Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 6
6 5. desember 2005 MÁNUDAGUR
B Ó K A F O R L A G
B R Æ Ð R A B O R G A R S T Í G 9 , S Í M I 4 1 4 1 4 5 0
w w w . v e r o l d . i s • v e r o l d @ v e r o l d . i s
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
V
ER
3
04
83
1
2/
20
05
GÆFUNA
Í JÓLAPAKKANN!
Bók sem líkt
hefur verið við Alkemistann
og Litla prinsinn.
Njóttu velgengni
í einkalífi og starfi!
– amazon.co.uk
SINGAPÚR, AP Aftökur á áströlskum
heróínsmyglara í Singapúr og
bandarískum morðingja í gær
hafa vakið upp viðbrögð, bæði
jákvæð og neikvæð.
Rétt fyrir dögun í gær, að
singapúrskum tíma, var Nguyen
Tuong Van, 25 ára Ástrali
af víetnömsku bergi brotnu,
hengdur í fangelsi í borgríkinu
en hann var gripinn þar með 396
grömm af heróíni árið 2002.
Nokkrum klukkutímum síðar
var Kenneth Lee Boyd gefin
eitursprauta í fangelsi í Raleigh
í Norður-Karólínu. Boyd myrti
eiginkonu sína og tengdaföður
árið 2002. Hann varð þar með
þúsundasti fanginn sem tekinn
er af lífi í Bandaríkjunum eftir
að dauðarefsing var tekin þar
upp á ný árið 1976.
Fyrrgreinda málið hefur
valdið mikilli spennu á milli
Ástrala og Singapúra og í
vikunni sagði John Howard,
forsætisráðherra Ástralíu, að
málið gæti skaðað samskipti
þeirra. Syed Hamid Albar,
utanríkisráðherra Malasíu, kom
hins vegar nágrönnum sínum til
varnar í gær og sagði að lögum
hefði einungis verið framfylgt.
Bandarískir embættismenn
sögðu að réttlætinu hefði verið
fullnægt með aftöku Boyds
en baráttumenn fyrir afnámi
dauðarefsinga kváðust vonast til
að dauði hans yrði til að slíkar
refsingar yrðu aflagðar. - shg
Skiptar skoðanir um dauðarefsingar í kjölfar tveggja sögulegra aftaka í gær:
Sá þúsundasti tekinn af lífi í gær
AFTÖKUNNI MÓTMÆLT Baráttumenn fyrir afnámi dauðarefsinga mótmæltu aftöku
Kenneths Lee Boyd fyrir utan fangelsið í Raleigh í fyrrakvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÁLVERSFRAMKVÆMDIR Ný skýrsla um
íbúafjölda og þörf á íbúðarhúsnæði
á Austurlandi fram til ársins 2008
gefur tilefni til að ætla að störf sem
til verða á Austurlandi í tengslum
við álver Alcoa í Reyðarfirði
verði fleiri en áður var áætlað.
Samkvæmt skýrslunni mun
álverið skapa allt að 882 ný störf,
beint og óbeint, en í fyrri skýrslum
hefur verið gengið út frá að álverið
skapi í heildina um 750 ný störf.
Munurinn er tæplega 18 prósent og
felst í því að skýrsluhöfundar gera
ráð fyrir að afleidd störf vegna
álversins verði fleiri en áður var
gert ráð fyrir.
Skýrslan var kynnt á blaða-
mannafundi á Akureyri í gær en
hún er fyrsta skýrslan af mörgum
sem væntanlegar eru á næstu árum
í tengslum við ítarlega rannsókn á
samfélagsáhrifum virkjana- og
álversframkvæmda á Austurlandi.
Rannsóknin hófst í fyrra og lýkur
síðla árs 2009 en að henni standa
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið,
Byggðastofnun, Byggðarannsókn-
arstofnun Íslands og Þróunarfélag
Austurlands. Kostnaður við
rannsóknina í heild verður 64
milljónir króna og mun Iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið greiða ríflega
helminginn af kostnaðinum.
