Tíminn - 30.11.1975, Síða 7
Sunnudagur 30. nóvember 1975.
TÍMINN
7
Fimmta bók N. V. Peale:
Undraverður drangur
jákvæðar hugsunar
öldin önnur
Bókaútgáfan Orn og örlygur
hefur sent frá sér fimmtu bók
hins vinsæla kennimanns,
Normans Vincent Peale. Nefnist
hún Undraverður árangur já-
kvæðrar hugsunar og undirtitill
hennar er: Hvernig þú vinnur
bug á erfiðleikum þinum.
Á bókarkápusegir, að bók þessi
geymi frásagnir af reynslu
þúsunda einstaklinga, sem farið
Bismarck
skal
sökkt
hafa eftir þeirri kenningu er
höfundurinn boðaði i bók sinni
Vörðuð leið til lifshamingju.
Þýðandi bókarinnar er Baldvin
Þ. Kristjánsson, og ritar hann
einnig formála þar sem m.a.
segir: Það hefur glatt mig einna
mest um mina dag og snortið mig
dýpst, hversu margir hafa per-
sónulega vitnað á hrærandi hátt
— eins og fólk annars staðar um
heim — um áhrifamátt Peales--
bókanna til farsælla lifs við hinar
óliklegustu og ólikustu aðstæður
lifsins og vandamál þess.
Bókin er að öllu leyti unninn i
Prentsmiðjunni Eddu hf., en
bókarkápu gerði Hilmar Helga-
son.
Þá var
— þriðja og
komið út
MEÐ ÞRIÐJA bindi verks sins,
sem nú er komið út hjá tsafold,
Þá var öldin önnur III, lýkur Ein-
ar Bragi þessu verki sinu og birtir
aftast nafnaskrá yfir öll bindin,
sem tengir þau saman og eykur
mjög gildi safnsins.
Eins og i fyrri bókur.um tveim-
ur kennir hér margra grasa. í
fyrsta þættinum, Seyðisfjarðar-
kaupstaður hinn forni, er grafinn
úr djúpi gleymskunnar, forboðinn
Kinar liragi
síðasta bindi
verzlunarstaöur, sem fátt var áð-
ur vitað um. Þættirnir Þrjár skaft
í'ellskar myndir, eru samdii út
frá þremur frumstæðum, en afar
skemmtilegum uppdráttum eftir
þrjá skaftfellska presta á 18. öld.
í fyrri bindum verksins eru
þessir þættir: I. bindi: Siðasta af-
taka á Austfjörðum. Sumardagar
i Suðursveit. Galdra-Fúsi.
Sumardagar á Hornbjargsvita,
II. bindi: Svipazt um i Suðursveit
á 18. öld. Darraðardansinn i Suð-
ursveit. Nokkur samstæð eintök
af öllum bindunum þremur eru
enn fáanleg hjá forlaginu.
ISAFOLDARPRENTSMIÐJA
gefur I ár út bókina Bismarck
skal sökkt eftir Ludovic Kennedy
i þýðingu Hersteins Pálssonar. —
Blaðadómar um þessa bók hafa
verið mjög á einn veg: Mikið lof
vegna itarlegrar frásagnar og
spennandi framvindu. Hér nægir
að geta þessara: „Leitin að Bis-
marck, unz skipinu var sökkt,
hefur orðið ein mesta saga okkar
tima. Spennan var svo mikil og
gæfan brosti svo sitt á hvað við
aðilum, að við ekkert verður jafn-
að.... Bezta striðsbók, sem ég hef
nokkru sinni lesið” ,,....ein mesta
saga af sjónum sem til er.... heill-
andi saga, vel sögð....”
Sýnir og
vitranir
— fjórða bók
Erich Von Daniken
FJÓRÐA bók metsöluhöfundar-
ins, Erick Von Daniken er ný-
komin út i þýðingu Dags Þorleifs-
sonar, og nefnist Sýnir og vitran-
ir, ráðgátur sem heillað hafa
mannkynið frá örófi alda. Fjallar
bókin um rannsóknir höfundarins
á sýnum og fyrirbærum um allan
heim. Á ferðum sinum um viða
veröld kom hann á marga staði
sem löngu eru-heimsfrægir fyrir
undur og kraftaverk, sem þar
hafa orðið.
Þessi siðasta bók Danikens, er
sem hinar fyrri, full af djörfum og
nýstárlegum tilgátum um leynd-
ardóma jarðar, mannkyns og al-
heims, sem hafa aflað þessum
Svisslendingi slikra vinsælda að
hann er nú einhver viðlesnasti
höfundur heims.
Bókin er sett i Prentstofu G.
Benediktssonar, prentuð i prent-
smiðjunni Viðey og bundin i
Arnarfelli hf. Káputeikningu
gerði Hilmar Helgason.
Ég ann
þér einum
— ný óstarsaga
eftir Bodil Forsberg
HJÁ Hörpuútgáfunni á Akranesi
er komin út ný ástarsaga eftir
hinn vinsæla höfund Bodil Fors-
berg, og nefnist hún Ég ann þér
einum. Aður eru út komnar á is-
lenzku sex bækur eftir sama höf-
und, og eru þær flestar uppseldar
hjá útgáfunni.
Bókin fjallar um heitar ástriður
og örlagabaráttu. Verksmiðju-
eigandinn og milljónamæringur-
inn Malling fórst á vofeiflegan
hátt. Dularfullir atburðir tóku að
gerast i sambandi við einkaritara
hans og unnustu, Gerðu Sand.
Hún skildi ekki samhengið fyrr en
hún komst að þvi að barnið sem
hún bar undir belti var erfingi að
milljónaeignum...
Skúli Jenssen þýddi bókina.
Prentun og bókband er unnið i
Prentverki Akraness h.f., en
káputeikningu gerði Hilmar
Helgason.
Á skíðum
í hlíóum Alpafjalla
Eins og síöastliöinn vetur bjóöum viö nú viku og
tveggja vikna skíöaferöir til Kitzbuhel og St. Anton
í Austurríki á veröi frá 41.700 og 50.600 krónum.
í Kitzbuhel og St. Anton eru jafnt brekkur fyrir
byrjendur, sem þá bestu. Þar er verið á skíöum í
sól og góðu veöri allan daginn, og þegar heim er
komið, bíöur gufubaö og hvild, góöur kvöldmatur og
rólegt kvöld viö arineld, - eöa upplyfting á
skemmtistaó ef fólk vill heldur.
Morguninn eftir, snemma, er stigið á skíóin og
haldið beint upp í brekkur - svona gengur þetta
dag eftir dag eftir dag, meöan á dvölinni stendur.
Sem sagt, dýrðleg dvöl í alþjóölegu andrúmslofti
meö fullkomnu ”apré ski”.
Þeir sem velja tveggja vikna feröir, geta dvalið
viku á hvorum staö ef þeir kjósa heldur.
Skíðafólk leitiö upplýsinga hjá söluskrifstofum
okkar, feröaskrifstofunum og umboösmönnum.
FLUCFÉLAC
ISLANDS
LOFTLEIOIfí
skipulagðar skíðaferðir til Evrópu