Fréttablaðið - 02.12.2005, Side 78
2. desember 2005 FÖSTUDAGUR62
KÖRFUBOLTI Hinn stóri og stæði-
legi körfuknattleiksmaður Baldur
Ólafsson hefur neyðst til þess að
leggja skóna á hilluna öðru sinni,
aðeins 26 ára að aldri,
Baldur lagði skóna fyrst á hill-
una eftir tímabilið 2003-04 vegna
verkja og tognunar í hásinum.
Baldur hélt sér við líkamlega með
því að stunda ólympískar lyfting-
ar og hélt að hann væri orðinn
nógu góður til þess að spila á ný.
Eftir aðeins fimm leiki er hann
orðinn verri en áður í fótunum
og því taldi hann réttast að hætta
aftur.
„Lappirnar á mér þola þetta
ekki lengur,“ sagði Baldur á
heimasíðu KR en hann gæti átt
erfitt með að ganga ef hann pass-
ar ekki á sér fæturna.
Eins og áður segir lék Baldur
fimm leiki fyrir KR í vetur og
hann var með 6,4 stig að meðaltali
í þessum leikjum. Hann tók þar að
auki 2,8 fráköst að meðaltali og
varði 1,4 skot.
- hbg
Sorgarsaga Baldurs Ólafssonar heldur áfram:
Hefur lagt skóna á
hilluna öðru sinni
BALDUR ÓLAFSSON Ferli hans er endanlega lokið. Hann sést hér verjast ásókn Njarðvík-
ingsins Friðriks Stefánssonar.
FÓTBOLTI Antonio Cassano, leik-
maður Roma á Ítalíu, er nú sagður
á leið til Juventus en Fabio Capello,
knattspyrnustjóri Juventus, vill
ólmur fá hann til félagsins.
Cassano er einn besti ungi
leikmaður sem komið hefur upp
á Ítalíu undanfarin ár en Capello
þjálfaði hann þegar han var við
stjórnvölinn hjá Roma. - mh
Juventus vill Cassano:
Cassano á för-
um frá Roma
ANTONIO CASSANO Cassano er einn efni-
legasti leikmaður Ítalíu.
FÓTBOLTI Sam Allardyce, knatt-
spyrnustjóri Bolton, segist ætla að
bíða fram á sumar með að reyna
að kaupa japanska miðjumanninn
Hidetoshi Nakata til félagsins, en
hann er í láni hjá liðinu um þess-
ar mundur og verður út tímabilið.
Nakata er þó samningsbundinn
Fiorentina og gæti því kostað
skildinginn.
„Við viljum fá hann en lykill-
inn í þessu er peningarnir sem
Fiorentina vill fá og þeir sem við
getum eytt. Við þurfum að styrkja
okkur í janúar og því þurfa pen-
ingarnir fyrir honum að koma úr
fjárhagsáætlunum næsta tíma-
bils,“ segir Allardyce.
Sam Allardyce:
Nakata keypt-
ur í janúar?
HIDETOSHI NAKATA Hefur ekki verið upp
á sitt besta að undanförnu, að sögn stjóra
síns.
FÓTBOLTI Diego Lugano, leikmaður
Sao Paulo í Brasilíu, er á leiðinni
til ítalska stórliðsins AC Milan,
en hann hefur verið undir smásjá
evrópskra stórliða um nokkurt
skeið.
Lugano leikur sem miðvörður
en Vanderlei Luxemburgo, knatt-
spyrnustjóri Real Madrid, hefur
lengi reynt að kaupa hann. Nú
hefur AC Milan tryggt sér þjón-
ustu Lugano, en hann mun þó ekki
koma til félagsins fyrr en næsta
sumar.
- mh
AC Milan að styrkja hópinn:
Lugano á leið
til AC Milan
CARLO ANCELOTTI Ancelotti er strax farinn
að huga að liðsstyrk fyrir næsta keppnis-
tímabil.