Tíminn - 30.11.1975, Síða 15

Tíminn - 30.11.1975, Síða 15
Sunnudagur 30. nóvember 1975. TÍMINN 15 FRÁ FYRSTU ÁRATUGUM GÓÐTEMPLARAREGLUNNAR í REYKJAVÍK um Gest Pálsson hefur Sveinn Skorri prófessor þessa frásögn: „Vestur á Flateyri var gamall Reykvikingur, Hinrik B. Þorláks- son, sem sagðist m.a. svo frá: „Fyrstu kynni min af Gesti voru þau að tólf ára gamall ætlaði ég að ganga i barnastúkuna Æskuna i Reykjavik. Gestur var þá gæzlumaður stúkunnar. Ég og annar drengur, Jón Magnússon, sem kenndur var við Skuld, vor- um svo auralausir, að Gestur gaf okkur báðum inngangseyri i stúk- una og aldrei fyrnist mér alúð hans og vinsemd þann dag”. Sá sem hér segir frá var trygg- ur templar til dauðadags og fékkst allmjög við barnakennslu með góðum árangri. Vafalaust hafa þessi fyrstu kynni af Gesti og Góðtemplarareglunni haft sin á- hrif á lif hans og lifsstefnu. Grundvaliarkenning Góðtempl- arareglunnar er bræðralag allra manna. Jón Ölafsson sagði, að venjuleg bindindisfélög væru stofnuð i eigingjörnum tilgangi. Menn gengju i það til að vernda sig fyrir hættu og óláni. Góð- templarareglan væri hins vegar byggð upp i þeim tilgangi að út- rýma mannfélagsböli. Hvað sem um þessi rök má segja almennt mun óhætt að segja að hér er komið að þvi, sem alltaf hefur verið höfuðstyrkur reglunnar. Bindindið er ekki tak- mark i sjálfu sér, heldur nauð- synlegt skilyrði þess að menn haldi réttu eðli og geti verið sjálf- um sér og samfélaginu til sem mestrar gagnsemdar. Þetta má orða á ýmsa vegu og hefur auð- vitað verið gert eftir tizku og lifs- skoðun hverstima. En það breyt- ir ekki þvi. Nautnalyfið, sem breytir persónuleika mannsins er fjandsamlegt eðli hans og tilgangi lifsins. Indriði Einarsson sagði i fyrir- lestri um regluna og stúkustarfið, að „serimoniurnar” væru að sögn að nokkru runnar frá frimúrara- reglunni en að nokkru frá parla- mentinu enska. Hvort sem þetta er rétt eða ekki er vafalaust um skyldleika að ræða. Formleg og virðuleg fundarsköp eins og i brezka þinginu fylgdu reglunni. Og þegar Góðtemplarareglan varð til var henni valið það form, sem áður var algengast. Þá var notað ýmiss konar dulmál i merkjum og orðum til að sanna sig. Það voru félagsskírteini þeirra tima en þetta var valið þannig að i þvi væri jafnframt merking, sem hafði einkenni félagsskaparins. Þá var lika fylgt hinni gömlu hefð að út á við ætti leynd að sveipa starf reglunnar. Enda þótt elztu gjörðabækur stúknanna segi vel frá þvi sem’ gerðist á fundunum sjálfum er hitt næsta tilviljanakennt hvaða heimildir þær geyma um stúku- starfið utan fundanna. t gjörða- bók Verðandi frá haústinu 1885 er þessi frásögn: „Bróðir Stefán Þórðarson tal- aði um, að einn félagsmaður væri veikur og eigi gott eða ráðlegt að láta félagsmenn vaka yfir honum með þvi að sjúkdómurinn væri mjög pestnæmur og gæti haft illar afleiöingar, Var siðan talað mjög mikið um þetta efni, en að lyktum stóð br. Gestur Pálsson upp og bað æ.t. að bera það upp fyrir fé- lagsmönnum hvort þeir vildu eigi fá vökukonu til að vaka yfir hon- um og þeir er ættu að vaka þá og þá nótt skyldu borga henni. Bar þvi næst æ.t. þetta upp og var það samþykkt”. Ein af fastanefndum hverrar stúku var i fyrstu kölluð sjúk- leiksnefnd en siðan hjúkrunar- nefnd. Yfirleitt eru engar skýrslur til um störf þeirra. Við sjáum af þessari frásögn, að þessar nefndir hafa hlutazt til