasteignasali
Ármúli 21, Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
T R A U S T O G Ö R U G G Þ J Ó N U S TA
VANTAR-VANTAR:
Fasteignasölunni KJöreign hefur verið
falið að auglýsa eftir 2ja herb. íbúðum í fjöl-
býlishúsum. Um er að ræða ákveðna og fjár-
sterka kaupendur.
Hafið samband við sölumenn Kjöreignar.
sími - 533-4040
Ólafur Guðmundsson
Sölumaður Simi: 8964090
Kristinn Valur Wiium
Sölumaður Simi: 8966913
Atvinnu-húsnæði til leigu
100-170 m2 til leigu í húsnæði Baðhússins.
Brautarholti 20. 105 Rvk.
Hentar vel fyrir t.d. hárgreiðslustofu.
Nánari upplýsingar veitir
Berglind Halldórsd á berglind@isf.is
60-67 (12-19) Smáar 3.11.2005 16:11 Page 9