Tíminn - 15.04.1976, Blaðsíða 37
Fimmtudagur 15. april 1!)76.
TÍMINN
37
HHMIlRhf a véladeild,
sími 22123. Tryggvagötu og Borgartuni. Rvk.
HitamiSstöð — til upphitunar.
Stefnuljós.
Aurbretti yfir öll hjól.
Þegar á reynir — þá er það DELITZ
sem dugar.
Pantið timanlega fyrir vorið.
F.t.A. — „klúbbsins” að halda
pexi sinu áfram, þá er stjórn
Vængja h/f, reiðubúin að ræða
málin I fjölmiðlum. Verður þá
m.a. geröur samanburður á
launakjörum meðlima F.Í.A.
og annarra stétta þjóðfélags-
ins, t.d. prófessora. í þvi
sambandi verður að sjálfsögðu
ekki hjá þvi komizt, að birta
mótsvarandi samanburð frá
nágrannaþjóðum okkar. Þeim,
sem þetta rita, er fullkomlega
kunnugt, að slikur saman-
burðurer F.t.A. stórlega óhag-
stæður og leiðir í ljós, svo ekki
verður um villzt, hverskonar
forréttindaklika meölimir
Vængir hf. hætta flugrekstrí
Flugfélagið Vængir mun hætta
flugrekstri þann 1. mal n.k. Þessi
ákvörðun var tekin á stjórnar-
fundi félagsins s.l. þriðjudag.
Engin ákvöröun hefur verið tekin
um hvort félagið verður lagt nið-
ur og flugvélar þess seldar eða
hvort breytt verður um rekstrar-
form. Nánari ákvörðun um þau
atriði verður tekin á hluthafa-
fundi, sem haldinn verður eftir
páska.
Ástæðurnar til að Vængir hætta
starfsemi eru margar, en þyngst
mun vega, aö samningar hafa
ekki tekizt við flugmenn félags-
ins. Vængir halda nú uppi flugi til
12 staða á landinu og er flug-
vélakostur félagsins tvær Otter
skrúfuþoturogein Islanderflugvél
A siðasta ári flutti félagið um 36
þús. farþega auk þess sem vöru-
flutningar voru talsverðir.
Akveðið er aö ekki verði tekið á
móti vörusendingum á afgreiöslu
Vængja.
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi yfirlýsing frá stjórn Vængja
svo og bréfaskipti vegna kjara-
deilu flugmanna:
Hinn 5. mai 1975 skrifuöu flug-
menn Vængja h/f félaginu bréf,
þar sem gerðar voru ákveðnar
tillögur og kröfur um kjarabætur.
Á stjómarfundi I Vængjum h/f
næsta dag var samþykkt aö
ganga að kröfum þessum I öllum
meginatriöum og miðuðust kjör
flugmanna slðari helming ársins
1975 við þá samþykkt. Seinni
partinn I desember s.l. barst
stjóm Vængja h/f bréf frá Félagi
islenzkra atvinnuflugmanna dag-
sett 5. des., þar sem tilkynnt var,
aö flugmenn Vængja h/f heföu
gengið i félagiö og var óskað eftir
samningsgerð um kaup og kjör
þeirra vegna. Vængjum h/f var
allsendis ókunnugt um, að fyrir
lægi nokkur sá ágreiningur, sem
ekki væri hægt að jafna milliliða-
laust við flugmennina, en hafði
aftur á móti rökstudda vitneskju
um hörku og óbilgirni F.l.A. I
kjarasamningum. Á meöan
stjórnin var að hugleiöa hin nýju
viöhorf.barstnýtt bréf, frá F.Í.A.
dagsett 22. jan. ’76 og birtist það
hér á eftir. Bréfi þessu svaraði
svo stjórn Vængja h/f 24. febrúar
og birtist svarbréfiö einnig.
Flugmönnum hefir ávallt staöið
til boða að semja beint við Vængi
h/f, en allt slikt hefir strandaö á
einstrengingsafstöðu F.I.A., sem
bannað hefir starfsmönnum alla
samninga nema á þess vegum.
Eins og fram kemur I bréfi
Vængja h/f frá 24. febrúar, hafna
þeir F.Í.A. algjörlega sem
samningsaðila, enda er félag
þetta klofið ofan i rót, og semja
flugmenn Loftleiða og Flugfélags
Islands hvorir um sig, beint við
sitt félag. Þaö eru aðeins Vængir
h/f, sem eiga aö sæta þvi að fást
við samninganefnd, sem skipuð
er af F.Í.A., á þann hátt að einn
nefndarmaður er starfsmaður
Vængjah/f, annar Flugfélags Is-
lands og sá þriöji Cargolux.
Þannig var máliö lagt fyrir sátta-
semjara rikisins. I þessu sam-
bandi má einnig benda á, að
Vængir h/f eru hið eina af litlu
flugfélögunum sem F.Í.A. hefir
nokkru sinni skipt sér af. Flug-
menn Vængja h/f hafa án þess að
gera sér það ljóst, orðiö peð i
valdatafli innan F.l.A. Stjórn
Vængja harmar það, að umrædd-
ir flugmenn, sem allir hafa reynzt
hinir nýtustu starfsmenn, skuli
þannig missa atvinnu slna, al-
gjörlega að ástæöulausu.
Fyrir hönd stjórn Vængja h/f,
Hreinn Hauksson
stj ór narf orm a ðu r
Reykjavik 22. janúar 197C
Flugfélagiö Vængir h/f.
Reykjavlkurflugvelli.