um að vakað væri yfir veikum félög- um ef með þurfti. Nefndin hefur skipað niður hvenær hver skyldi vaka. Enginn veit hve margar þær vökunætur hafa verið. Það er tilviljun, að i þetta sinn varð það fundarmál vegna þess að sýking- arhætta var svo mikil að ráðin var vökukona. Þó eru ýmis fleiri dæmi þess að minnzt er á hjálp i veikindum og samtök um greiðslu kostnaðar vegna þeirra. Enginn getur vitað hversu mörg eru dæmin, sem ekkert er bókað um. Hitt er svo ekki nema eðlilegt að innan reglunnar mynduðust fyrstu sjúkrasjóðir með þjóðinni. Þar kviknaði visir almanna- trygginga og þar mun fyrst hafa verið talað um sjúkrasamlög. Það er eðlilegt, þvi að þar átti félagshyggjan heima. Þar þróað- ist og efldist hin félagslega á- byrgðartilfinning, sem siðar mót- aði alla félagsmálalöggjöf þjóð- arinnar. Söngur tilheyrði stúkustarfinu. Það var þvi næsta eðlilegt að strax i byrjun væri reynt að æfa félaga og þjálfa i söng. Hjá þvi varð naumast komizt. t ritara- skýrslu frá Einingunni i ársbyrj- un 1889 segir Gestur Pálsson: „Hátiðahöld hafa tvö verið á ársfjórðungnum. — Hið siðara var 200 fundaafmæli stúkunnar 26. þ.m. Þar skemmti I fyrsta sinni hér i stúkunum i Reykjavik templarasöngflokkur með góðum söng, og auk þess voru nokkur lög spiluð á harmoniúm og fiólin”. Lög Góðtemplarareglunnar voru fljótlega þýdd á islenzku. Hins vegar varð nokkur dráttur á þvi að siðbækur yrðu á islenzku. t fundargerð Einingarinnar frá 28. april 1889 segir svo frá inn- töku: „Þeir siöan samþykktir og uppteknir á islenzku i fyrsta sinn eftir nýju siðbókinni en Árni Þor- varðarson og Jóhann Jensen á dönsku þvi Jóhann er danskur að uppruna.” Þegar gjörðabækur frá fyrstu árunum eru lesnar ber þar mikið á umræðum um brot félags- manna. Þau brot eru ýmisleg. Embættismenn felldu á sig sekt ef þeir mættu ekki og voru ekki lög- lega forfallaðir. Sumir vildu ekki viðurkenna önnur forföll en veik- indi eða fjarveru úr bænum. Menn voru kærðir fyrir gálaus- legteða illt umtal um regluna eða einhverja reglufélaga. Það var lika brot að fara af fundi án þess að kveðja. En mestur timi fór þó i að ræða bindindisbrotin. Hver stúka hafði ærið frjáls- ræði um það hvaða refsingu hún legði á menn fyrir brotin. Þegar kæran var komin fram var skipuð rannsóknarnefnd. Þegar hún hafði lokið störfum gat verið ágreiningur um það hvort ætti að dæma menn seka eða ekki. Yrði maður sekur var eftir að ákveða refsinguna. Þá var um að ræða fésektir mismunandi háar, áminningu, burtrekstur um stundarsakir eða algjörlega. Oft komu fram mismunandi tillögur, voru stundum allar felldar svo að taka varð málið upp að nýju. Ein- faldur meirihluti dugði ekki til þess að tillaga um refsingu væri samþykkt. Eins gat verið ágreiningur um hvort taka ætti við nýjum félög- um. t ársbyrjun 1888 skýrði stór- templar frá þvi á fundi i Eining- unni að endurupptaka yrði ekki veitt fyrr en þrjár vikur væru liðnar frá broti og fjögur atkvæði nægðu til að synja manni um inn- göngu. Aður voru menn sam- þykktir ef mótatkvæði náðu ekki fimmta hluta atkvæða. Það má nærri geta að um þetta hafa stundum orðið viðkvæmar deilur. Maður var felldur frá inn- göngu, málið tekið upp aftur, um- ræöur fóru fram og hann var felldur á ný. Slikt hefur eflaust verið erfitt fyrir þann eða þá, sem með innsækjandanum stóðu. Eins hefur mönnum eflaust sárnað stundum i sambandi við