Fréttablaðið - 04.11.2005, Síða 68

Fréttablaðið - 04.11.2005, Síða 68
TIL LEIGU FASTEIGNIR 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI FÖSTUDAGUR 4. nóvember 2005 19 KÓPAVOGSBÆR Auglýsing um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogs á auglýstri tillögu að breyttu aðalskipulagi. Í samræmi við 3. mgr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt- ingum, er hér með auglýst afgreiðsla bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi tillögu: Kópavogstún. Breytt aðalskipulag. Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs 11. október 2005 var lögð fram til síðari umræðu tillaga Bæjarskipulags að breyttu Að- alskipulagi Kópavogs 2000-2012. Skipulagssvæðið af- markast af Urðarbraut í vestur, Kópavogsbraut í norður, Hafnarfjarðarvegi í austur og Kópavogi til suðurs. Í breyting- unni felst að svæði fyrir þjónustustofnanir verður íbúðar- svæði og opin svæði. Mörk bæjarverndar á svæðinu norð- an gamla Kópavogsbæjarins breytist á þann hátt að opið svæði með bæjarvernd, um 3.500 m2 að flatarmáli, víkur fyrir blandaðri landnotkun (þjónustu og opnu svæði til sér- stakra nota). Aðkoma verður frá Urðarbraut og Kópavogs- braut. Gert er ráð fyrir nýju hringtorgi á Kópavogsbraut norðan Sunnuhlíðar og breytingu á vegtengingu að hring- torgi á Digranesvegi í miðbæ Kópavogs með akreinum bæði til suðurs og norðurs. Gert er ráð fyrir nýjum aðal- göngustígum um miðbik svæðisins. Breytingin er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. í apr- íl 2005. Hin auglýsta tillaga að breyttu aðalskipulagi Kópa- vogstúns náði til um 14 ha lands (svæði undir bæjarvernd undanskilið) og á því var í tillögunni gert ráð fyrir að byggð- ar yrðu alls 325 íbúðir í einbýlishúsum, parhúsum og fjöl- býlishúsum auk 57 þjónustuíbúða. Var þéttleiki byggðarinn- ar áætlaður 23-27 íbúðir á ha og fyrirhugaður íbúafjöldi lið- lega 1000. Tillagan var auglýst í samræmi við 18. gr. skipu- lags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 13. júlí til 10. ágúst 2005 með athugasemdafresti til 24. ágúst 2005. Athuga- semdir og ábendingar bárust. Tillagan var lögð fram að nýju í skipulagsnefnd 4. október 2005 ásamt þeim athugasemd- um og ábendingum er bárust á kynningartíma og umsögn Bæjarskipulags um framangreindar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 4. október 2005. Á fundi nefndarinnar var jafnframt lögð fram sameiginleg yfirlýsing Landspítala – háskólasjúkarahúss og Kópavogsbæjar dags. 4. október 2005. Í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að aðilar eru í sameiningu að fara yfir núverandi starfsemi LSH á Kópavogstúni. Meðal þess sem rætt hefur verið er nýting aðliggjandi lóða Kópavogsbæjar og eru aðilar sammála um að unnið verði áfram að skipulagi á þessu svæði á grund- velli þess ramma sem settur hefur verið og að líknarstarf- semi LSH verði áfram staðsett á Kópavogstúni í núverandi húsnæði. Í niðurlagi yfirlýsingarinnar segir að stefnt sé að ljúka ìviðræðunum og skipulagsvinnu á næstu mánuðum með niðurstöðu sem báðir aðilar geta sætt sig viðî. Skipu- lagsnefnd samþykkti með tilvísan í yfirlýsinguna að fresta skipulagi á ìmiðjusvæðiî Kópavogstúns. Frestunin nær til 4.3 ha lands þar sem fyrirhugaðar voru 