Þann 5. desember 1975, var
yður ritað stutt bréf, þar sem þess
var fariö á leit við yður, að teknar
yrðu upp samningaviðræður
vegna flugmanna, sem starfa hjá
Vængjum h/f, og eru nú orðnir
meðlimir F.I.A.
Ekki hefir oss borizt svar við
þessu bréfi, og þykir oss það lltil
kurteisi að svara ekki bréfum.
Hjálagt sendum vér yöur drög
að samningi, og óskum eftir við-
ræðum um drög þessi hið fyrsta.
Að siðustu er rétt að geta þess,
að hér erekkium neitt gamanmál
að ræða, sem hægt er að þegja I
hel, og mun F.Í.A. beita stéttar-
félagslegum aðgerðum til þess að
knýja fram samningsgerö viö
yður ef þörf krefur.
Virðingarfyllst
f.h. F.I.A.
Björn Guðmundsson, form
Félag islenzkra atvinnuflug-
manna
Háaieitisbraut 68
Reykjavik
Undanfarið hefir formaður
F.I.A. stundaö bréfaskriftir til
Vængja h/f, vegna kjaramála
flugmanna félagsins. Stjórn
Vængja h/f, hefir ekki séö ástæðu
til að svara tilskrifum þessum,
sem sum hver hafa verið með
stórum meiri valdsmannsbrag en
efni standa til. Að nánara yfir-
veguðu ráði þykir þó rétt að mæta
ásókn þessari I eitt skipti fyrir öll.
Eftirtaldar ástæður valda þvi
m.a. að Vængir h/f, hafna F.t.A.
algjörlega sem viðsemjanda:
1. Samkvæmt lögum um stéttar-
félög og vinnudeilur frá 1938
hefir F.l.A. engan „status”
sem stéttarfélag. Það hefir til
þessa verið lokaöur „klúbbur”
F.l.og Loftleiða,sem nú ganga
sameinuð undir nafninu Flug-
leiðir h/f. „Klúbbur" þessi,
(F.I.A.) sem að visu kallar sig
stéttarfélag hefir með aðferð
um, sem eru vægast sagt ekki
til fyrirmyndar meðal siðaðra
manna, slitið sig úr tengslum
og samhengi við launa- og llfs-
kjör annarra þegna Islenzks
þjóöfélags, og miða einir allra
stétta kaup sitt og kjör við það,
sem tiökast meöal stórum
ríkari og öflugri þjóöa. Þaö er
einróma álit stjórnar Vængja
h/f, að réttara sé að hætta
rekstri, og selja flugvélar
félagsins, (kaupendur eru
þegar fyrir hendi erlendis) en
að eiga llf sitt undir geöþótta
framangreinds „klúbbs”.
2. Flugmönnum Vængja h/f, var
gert ljóst, strax og stjórn
félagsins hafði veður af þvl, aö
F.I.A. hyggöist skipta sér af
kjaramálum þeirra, aö við
þann aðila yröi aldrei rætt um
þau mál. Jafnframt var þeim
tilkynnt, að ekkert væri þvi til
fyrirstöðu, að samið yröi við þá
milliliðalaust. og kjör þeirra
gerð eins góð og hagur félags-
ins framast leyfði. F.I.A. hefir,
auk athafnasemi I bréfaskrift-
um, áfellzt Vængi h/f, i fjöl-
miölum fyrir illa meðferð á
starfsmönnum sinum. Slikum
aðdróttunum er algjörlega
vísaö á bug og staðhæft, aö
launakjör manna þessara eru
stórum betri, en þeir
myndu sæta á almennum
vinnumarkaöi. Kjósi formaður
„klúbbsins” eru orðnir i
fslenzku þjóðfélagi. Slik úttekt
myndi örugglega gera hinum
almenna borgara fullkomlega
ljósar orsakir þess, að stjórn
Vængja h/f hefir tekið framan-
greinda afstöðu.
Virðingarfyllst,
f.h. Vængja h/f
Hreinn Hauksson
Afrit til:
Viðars Hjálmtýssonar
Halldórs Sigurðssonar
Jóns Valdimarssonar
Aldarfjórðungsreynsla er nú að baki DEUTZ-dráttarvélanna á íslandi. Á þeim tíma hafa
tækniframfarirnar verið miklar, en hvergi stórstígari en hjá brautryðjendum brennslu-
hreyfilsins — DEUTZ.
íslenzkir bændur hafa fylgzt með framförunum og sannreynt yfirburði loftkældu DEUTZ-
dráttarvélanna við íslenzkar aðstæður. Nýju DEUTZ-dráttarvélarnar eru fyrir þá kröfu-
hörðu, þá hagsýnu sem vilja það bezta — á hagkvæmu verði. Og svo eru það INTRAC-
vélarnar fyrir þá sem vilja taka stóra stökkið inn í framtiðina.
Loftkældur DEUTZ-diesel-hreyfill — ónæmur fyrir frostum. Heimsfrægur
DEUTZ-Transfermatic-vökvakerfi — fljótvirkt og sterkt. fyrÍT SpOmeytnÍ
Þrítengibeizli með sterkum hliðarstífum.
Stillanlegt hægindasæti vemdar heilsuna.
Auglýsing fró
sveitarfélögum
á Suðurnesjum
Heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja hefur að-
setur á bæjarskrifstofunum i Njarðvik,
simi 1202. Sérstakur viðtalstimi hans er
frá kl. 10—11 f.h. alla virka daga nema
laugardaga.
Sparið olíu — Akið Deutz
25 ára revnsla