Fréttablaðið - 03.12.2005, Síða 2
2 3. desember 2005 LAUGARDAGUR
Yfirgripsmesta
verk sem út
hefur komið
um íslenska
málnotkun.
�������������������������������������
��������������������������������������������
ORÐABÓK FRAMTÍÐARINNAR
Bókin er yfir 1600 bls. í stóru broti.
����������
������������
����������
������������������
FRAMKVÆMDIR Kapp er lagt á að
ljúka frágangi við nýju Hring-
brautina og hluta Miklubrautar og
er stefnt að því að allt verði fínt og
flott fyrir jól.
Meðal annars hefur verið tyrft
og gróðursett og kann einhverj-
um að þykja undarlegt að slík
verk séu unnin á þessum árstíma.
Þórólfur Jónsson, garðyrkju-
stjóri Reykjavíkur, segir haustið
ágætan tíma til gróðursetningar
en vissulega ráði tíðin þar nokkru
um. „Bæði þarf að vera hægt að
ná plöntunum upp í gróðrarstöðin-
ni og setja þær niður og tíðin að
undanförnu hefur nú verið alveg
á mörkunum. Menn hafa þó rótað
vel í öllu og því hefur ekki náð að
frjósa almennilega í þessu,“ segir
Þórólfur og telur líklegt að trén
laufgi í vor.
„Við gerum talsvert af því að
gróðursetja á haustin því þá er
tíminn rýmri en á vorin,“ segir
Þórólfur.
Hann veit ekki hversu mörgum
plöntum verður plantað við nýju
Hringbrautina en telur þær hlaupa
á þúsundum. - bþs
Frágangur við nýju Hringbrautina í Reykjavík á lokasprettinum:
Gróðursett á aðventunni
PLANTAÐ Á JÓLAAÐVENTUNNI Nokkur þúsund plöntur fara niður meðfram Hringbrautinni
og hluta gömlu Miklubrautar þar sem myndin var tekin í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS
Guðmundur Ómar, hafa
þeir fengið greitt með
gúmmítékkum?
„Já, maður gæti haldið það. Að
minnsta kosti að hluta virðast þeir
hafa fengið greitt með gúmmítékkum.“
Guðmundur Ómar Guðmundsson, formaður
Félags byggingarmanna í Eyjafirði, segir að
tvö fyrirtæki á Akureyri greiði tékkneskum
starfsmönnum lægri laun en lögbundnir
lágmarkstaxtar kveði á um.
LÖGREGLA Tvö fíkniefnamál komu
upp í umdæmi Keflavíkurlög-
reglunnar aðfaranótt föstudags.
Skömmu fyrir klukkan tvö vakn-
aði um það grunur hjá lögreglu-
mönnum við eftirlit á skemmtistað
í Keflavík að einn gesta staðarins
hefði á sér fíkniefni. Við leit á
honum fannst hassbútur sem lög-
regla lagði hald á.
Á fjórða tímanum gerðu lög-
reglumenn svo leit að fíkniefnum
í heimahúsi í Njarðvík. Þar fund-
ust 48 grömm af hassi og einnig
rafstuðsbyssa. Þá voru um nóttina
höfð afskipti af ökumanni bifreiðar
í Keflavík sem grunaður var um að
aka undir áhrifum áfengis. - óká
Lögreglan á Suðurnesjum:
Fann bæði
hass og vopn
EFNAHAGSMÁL „Enn eru verðbólgu-
horfur ekki nógu góðar. Banka-
stjórnin hefur því ákveðið að
hækka stýrivexti bankans um 0,25
prósentur,“ sagði Davíð Oddsson
seðlabankastjóri í gær, þegar hann
kynnti forsendur vaxtaákvörðu-
nar bankans í fyrsta skipti eftir
að hann tók við stöðu seðlabanka-
stjóra. Þetta þýðir að stýrivextir
Seðlabankans verða 10,5 prósent.
Mun það væntanlega leiða til þess
að vextir af skammtímaskuldum
landsmanna sem og langtíma-
skuldum með breytilegum vöxtum
hækki fljótlega sem þessu nemur.
