Fréttablaðið - 05.11.2005, Page 71
Thurston Moore, forsprakki Sonic
Youth, sem hélt tónleika á Nasa
fyrra á árinu, er orðinn þreyttur
á að vera sífellt líkt við tónlistar-
manninn Beck.
Moore skilur ekkert í þessari
samlíkingu því hann er ellefu árum
eldri en Beck og mun hávaxnari.
„Fólk er ennþá að koma til mín og
segja: „Síðasta platan þ í n
var rosalega góð.
Ætlarðu að spila
Loser í kvöld?“
„Þá segi ég:
„Heyrðu, ég er
tveir metrar
en Beck er bara
einn og áttatíu,
ókei?“ ■
Ég er ekki
Beck!
THURSTON MOORE
Forsprakki Sonic
Youth er orðinn
þreyttur á samlík-
ingunni við Beck.
DVD-mynddiskur með fjórum
þáttum af Latabæ fær sæmilega
dóma á heimasíðunni dvdtalk.
com. Greinarhöfundur er móðir
fimm ára drengs og segist því
vera afar reynd í því að horfa á
barnaefni.
Hún byrjar á því að minnast
á vaxtarlag aðalleikarans og
höfundar þáttanna, Magnúsar
Scheving, sem fer með hlutverk
Sportacusar. „Mömmur, punktið
þetta hjá ykkur: Sportacus er
vel vaxinn. Glanni glæpur er
líka ansi sætur (skoðið bara
Stefán Karl Stefánsson á síð-
unni IMDB),“ segir greinarhöf-
undur og þykir greinilega mikið
til þeirra Magnúsar og Stefáns
Karls koma.
Hún líkir þáttunum við Mentos-
auglýsingu sýnda hratt. „Latibær
er ekki endilega slæmur þáttur
því einn kosturinn er að bæði
strákar og stelpur geta horft á
hann. En undarlegur söguþráður-
inn og skrítnar persónurnar eru
síður en svo fyrir alla.“
Bætir greinarhöfundur því
við að litlar líkur séu á því að
foreldrar geti haft gaman af
þáttunum. ■
GLANNI GLÆPUR Greinarhöfundur er hrif-
inn af Stefáni Karli Stefánssyni þegar hann
er ekki í gervi Glanna glæps.
Stæltir og sætir
aðalleikarar í Latabæ
Tölvuleikjaframleiðandinn EA
hefur öðlast réttinn til að fram-
leiða fjölda leikja byggðra á sjón-
varpsþáttunum um Simpson-fjöl-
skylduna.
Leikirnir verða gerðir í nánu
samstarfi við starfsfólk þáttanna
og meðal annars munu handrits-
höfundar þeirra koma að fram-
leiðslunni.
Leikurinn mun koma út fyrir
næstu kynslóð leikjatölva en
útgáfudagur hefur ekki verið
kynntur. ■
Tölvuleikir
um Simpson
HÓMER OG BART SIMPSON Hin vinsæla
fjölskylda frá Springfield er á leiðinni í
tölvuheima.
Miðasala er hafin á tónleika rokk-
dúettsins The White Stripes í
Laugardalshöll hinn 20. nóvem-
ber.
Koma The White Stripes til Íslands
er liður í tónleikaferð sveitarinnar
um heiminn til að kynna fimmtu
plötu sína, Get Behind Me Satan,
sem hefur fengið mjög góðar við-
tökur. Miðasalan fer fram í Skíf-
unni og á midi.is. Miðaverð er
4.500 krónur í stæði og 5.500 krón-
ur í stúku, auk miðagjalds. ■
Miðasala
hafin á White
Stripes
THE WHITE STRIPES Rokkdúettinn The
White Stripes er á leiðinni til Íslands.