122 íbúðir í fjölbýli og 6 einbýlishús eða samtals 128 íbúðir af þeim 325 íbúð- um auk 57 þjónustuíbúða sem fyrirhugaðar voru á skipu- lagssvæðinu. Á því svæði sem aðalskipulagsbreytingin nær til og hér um ræðir er áætlað að verði samtals 197 nýjar íbúðir auk 57 nýrra þjónustuíbúða. Miðað við um 10 ha ný- byggingarsvæði (14,0 ha – 4,3 ha sem frestunin nær til) verður þéttleiki byggðarinnar um 20 íbúðir á ha (25 íbúðir á ha ef þjónustuíbúðirnar eru meðtaldar). Áætlaður íbúa- fjöldi á svæðinu miðað við 3 íbúa á íbúð og 1,5 íbúa í þjón- ustuíbúð er um 690 íbúar. Tillagan var samþykkt eins og að ofan greinir 11. október 2005 með áorðnum breytingum ásamt umsögn Bæjarskipulags um framkomnar athuga- semdir og ábendingar. Bæjaryfirvöld hafa sent þeim er at- hugasemdir gerðu umsögn sína. Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til um- hverfisráðherra um afgreiðslu. Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreinda skipulagsá- ætlun og afgreiðslu hennar er hægt að nálgast á Bæjar- skipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:00 til 14:00. Skipulagsstjóri Kópavogs. TILKYNNINGAR SÍMI 533 4040 FAX 533 4041 OPIÐ MÁN.-FIM. 9-18 OG FÖS. 9-17 Dan V.S. Wiium hdl., l gg. fasteignasali Ármúli 21, Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is T R A U S T O G Ö R U G G Þ J Ó N U S TA Reisulegt endaraðhús með sérstæðum 38.0 fm bílskúr. Húsið er 214,6 fm. Alls 252,6 fm Í kjallara er sér inngangur og möguleiki á sér íbúð. Staðsetning hússins er einstaklega góð, gróinn og skjólsæll staður. Verð 55,5 millj. LAUGALÆKUR - BÍLSKÚR Tveggja hæða hús á frábærum stað í kópavogs- dalnum. Stærð 206,4 fm. Skiptist í tvær stofur, 3 - 4 herbergi, tvö baðherbergi, eldhús, þvottahús og innb.bískúr. Góður og skjólsæll staður. Þaksvalir og sólpallur. Stutt í alla þjónustu og skóla. LAUST FLJÓTLEGA. LINDASMÁRI - ENDARAÐHÚS Rúmgóð og falleg 5 herb. horníbúð um 123 fm. á 1.hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í sameiginlegri bíl- geymslu. Fjögur svefnherbergi. Góðar innréttingar. GLÆSILEGT ÚTSÝNI. HAMRABORG - ÚTSÝNI HÖRÐALAND Glæsileg og mikið endur- nýjuð 4ra herb. endaíbúð á efstuhæð í litlu fjölbýli á falleg- um og rólegum stað. Eldhús með nýlegum ljósum viðarinnrétt- ingum. Fallegt útsýni. Suður svalir. Hús og sameign í góðu ástandi. Verð: 22,8 millj. Ólafur Guðmundsson Sölumaður Simi: 8964090 Kristinn Valur Wiium Sölumaður Simi: 8966913 SÍMI 533 4040 FAX 533 4041 OPIÐ MÁN.-FIM. 9-18 OG FÖS. 9-17 Dan V.S. Wiium hdl., l gg. fasteignasali Ármúli 21, Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is T R A U S T O G Ö R U G G Þ J Ó N U S TA VANTAR-VANTAR: Fasteignasölunni KJöreign hefur verið falið að auglýsa eftir 2ja herb. íbúðum í fjöl- býlishúsum. Um er að ræða ákveðna og fjár- sterka kaupendur. Hafið samband við sölumenn Kjöreignar. sími - 533-4040 Ólafur Guðmundsson Sölumaður Simi: 8964090 Kristinn Valur Wiium Sölumaður Simi: 8966913 Atvinnu-húsnæði til leigu 100-170 m2 til leigu í húsnæði Baðhússins. Brautarholti 20. 105 Rvk. Hentar vel fyrir t.d. hárgreiðslustofu. Nánari upplýsingar veitir Berglind Halldórsd á berglind@isf.is 60-67 (12-19) Smáar 3.11.2005 16:11 Page 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.