Fréttablaðið - 02.12.2005, Page 53
Eigendur Læknablaðsins hafa nú
farið að kröfu Kára Stefánsson-
ar og rekið Vilhjálm Rafnsson
ritstjóra, valinkunnan velunnara
Læknablaðsins með langan og far-
sælan feril að baki sem mótandi
og stjórnandi blaðsins. Uppsögn
Vilhjálms er einungis til komin
vegna þess að Vilhjálmur heimil-
aði birtingu greinar í Læknablað-
inu, þar sem Jóhann Tómasson
læknir telur sig afhjúpa meint
stjórnsýsluleg mistök og dóm-
greindarleysi í sambandi við ráðn-
ingu Kára Stefánssonar í stöðu
afleysingalæknis á deild Landspít-
alans fyrir nokkru. Hin gagnrýna
grein Jóhanns vakti mikla athygli
og stendur hún raunar enn opin-
berlega óhrakin.
Gagnrýni Jóhanns fór greini-
lega fyrir brjóstið á Kára Stef-
ánssyni og fylgisveinum hans.
En í stað þess að reyna að hrekja
strax efni greinarinnar valdi Kári
þá leið að losa sig við ritstjórann
og setja þannig bann á alla ámóta
gagnrýni til frambúðar. Og þetta
tókst, því tungan er úr boðberan-
um. Nú hefur auðmjúkur Sigur-
björn Sveinsson, formaður Lækna-
félags Íslands, þjónað fyrir altari
Kára. Hann hefur bæði kysst á
vöndinn og höndina á leiðtoganum
- og rekið Vilhjálm. Og allt þetta
fyrir formennskuna í læknafélag-
inu - og frið í læknastétt.
En kjarkleysi hins auðmjúka
formanns ríður ekki við einteym-
ing. Hann þorir ekki að viður-
kenna augljósan brottrekstur
Vilhjálms. Nei, ritstjórinn var alls
ekki rekinn. Hann var bara ekki
látinn vera með í næstu ritstjórn!
Hvílík karlmennska! Hvílík reisn!
Sjáum við ekki hér fjöruborðið í
stórstreymi mannlegra athafna?
Það verður ekki lægra - það kemst
ekki neðar.
Kári fékk að reka Vilhjálm
ritstjóra og Sigurbjörn formaður
sá um handaþvottinn. Og grein
Jóhanns læknis stendur enn.
Þannig er staðan í dag. Og þannig
staða býður auðvitað engan frið.
Hvorki í læknastétt - né annars
staðar.
Höfundur er læknir.
Kári rekur
ritstjóra
Læknablaðsins
UMRÆÐAN
LÆKNABLAÐIÐ
GUNNAR INGI GUNNARSSON
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
FÖSTUDAGUR 2. desember 2005