brota- málin og meðferð þeirra. — Þá er enn á það að lita að þvi voru tak- mörk sett hvað oft þótti sæma að endurreisa menn. Templarar munu snemma hafa staðið frammi fyrir þvi, að talað væri um að þeirra menn væru ekki allir svo trúir bindindinu sem skyldi. t Bakkusarrimunni i Alþingisrimunum segir Valdimar Asmundsson svo um Bakkus kon- ung: Hofgæðinga hatar sjóli, hans þeir skilja ei dýrlegt kram. Þeir með kyngi steypa af stóli stoltir vilja öldnum gram. Sumir slikir sorgum drekkja samt þeim hara rikum hjá, Jósefs lika þar má þekkja þess frá Arimatiá. Hofgæðingar er þýðing Valdi- mars á goodtemplars. Templurum hafa að vonum sárnað þessar ásakanir og sviðið bindindisbrotin. Á fundi 1890 hóf Þorsteinn Gislason „umræður um samanburð á laundrykkjumönn- um og öðrum meinsærismönn- um.” Löngunin til að hafa hreinan skjöld og sárindi vegna brotanna hafa stuðlað að þvi, að brotlegir menn væru reknirmeð þvi ogað surpir hafa trúað á aga og strang- leika. Viðskilnaðurinn hefur ekki alltaf verið vinsamlegur, þegar mönnum var visað úr stúku. Þvi má finna fundarályktanir eins og þá, að það sé „ósamboðið templ- urum að leggja lag sitt við fyrr- verandi Goodtemplara og aðra alkunna óvini reglunnar.” Þetta allt hefur orðið til þess að sumir hurfu frá reglunni með beiskju og sárindum, sem leiddu til óvildar. Og það er ómögulegt annað en mönnum hafi stundum verið leiðindi að karpinu um brotamálin á fundunum, Þetta breyttist lika verulega þegar föst- um dómnefndum var komið á fót i stúkunum. Þegar litið er yfir islenzka sögu vekur það furðu hve mjög þjóðin hneigðist til bindindis áratugina sem næstir voru aldamótunum. Hitt er vo aftur tilsvarandi undur hvert afturkast varð i þeim efn- um eftir 1920. Með hliðsjón af þeim breytingum er eðlilegt að meta stöðu og starf bindindis- hreyfingar á hverjum tima. Góðtemplarareglan berst til landsins á hentugum tima. Hún hefur strauminn með sér. Alþýð- an er að vakna til meðvitundar um félagslegan mátt sinn. Mönn- um er almennt bjart fyrir augum og trúa á batnandi tima. Þjóðin er að heimta stjórnfrelsi og bindur við það miklar vonir. Menn finna rétt sinn og mátt, möguleika til áhrifa og skyldu sina að duga. Þá kemur Góðtemplarareglan, alþjóðlegur félagsskapur sem hefur þaö takmark að útrýma afengisframleiðslu, áfengisverzl- un og áfengisneyzlu um allan heim. Menn trúa þvi að þetta sé hægt. Menn vilja að þjóð sin verði þar i fararbroddi. Það er tima- spursmál hvenær þjóðin „hlýtur þá hamingjustund að hér þekkist vinbölið eigi” og menn vilja að þess verði sem skemmst að biða,” að ísland verði endurfrægt sem alheims fyrirmynd.” Stúkurnar urðu félagsmála- skóli þjóðarinnar. Þar lærðu menn fundarsköp og félagsstörf. Auk þess fullnægðu þær þörf og þrá eftir félagsskap. Framan af árum var ekki eða naumast ann- að að leita eftir sliku. En þegar þjóðin almennt var orðin félags- vanari mynduðust margs konar félög önnur. En innan stúknanna varð bræðralagshugsjónin oft að veruleika. Þeir eru ótaldir, sem sagt hafa að stúkan væri sér ann- að heimili. Guðmundur Magnússon vissi hvað hann geröi þegar hann spurði: Finnst þér rétt að standa hjá? Sú spurning var svo áleitin, að býsna mörgum fannst ekki annað hægt en svara henni. Og þeir féllust á það að „góðra drengja sizt má sakna” og fundu að þróunin var i samræmi við þá fullyrðingu sem á eftir fylgdi: „sigurinn