Tíminn - 18.07.1976, Qupperneq 8

Tíminn - 18.07.1976, Qupperneq 8
8 TÍMINN Sunnudagur 18. júli 1976 Þaö er óhætt aö fullyröa aö Flókalundur er á fögrum staö, fjarri ys og þys bæjanna. Ferðaskrifstofurnar virðast hafa steingleymt Vestfjörðum FLÓKALUNDUE er einn þeirra staöa á Vestfjöröum, sem hinn almenni feröamaöur ætti ekki aö láta hjá liöa aö heimsækja. Þar er hægur vandi aö fá leyfi til aö renna fyrir lax eöa silung, og ef veöur er gott, þá aö leggjast marflatur i einhvern bollann og láta sólina baka hrimhvitt skinniö. Svæöiö i kringum Flókalund er nú friölýst, en þar hefur Alþýöusamband Vest- fjaröa, i samráöi viö Náttúru- verndarráö, hafiö byggingu orlofshúsa skammt frá veitingastaönum. Þarna eru áætluö þrjátiu hús, en þegar er nær lokið byggingu þess fyrsta. Það er reist af Lögreglufélagi Vestfjarða. Þegar blaðamaöur Timans var þarna á ferö fyrir skömmu, þá var litiö við hjá hótelstjóran- um, Hebu Olafsson, en hún Fyrsta orlofshúsiö aö veröa fullbúiö. en þaö eru lögregluþjónar á Vestfjöröum sem koma til meö aö búa þarna I sumarleyfum sinum. Blaöamennfrá Dagblaöinu, Anna Bjarnason og Atli Steinarsson, voru i afslöppunarferö i Flókalundi. Þaö lá hreint ekki svo illa á Hebu og Sverri Bergmann kokki Flókalundar. hefur verið viðriöin veitinga- og hótelrekstur i Flókalundi sl. tiu ár. Hins vegar er staöurinn, ásamt Bjarkarlundi i eigu hlutafélagsins Gests. Viö spurö- um Hebu hvenær starfsemin hefði byrjað. — Þaö var um 1960 að hér var starfrækt litil kaffistofa, en fljótlega kom i ljós, aö grund- völlur var fyrir miklu viðameiri starfsemi. Þá var hér byggt eld- hús, veitingasalur og fjögur gistiherbergi. 1 kringum 1966 var ákveðið að stækka staðinn meir og gera það myndarlega. Sú viðbót komst i gagnið 1971. Það er óhætt að segja að þetta hafi verið gert myndarlega, öll herbergi eru teppalögð og með snyrtiaðstöðu. — Hvað er opið lengi hjá ykk- ur á ári? — Staðurinn opnar i júni, en við verðum að loka fyrstu dag- ana i september. Hins vegar var hér opið lengur áður en Djúp- vegurinn kom til sögunnar. Isfirðingar til dæmis, sem voru hér oft fyrir opnun hans, gista nú frekar i Bjarkarlundi, enda liggur það miklu beinna við fyr- ir þá. Aðspurð sagði Heba, að nýt- ing á hótelrýminu hefði verið allsæmileg það sem af er sumri. Staðurinn fær t.d. hópa frá Ferðaskrifstofu rikisins, en eins og Timinn skýrði frá fyrir skömmu, þá hefur ferðaskrif- stofan tekið upp nýja áætlun um Vestfirði. Heba sagði, að sér virtust þessar ferðir vera nokk- uð vinsælar, en i Flókalundi gista hóparnir tvær nætur. — En aðrar ferðaskrifstofur virðast algjörlega hafa gleymt þvi að Vestfirðir eru á landa- kortinu. Það er eins og ekkert annað sé til á Islandi en Gull- foss, Geysir og Mývatn. Hins vegar hafa mér sagt útlending- ar, sem hingað hafa komið, að Vestfirðirnir séu sizt tilkomu- minni en aðrir staðir, sem þeir hafa skoðað. Það má ef til vill segja, að við séum eitthvað úr leið, en ekki svo, að svari ekki kostnaði að koma hingað. Ferðamaður, sem er á eigin bil getur til dæmis farið mjög fallega leið hingað á Vestfirði, þ.e. hann getur farið til Stykkis- hólms og tekið þaðan flóabát- inn, komið við i Flatey og tekið siðan land á Brjánslæk. Þá get- ur hann auðvitað einnig farið landleiðina, en ég nefni hitt sem dæmi, þvi að það eru ekki marg- ir, sem hafa séð Breiðafjarðar- eyjarnar. — Að lokum Heba, hvernig er að vinna sem hótelstjóri? — Éger búinn að vera i þessu nú i tiu sumur. Þetta er strangt og mikiö að hugsa um. Vinnu- dagurinn er i raun og veru allur sólarhringurinn, en það þýðir ekki að vera i hótelrekstri nema að vaka yfir honum. En sem betur fer, þá er hér gott starfs- fólk, og það hefur ekki svo litla þýöingu þegar öllu er á botninn hvolft. ASK.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.