Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 8
8 3. desember 2005 LAUGARDAGUR ������ �������������������� ���������� �������������������������������������� � � � ����������������������� � ��������������������������������� � � ����������������������������� ��������������������� ������������������������������� ������������������������������������������������� �� �������������������� ��������������������������������� „Þrælfín spennusaga sem heldur athyglinni óskertri allan tímann.“ Guðríður Haraldsdóttir / VIKAN �������������������� �������������� �������������� ����������� ���������� VEISTU SVARIÐ 1 Hvers vegna var Ástralinn Nguyen Truon Van tekinn af lífi í Singapúr? 2 Hvað heitir eiginkona Rogers Moore? 3 Hvaða liði mætir KA í dag í Evrópukeppninni í handbolta? SVÖRIN ERU Á BLS. 74 8.587.000 8.644.000 8.347.000 7.898.000 6.600.000 6.400.000 jan.-okt. 2005 jan.-okt. 2004 Heildarfjöldi farþega yfir árið Fjöldi farþega fyrstu tíu mánuði 2004 og 2005 FJÖLDI FARÞEGA STRÆTÓ Á ÁRI LEIÐAKERFI KYNNIR NÝJA KERFIÐ Björk Vilhelmsdóttir, formaður stjórnar Strætó bs., þegar nýja leiðakerfið var kynnt á Hlemmi á dögunum. Nú ræðir stjórn fyrirtækisins umtalsverðar breytingar á því. FRAKKLAND, AP Fyrstu orðin sem konan sem gekkst undir fyr- stu andlitsflutningsaðgerðina sem reynd hefur verið sagði voru „takk fyrir“. Frá þessu greindu franskir skurðlæknar á blaðamannafundi í Lyon í gær. Aðgerðina framkvæmdu þeir á sjúkrahúsi í Amiens í Norður- Frakklandi síðastliðinn sunnu- dag. Dr. Bernard Devauchelle sagði að sjúklingurinn hefði komist til meðvitundar sólarhring eftir aðgerðina, en í henni var nef, munnur og haka grætt í einu lagi á konuna, sem hundur hafði lim- lest í framan. Andlitshlutinn var skorinn af heiladauðri konu, en aðstandendur hennar höfðu fal- list á það. „Sjúklingurinn var vaknaður eftir réttan sólarhring og, ben- dandi á barkaslönguna, sagði fyr- sta orðið: merci,“ sagði Devau- chelle. Á bak við hann var varpað upp á skjá mynd af þeim andlits- hluta sem græddur var á. Konan sem gekkst undir aðgerðina vill ekki að nafn hennar komi fram. Hún er 38 ára fráskilin móðir tveggja dætra á unglingsaldri. Frá því aðgerðin var gerð hefur hún getað borðað jarðarber og súkkulaði og drukkið kaffi og safa, að sögn læknanna. - aa Frakkar græða nýtt andlit á manneskju í fyrsta sinn: Fyrsta orð sjúklingsins var „takk“ AÐGERÐIN SKÝRÐ Frá blaðamanna- fundinum í Lyon í gær. MYND/AP SAMGÖNGUR Stjórn Strætó bs. ræðir nú leiðir til úrbóta á leiða- kerfinu, að sögn Bjarkar Vilhelms- dóttur formanns stjórnar Strætó. Breytingarnar munu taka gildi í febrúar ef um semst, en þær fela meðal annars í sér að bætt verður við þremur nýjum leiðum, tveimur í Reykjavík og einni í Kópavogi og öðrum leiðum verður breytt. „Þetta er unnið með tilliti til fjárhagsáætlunar og kostnaðar- skiptingar milli sveitarfélaganna,“ segir Björk. „Reykjavík er að fara fram á töluvert meiri þjónustu og er tilbúin til að greiða fyrir það. Við teljum, að með þeim hug- myndum sem stjórnin fjallar nú um sé verið að koma til móts við stóran hluta þeirra ábendinga sem við höfum fengið vegna nýja leiðakerfisins.“ Björk segir að leiðirnar sem unnið verði með tengist Efra- Breiðholti, Mjódd og Suðurlands- braut. Einnig Norð- Austurhver- funum við Bústaðaveg og Hlemm, Nýbýlavegi og Hamraborg í Kópa- vogi, Hamra hverfi í Reykjavík, svo og Hamrahlíð. Í athugun sé að tengja Grafarholtið við Hlemm. „Við teljum að orðið geti mjög góð sátt um þetta,“ segir Björk og bætir við að nú sé unnið að því að fjármagna breytingarnar. Ekki sé ljóst hversu mikill kostnaðurinn verði, en ljóst sé að viðkomandi sveitarfélög þurfi að bæta inn í rekstur Strætó bs. Að sögn Harðar Gíslasonar, aðsto ða rfra mk væmd astjóra Strætó bs., hefur farþegum Strætó fækkað um 6-8 prósent milli ára miðað við fyrstu tíu mánuðina 2004 og 2005. „Í sjálfu sér kemur þessi fækkun okkur ekkert á óvart allra fyrsta kastið,“ segir Hörður. „Þetta var gífurleg aðgerð, að leggja gamla leiðakerfinu og taka upp nýtt. Menn hafa rætt hvort þetta samanburðartímabil væri ekki of stutt, hvort það þyrfti ekki að vera 18 eða jafnvel 24 mánuðir. Það liggur hins vegar á borðinu að samdrátturinn í farþegafjölda hefur aukist núna. Einkabílasalan hefur þar vafalaust áhrif, því hún hefur aldrei verið meiri en nú. Þegar hefur dregið úr henni hefur orðið aukning hjá Strætó. Það er greinilega langtímaferli í gangi og við tengjum það við einkabílinn.“ jss@frettabladid.is Strætó bætir við leiðum Stjórn Strætó bs. ræðir nú róttækar breytingar á nýja leiðakerfinu. Þær felast meðal annars í því að bæta við þremur nýjum leiðum. VERÐKÖNNUN Bónus var oftast með lægsta verðið í verðkönnun Alþýðusambands Íslands á bök- unarvörum og jólakökum í ellefu verslunum sem gerð var í gær. Reyndist mest vera 62 pró- senta verðmunur á hæsta og lægsta verði vörukörfu með tíu algengum vörum til baksturs og í yfir helmingi tilfella reyndist vera yfir 50 prósenta verðmunur á jólakökum. Var verslun 10/11 oftast með hæsta verð í báðum flokkum. ■ Verðkönnun ASÍ á bökunarvörum: Allt að 50% munur MENGUN Svifryk mældist í gær yfir umhverfismörkum í Reykja- vík, að því er fram kemur hjá Mengunarvörnum Umhverfis- sviðs. Búist er við áframhaldandi stilltu veðri og því er útlit fyrir að magn svifryks í andrúmslofti verði áfram yfir umhverfismör- kum. Umhverfissvið Reykja víkur- borgar vekur athygli á að hyggi- legt er, fyrir þá sem eru með viðkvæm öndunarfæri, að halda sig fjarri fjölförnum umferðar- götum. Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin. - jss Mengun í Reykjavík: Svifryk yfir mörkum STJÓRNMÁL Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, mun leiða lista Samfylkingarinnar í bæjarstjórnarkosningum í vor. Þetta var samþykkt á félagsfun- di Samfylkingarinnar. Í öðru sæti verður Ellý Erlingsdóttir bæjar- fulltrúi og í því þriðja Guðmundur Rúnar Árnason bæjarfulltrúi. - aöe Samfylkingin í Hafnarfirði: Lúðvík leiðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.