Fréttablaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 53
Með því að kaupa metan gas er
neytandinn að kaupa íslenskt elds-
neyti frekar en innflutt því metan-
ið er tekið sem aukaafurð úr sorp-
haugunum í Álfsnesi, en Sorpu ber
að safna hauggasi sem myndast
við rotnum lífrænna úrgangsefna
á urðunarstað og nýta eftir fremsta
megni, en annars að brenna því.
„Við erum svolítið sér á báti hér
á landi, því það er ekki víða sem
gas er notað úr urðunarstöðum.
Það er algengara að notað sé gas
sem myndast við hreinsun á skólpi
eða vinnslu á öðru lífrænu efni,“
segir Björn Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Metans hf. sem sér
um dreifingu og sölu á gasinu, en
alls ættu sorphaugarnir að geta séð
um 4.000 smábílum fyrir eldsneyti.
Nú eru 47 metan- og bens-
ínknúnar bifreiðar á landinu og
tvær sem eingöngu ganga fyrir
metani. Auk þess munu tveir
Scania-strætisvagnar sem ein-
göngu ganga fyrir metani koma til
landsins síðar í þessum mánuði.
Flestir tvíorkubílanna eru smærri
vinnubifreiðar, svo sem pallbílar,
Citroën Berlingo, VW Transporter
og VW Caddy.
Minni mengun og hljóðlátari
vélar gera metanknúna sorpbíla og
strætisvagna afar aðlaðandi fyrir
sveitarfélög auk fyrirtækja sem
byggja afkomu sína mikið á akstri.
Enn sem komið er eru metan-
bílarnir aðeins dýrari í innkaup-
um, því setja þarf aukabúnað í þá,
svo þeir geti gengið bæði fyrir
metani og bensíni, en þó vegur
margt á móti sem gerir þá afar
aðlaðandi. Fastur afsláttur af
vörugjaldi upp á 240.000 krónur
er gefinn af smábílunum, sem
þýðir að þeir kosta orðið nánast
það sama og venjulegur bensínbíll.
Auk þess er metanið ódýrara en
bensínið, og þar fyrir utan eru
metanbílar undir 10.000 tonnum
undanþegnir þungaskatti.
Helsti ókosturinn er sá að ein-
göngu er hægt að kaupa metangas á
bensínstöð Esso á Bíldshöfða í
Reykjavík. Annar ókostur er að
smærri bílvélar eru kraftminni en
sambærilegar bensín- eða dísilvélar.
„En um leið og þú ert kominn
upp í 1.800 eða 2.000, 2,4 lítra vél,
þá finnurðu engan mun,“ segir
Björn.
14 ■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Nú eru alls 47 metan- og bensínknúnir bílar á landinu, auk tveggja sem eingöngu ganga fyrir metangasi, og hafa þeir reynst afar vel.
Sorphaugarnir geta séð um
4.000 smábílum fyrir eldsneyti
Síðan Metan hf. var stofnað fyrir sex árum síðan hafa 49 bifreiðar verið fluttar inn sem ganga annað hvort ein-
göngu fyrir metani eða eru tvíorkubifreiðar. Kostir þessara bifreiða eru ótvíræðir, þær menga mun minna en bensín-
og dísilbílar, eru töluvert hljóðlátari og jafnframt er metanið framleitt hér á landi.
„Þetta er afbragðsbíll, ég mæli hik-
laust með honum,“ segir Kristján
Ómarsson, sem ekur metanknúnum
sorpbíl fyrir Reykjavíkurborg.
Kristján hefur ekið sorpbíl fyrir
borgina í á fimmta ár en síðustu tíu
mánuðina hefur hann verið aðal-
stjórnandi metanknúna bílsins.
„Helsti munurinn er sá að hann
er hljóðlátari, mengar minna og
hann er að öllu leyti þægilegri í
akstri og liprari. Aðgengið inn í
hann er mjög gott, bæði fyrir vinnu-
mennina og bílstjórann, við löbbum
bara beint inn í hann, þetta er eins
og að fara inn í strætó og við þurf-
um ekki að príla upp í hann eins og
gömlu bílana,“ segir Kristján.
Metanknúnir bílar menga mun
minna en aðrir bílar – 113 metan-
knúnir VW Caddy bílar gefa frá sér
jafn mikinn koltvísýring og einn
samskonar bensínknúinn bíll. Auk
þess er hávaðamengunin mun
minni frá stærri metanknúnum
ökutækjum en þeim sem ganga
fyrir dísilolíu eða bensíni.
Kristján Ómarsson ekur metanknúnum sorpbíl fyrir Reykjavíkurborg og segir hann mun liprari en þá bensínknúnu. Fréttablaðið/Valli
Liprari, hljóðlátari og þægilegri í akstri
Metanknúni sorpbíllinn er afbragðsbíll að mati Kristjáns Ómarssonar bílstjóra.
Væri til að vinna
á götusópara
Sverrir Þór Sverrisson,
skemmtikraftur.
Hefur þú ein-
hvern tímann
unnið á vinnu-
vél?
„Já, ég hef unnið
á lyftara. Það var
hressandi upplif-
un.“
Ef þú þyrftir að vinna á vinnu-
vél, hvaða vél myndir þú velja?
„Ég væri til í að vinna á stórum
götusópara niðri í miðbæ svo ég
gæti dottið á kaffihús og fengið
mér latte og svona.“
vinnuvélin }
Gröfu sem leikfang
ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON,
LEIKARI.
Hefur þú ein-
hvern tímann
unnið á vinnu-
vél?
„Já, hef unnið á
lyftara, svo var
traktor í sveitinni
og einnig vann
ég á gröfu.“
Ef þú þyrftir að vinna á vinnu-
vél, hvaða vél myndir þú velja?
„Mig myndi langa að vinna á
stórri og skemmtilegri gröfu.
Mig hefur oft langað til að
kaupa gröfu og leika mér á
henni.“
vinnuvélin }
14-15 vinnuvélar lesið 3.11.2005 15:57 Page 2