Þetta er ekki eins mikil hækkun
vaxta eins og greiningadeildir
bankanna höfðu spáð. Í septem-
ber hækkaði Seðlabankinn vexti
um 0,75 prósent og sagði Birgir
Ísleifur Gunnarsson, þáverandi
Seðlabankastjóri, að skilaboðin
væru skýr. Ætlunin væri að stan-
da við verðbólgumarkið um 2,5
prósent verðbólgu.
Aðspurður hvort þetta væri
nógu mikil vaxtahækkun og hvort
trúverðugleika Seðlabankans
væri stefnt í voða sagði Davið svo
ekki vera. Síðasta hækkun hefði
skilað tilætluðum árangir í fyrsta
skipti frá því að Seðlabankinn
hóf að hækka vexti í maí 2004. Í
kjölfarið hækkuðu útlánavextir
banka, sparisjóða og Íbúðalána-
sjóðs, en hækkun fasteignaverðs
hefði verið mikill drifkraftur
verðbólgu undanfarið.
Þá sagði Davíð að ákveðið
hefði verið að fjölga formlegum
vaxtaákvörðunardögum úr
fjórum í sex. Seðlabankinn
myndi endurskoða stöðuna 26.
janúar næstkomandi og taka
nýja ákvörðun um hvort hækka
ætti vexti. Bankinn gæti þó
breytt vöxtum hvenær sem er
en þyrfti að rökstyðja ákvörðun
sína sex sínum á ári.
Meginmarkmið Seðlabankans
er að halda aftur af verðbólgu.
Skal hún vera sem næst 2,5 pró-
sentum á ársgrundvelli. Miðað við
óbreytta vexti og gengi krónun-
nar eru horfur á að verðbólgan
verði 3,1 prósent eftir eitt ár
samkvæmt spá Seðlabankans.
Greiningardeildir bankanna gera
þó ráð fyrir meiri verðbólgu og að
gengi krónunnar falli á næsta ári.
Þá geta innfluttar vörur hækkað
og aukið þrýsting á verðbólguna.
Þetta er óvissuþáttur sem getur
haft mikil áhrif á þróun mála
næstu mánuðina. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins er því
líklegt að vextir fari enn hærra á
næsta ári.
bjorgvin@frettabladid.is
Síðasta vaxtahækkun
skilaði sér að fullu
Verðbólguhorfur eru ekki nógu góðar og tilkynnti Seðlabankinn hækkun
stýrivaxta í gær. Varð það minni hækkun en greiningaraðilar gerðu ráð fyrir.
HVERNIG VIRKA STÝRIVEXTIR?
Seðlabankinn framkvæmir pen-
ingastefnuna einkum með því að
stýra vöxtum á peningamarkaði,
fyrst og fremst í gegnum ávöxtun
í viðskiptum sínum við lánastof-
nanir. Hækkun stýrivaxta Seðla-
bankans veldur undir eðlilegum
kringumstæðum hækkun vaxta
á sparnaði, skammtímaskuldum
sem og langtímaskuldum með
breytilegum vöxtum. Í mjög
einföldu máli má segja að þegar
vextir hækka er orðið hagstæðara
fyrir fólkið í landinu að spara og
dýrara að eyða. Þetta á að slá á
eftirspurn í hagkerfinu og draga úr
verðbólgu.
DAVÍÐ ODDSSON TILKYNNIR HÆKKUN STÝRIVAXTA Davíð sagði að horfur væru á að það
dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum. Húsnæðisverð þyrfti að lækka og gengi krónunnar
að haldast tiltölulega hátt og stöðugt.
LÖGREGLA Líkt og undanfarin
ár leggur lögregla í Reykjavík
aukna áherslu á eftirlit með
ölvunarakstri í desember.
Lögreglan segir reynslu
undanfarinna ára vera þá að í
desember freistist fleiri öku-
menn til að aka undir áhrifum
áfengis.