nálgast”. Og þá var freistandi að svara játandi þegar kallað var: „Vertu með.” Bannlögin urðu ekki fullnaðar- sigur. Sú saga verður ekki rakin hér. En aldrei verður ofmetin sú blessun sem islenzk þjóð hafði af bindindissemi sinni þrjá fyrstu tugi þessarar aldar. Það voru unnir margir þýðingarmiklir sigrar. Þvi hefur oft verið haldið fram að bannlögin hafi brotið niður bindindissemina. Noregur og Finnland urðu um hrið bannlönd eins og Island. Sviþjóð bjó lengi við áfengisskömmtun. Danmörk hafði hvorki skömmtun né bann. Hvergi á Norðurlöndum eru áfengismálin erfiðari viðfangs en i Danmörku. Hér hafa önnur öfl ráðið meiru en löggjöfin. Vist eru nú aðrir timar en voru fyrir 90 árum. Menn hafa rýmri efnahag og þar af leiðandi ráð á að eyða meiru i óþarfa og vit- leysu án þess að fylgi neyð eða beinn skortur. Og fridagar eru miklu fleiri svo að menn geta verið óvinnufærir oftar og lengur án þess að það þurfi að bitna á vinnutimanum. Hins vegar segir það oft til sin, að menn hafa treyst á að það væri óhætt,- Svo kemur til tækni og vélvæð- ing, sem gerir auknar kröfur til þess að menn séu jafnan algáðir. En óbreytt — og óumbreytanleg — eru aðalrökin, óbrjálað eðli manns og sjálfsstjórn hans. Og heilsugæzlan — sjálfsvarðveizl- an. Þegar nefnd er heilsugæzlan minnumst við þess, að oft er sagt að menn drekki vegna streitu og til þess að losna við hana. Það tekst þó ekki betur en svo að hversu mjög sem drykkjuskapur vex hefur hann þó naumast við streitu og streitusjúkdómum. Þeir vaxa engu siður. Þess er heldur engin von að þeim verði útrýmt með áfengi. Margháttað- ar áhyggjur fylgja drykkjuskapn- um og áhyggjur magna streituna. Mönnum fannst nokkuð al- mennt um aldamótin að þeir yrðu að taka afstöðu til áfengismál- anna og afstaða þeirra hefði þýð- ingu, — gæti ráðið úrslitum. Nú finnst mörgum að þetta sé öðru- visi. Þeir fái engu um þokað. Straumur timans sé svo þungur. Svo verður árangurinn sá að þeir fljóta með straumnum og eru þá um leið orðnir viljalaus hluti af honum, — magna hann og þyngja. Ábyrgðartilfinningin hefur sljóvgazt. Það er mikil óham- ingja, þvi að ábyrgðartilfinningin er mönnum lifsnauðsyn. Hún gefur lifinu gildi, takmark og til- gang. Það er þessi sljóleiki, sem veldur þvi hve bindindishreyfing- ing er fáliðuð. Og það er sá sami v sljóleiki sem á mikinn þátt i streitu samtiöarinnar, þvi að áhugalaust lif er erfitt og varnar- laust fyrir hégómlegum áhyggj- um. Hugsjón og stefna Góðtempl- arareglunnar fellur ekki úr gildi. Félagsskapurinn breytir nokkuð um svip og yfirbragð frá einni kynslóð til annarrar. Enn eru stúkurnar félagsmálaskóli. Enn fullnægja þær þörf manna fyrir félagslif. Enn er bræðralagið veruleiki sem bindur menn saman. Enn hafa menn þar tæki- færi til þroskandi starfa og hvild- ar i áfengislausu umhverfi. Þegar sá timi kemur að menn finna almennt til ábyrgðar sinnar i sambandi við áfengismálin mun bindindishreyfingin eflast. Þá munu lika streitusjúkdómar minnka. Góðtemplarareglan vill flýta fyrir þeirri siðabót. Hún vill vekja menn til ábyrgðar. „Finnst þér rétt að standa hjá?” | / Aldarafmæli austurriska skáldsins "7 ~ Rainer Maria Rilke verður haldið hátiðiegt föstudaginn 4. DESEMBER 1975 i Auditorium á Hótel Loftleiðum fyrir alla þá, sem vald hafa á þýzkri tungu og hafa áhuga á kvæðum. Engin börn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.