Fréttablaðið - 05.11.2005, Síða 10
10 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR
STJÓRNSÝSLA Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra hefur ákveð-
ið að innheimtumiðstöð sekta og
sakarkostnaðar, vegna landsins í
heild, verði komið upp á Blönduósi
á næsta ári.
Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæj-
arstjóri Blönduósbæjar, segir að
við það skapist á bilinu 10 til 15 ný
störf í bæjarfélaginu og hluti þeirra
verði líklega sérhæfð störf eins og
lögfræði- og stjórnunarstörf. Segist
hún viss um að við ákvörðunartök-
una hafi verið litið til þess hversu
lögreglan á Blönduósi hafi verið
fylgin sér í gegnum tíðina við að
forða óhöppum og slysum með því
að sekta ökumenn fyrir hraðakstur.
„Það er mjög ánægulegt að ráð-
herra sýni í verki þann vilja sinn
að fjölga opinberum störfum úti á
landi og vonandi mun ákvörðunin
leiða til þess að bæjarbúum fjölgi,“
segir Jóna Fanney.
Innheimta sekta og sakarkostn-
aðar er nú í höndum allra lögreglu-
stjóra landsins en markmiðið með
breytingunum er að samræma,
einfalda og efla innheimtunua, auk
þess að styrkja sýslumannsembætt-
ið á Blönduósi. .- kk
Innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar á Blönduósi:
Skapar tíu til fimmtán störf
JÓNA FANNEY FRIÐRIKSDÓTTIR Bæjarstjóri
Blönduóssbæjar segir að innheimtumið-
stöðin verði með fjölmennari vinnustöð-
um bæjarins og mjög þýðingarmikil fyrir
héraðið í heild.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur þyngt
dóm Hérðaðsdóms Reykjaness
yfir útgerðarmanni sem dæmdur
er fyrir stórfelld fiskveiðibrot.
Var hann dæmdur til að greiða
800 þúsund króna sekt í ríkissjóð
en hafði áður verið dæmdur til að
greiða 600 þúsund.
Er maðurinn dæmdur fyrir að
hafa sem skipstjóri á sjö mánaða
tímabili á árunum 2001-2002,
veitt án aflaheimilda. Hæstirétt-
ur staðfesti hins vegar dóm hér-
aðsdóms um eins mánaðar skil-
orðsbundið fangelsi. Maðurinn
var einnig dæmdur til að greiða
allan sakarkostnað.
- ks
Stórfelld fiskveiðibrot:
Þarf að greiða
800 þúsund
RÓLAÐ Í RAMADAN Egypskur drengur
rólar sér í Kaíró. Í hinum íslamska heimi
stendur nú yfir Ei al-Fitr hátíðin en hún
markar lok föstumánaðarins Ramadan.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRAKKLAND Óeirðirnar sem geisað
hafa í úthverfum Parísar í rúma
viku eru farnar að breiðast út um
Frakkland. Í fyrrinótt voru ríflega
fimm hundruð ökutæki eyðilögð og
kveikt var í nokkrum byggingum.
Ekkert lát er á ólgunni í Frakk-
land sem hófst í síðustu viku þegar
tveir unglingspiltar biðu bana í
spennistöð í Clichy-sous-Bois en
íbúar hverfisins segja lögreglu-
menn hafa elt þá.
Aðfaranótt föstudagsins var sú
versta í óeirðahrinunni hingað til.
Unglingahópar, vopnaðir kylfum
og grjóti, fóru um úthverfi sem
einkum eru byggð innflytjend-
um og eyðilögðu flest sem á vegi
þeirra varð. Lögregla segir að 519
bifreiðar hafi verið brenndar til
kaldra kola á Parísarsvæðinu og í
Yvelines, vestur af höfuðborginni
voru 78 strætisvagnar eyðilagðir.
Fatlaður maður brenndist alvar-
lega þegar bensínsprengju var
hent inn í strætisvagn sem hann
var í í Sevran-hverfi. Í dögun hafði
lögreglu að mestu tekist að koma
á friði og spekt en áttatíu manns
voru handteknir eftir átökin.
Í Dijon, austar í landinu, var
einnig kveikt í bílum. Til átaka
kom í Rúðuborg og nágrenni
hennar. svo og í Rónarhéruðun-
um, nærri Marseilles.
Dominic de Villepin forsætis-
ráðherra og Nicolas Sarkozy inn-
anríkisráðherra hafa fundað um
ástandið ásamt þing- og bæjar-
stjórnarmönnum hverfanna sem
í hlut eiga. Framganga Sarkozy
hefur raunar vakið nokkra athygli
en hann sagði að ríkisstjórnin
myndi ekki líða „vandræðagepl-
um og óþjóðalýð að vaða uppi“.
sveinng@frettabladid.is
Ekkert lát á
óeirðunum
Enn kom til óspekta í úthverfum Parísarborgar í
fyrrinótt, áttundu nóttina í röð. Annars staðar í
Frakklandi kom til átaka í innflytjendahverfum.
ELDARNIR SLÖKKTIR Kveikt var í teppageymslu í Aulnay-sous-Bois í fyrrinótt og unnu yfir
hundrað slökkviliðsmenn að því hörðum höndum fram á morgun að slökkva eldinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
Primera
Ver›tilbo› 2.090.000.-
Me› nagladekkjum. Sjálfskiptur, cruise control
og bakkmyndavél í lit.
PRIMERA
NISSAN
EKKERT
VENJULEGUR
SKIPT_um stíl