Jón Þorvaldur Heiðarsson,
hagfræðingur hjá Rannsókna-
stofnun Háskólans á Akureyri, er
aðalhöfundur að skýrslunni sem
kynnt var í gær og segir hann að sér
hafi komið á óvart hversu mörg af
nýju störfunum muni falla konum
í skaut. „Því hefur oft verið haldið
fram að álverið muni aðallega
skapa karlastörf en samkvæmt
okkar útreikningum er það ekki
rétt. Það er yfirlýst stefna Alcoa
að allt að helmingur starfsmanna
álversins verði konur og gangi
það eftir munu konur sinna um 70
prósent af þeim nýju störfum sem
til verða á Austurlandi í tengslum
við álverið,“ segir Jón Þorvaldur.
Árið 2003 voru byggðar 30
nýjar íbúðir á Austurlandi, 150
í fyrra og í ár verða byggðar 350
íbúðir. Skýrsluhöfundar telja að
þessi mikla aukning nái þó engan
vegin að svara eftirspurn eftir
íbúðahúsnæði og þeir telja að fram
til ársins 2008 þurfi að byggja að
minnsta kosti 600 nýjar íbúðir til
viðbótar ¿ flestar á Egilsstöðum og
Reyðarfirði. kk@frettabladid.is
Fleiri kvennastörf
skapast fyrir austan
Samkvæmt nýrri skýrslu mun álver Alcoa í Reyðarfirði skapa fleiri afleidd störf
en áður var talið. Stór hluti þeirra starfa mun falla konum í skaut. Fram til
ársins 2008 er þörf á 600 nýjum íbúðum á Mið-Austurlandi.
KJARAMÁL Í niðurstöðum starfshóps,
sem Fræðsluráð Reykjavíkur
skipaði vegna kennaraverkfallsins
2004, kemur fram að „forysta
kennara hafi brugðist skyldum
sínum við mótun kröfugerðar og
stillt fram kröfugerð sem var til
þess fallin að draga viðræður á
langinn og skaða samningaferlið.“
Ólafur Loftsson, formaður félags
grunnskólakennara, er ekki
sammála því að kennaraforystan
hafi brugðist sínu fólki. „Það er
engin ástæða til að elta ólar við
sumt af því sem þarna kemur
fram“ segir Ólafur.
Í niðurstöðum starfshópsins
kemur fram að sú ákvörðun
Kennarssambands Íslands að biðja
um frest á kjaraviðræðum vegna
sumarfría starfsmanna samninga-
nefndar kennarasambandsins lýsi
forystuleysi og skorti á samning-
sumboði. Ólafur gefur ekki mikið
fyrir þessa fullyrðingu. „Þessi
fullyrðing er röng, menn voru sam-
mála um að gera þetta á þessum
tíma,“ segir hann.
Í skýrslunni kemur líka fram
að starfshópurinn telur sig ekki
hafa forsendur til að gagnrý-
na undirbúning Launanefndar
sveitarfélaganna eða starf hennar
á meðan á viðræðuferlinu stóð. - sk
Starfshópur skilar úttekt vegna kennaraverkfallsins:
Forystan brást kennurum
GRUNNSKÓLANEMAR AÐ LEIK Forysta
Kennarasambands Íslands er gagnrýnd í
úttekt starfshóps Fræðsluráðs Reykjavíkur.
KJÖRKASSINN
Sendirðu SMS-skilaboð daglega?
Já 32%
Nei 68%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er nauðsynlegt að bæta kjör
öryrkja?
Segðu þína skoðun á visir.is
FRAMKVÆMDIR VIÐ ÁLVER ALCOA Á REYÐARFIRÐI Álverið mun skapa allt að því 900 ný störf á Austurlandi samkvæmt nýrri skýrslu. Eru
það átján prósentum fleiri störf en ráð var fyrir gert.
JÓN ÞORVALDUR HEIÐARSSON Í skýrslu
um íbúafjölda og þörf á íbúðarhúsnæði á
Austurlandi kemur fram að vegna álversins
í Reyðarfirði mun Austfirðingum fjölga um
allt að 2.330 en ella hefði þeim fækkað
um 530 á árabilinu 2002 til 2008.