„Ökumenn mega búast við að
verða stöðvaðir á öllum tímum
sólarhringsins,“ segir á lögreglu-
vefnum og bent á að fyrsta
sólarhring mánaðarins hafi sjö-
tíu ökumenn verið stöðvaðir,
látnir blása og ástand þeirra
kannað. Einn reyndist ölvaður
og einhverjir með útrunnin öku-
réttindi.
Lögreglan segist senda skýr
skilaboð um að neysla áfengis og
akstur fari aldrei saman. „Öku-
menn eru beðnir að hafa þetta í
huga og þeim óskað góðs gengis
í umferðinni,“ segir Reykjavíkur-
lögreglan. - óká
Umferðareftirlit í desember:
Meiri áhersla á
ölvunarakstur
WASHINGTON, AP Tíu hermenn í
landgönguliði bandaríska flotans
biðu bana í sprengjuárás nærri
írösku borginni Falluja í fyrradag.
Ellefu félagar þeirra særðust.
Þetta er mannskæðasta árás sem
Bandaríkjamenn hafa orðið fyrir í
landinu um alllangt skeið.
Í tilkynningu frá Bandaríkja-
her í gær kom fram að langgöngu-
liðarnir hefðu verið fótgangandi
á vegi skammt fyrir utan borgina
þegar heimatilbúin sprengja, búin
til úr fallbyssuskotum, sprakk í
vegkanti. ■
Sprengjuárás í Falluja:
Bandarískir
hermenn dóu
BAUGSMÁL Hæstiréttur felldi
í gær úr gildi þann úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur að
Sigurður Tómas Magnússon,
settur saksóknari í Baugsmá-
linu, væri ekki bær til þess að
fara með ákæruvald í þeim hluta
málsins sem enn er rekinn fyrir
dómstólum.
Verjendur í Baugsmálinu
settu ekki fram neinar kröfur
en Sigurður Tómas, settur sak-
sóknari, vildi úrskurð réttarins
um það hvort hann væri bær og
hæfur til að saksækja í málinu.
Hæstiréttur telur sig ekki
geta dæmt um kröfur Sigurðar og
bendir á að hafi hann skort vald
til þess að fara með málið þegar
það var tekið fyrir i héraðsdómi
16. nóvember verði að líta svo á
að enginn hafi mætt þann daginn
í dómþingið fyrir hönd ákæru-
valdsins. Því sé sjálfgert að fella
úrskurðinn úr gild.
Bogi Nilsson ríkissaksóknari
staðfesti í bréfi til dóms-
málaráðherra 24. nóvember að
hann hefði sagt sig frá öllu máli-
nu. Í kjölfar þess ítrekaði dóms-
málaráðherra að Sigurður væri
settur yfir ákæruliðina alla.
Fari svo að Sigurður teljist
réttur sækjandi í Baugsmálinu
munu verjendur sakborninga
krefjast úrskurðar dómstóla um
hæfi Björns Bjarnasonar til þess
að setja Sigurð. - jh
Hæstirettur sker ekki úr um það hver sé réttur saksóknari í Baugsmáli:
Ógildir úrskurð engu að síður
SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON
LJÓSBERINN Thelma Ásdísar-
dóttir var í gær útnefnd Ljós-
beri ársins 2005 af Stígamótum.
Dómnefndin segir að Thelma sé
útnefnd vegna þess að hún hafi
með ógleymanlegum hætti snert
streng í þjóðarsálinni þegar hún
kynnti átakanleg uppvaxtarár
sín. Með þessu gefi hún öðrum
styrk til þess að takast á við
óhugnað og eyðingu við sjúkar
uppeldisaðstæður.
Þetta er í fjórða sinn sem Ljós-
beri ársins er valinn en viður-
kenningunni er ætlað að koma af
stað umræðu sem styrkir dóm-
greind og siðvit þjóðarinnar. - saj
Ljósberi ársins valinn:
Thelma valin
Ljósberi ársins
LJÓSBERI ÁRSINS 2005 Thelma
Ásdísardóttir valin Ljósberi ársins í gær.
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������