Fréttablaðið - 03.12.2005, Qupperneq 18
3. desember 2005 LAUGARDAGUR18
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.125 -0,01% Fjöldi viðskipta: 369
Velta: 14.978 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Actavis 49,00 -0,80% ... Bakkavör 50,00 -0,80% ... FL Group
16,00 +1,30% ... Flaga 5,01 +2,30% ... HB Grandi 9,50
+0,00% ... Íslandsbanki 16,70 +0,60% ... Jarðboranir 24,00
-2,00% ... KB banki 655,00 -0,30% ... Kögun 59,20 +0,00%
... Landsbankinn 23,80 +0,00% ... Marel 64,80 +1,40% ... SÍF
4,15 -0,70% ... Straumur-Burðarás 15,40 +0,00% ... Össur
112,00 +0,00%
MESTA HÆKKUN
Sláturfélagið +3,89%
Flaga +2,25%
Marel +1,41%
MESTA LÆKKUN
Jarðboranir -2,04%
Actavis -0,81%
Bakkavör -0,79%
Hversdagsleg atvik sem við öll þekkjum verða
Jóni Gnarr tilefni til að skoða lífið út frá því
sjónarhorni þar sem jafnvægi milli kímni og
alvöru ríkir. Texti hans er snarpur og hristir
duglega upp í lesendum. Hann er einlægur í
trú sinni og djarfur vegna þess að trúin er
lifandi í brjósti hans og heil.
SKÁLHOLTSÚTGÁFAN
Kirkjuhúsið
Laugavegi 31 – Sími 552 1090
NJÓTUM VETRAR Á UPPLÝSTUM LAUGAVEGINUM
JÓN GNARR
ÁRITAR BÓK SÍNA Í KIRKJUHÚSINU
LAUGAVEGI 31 Í DAG MILLI KL. 15 OG 16
ÞANKAGANGUR JÓNS GNARR
Citigroup hefur hækkað verðmat
sitt á easyJet úr 280 pensum á hlut
í 400 pens og mælir með kaupum
í breska lággjaldaflugfélaginu.
Gengi easyJet stóð í 350
pensum á markaði í gær
sem er 12,5 prósentum undir
verðmatsgenginu.
Bankinn tekur það sérstaklega
fram að mikil áhætta fylgi því að
eiga bréf í easyJet.
Í greiningunni kemur fram að
meðal nýrra hluthafa í easyJet
eru Baugur Group, sem átti um
2,2 prósent þann 1. nóvember,
og KB banki sem fór með um
hálft prósent. Báðir aðilar eru
jafnframt meðal stærsta eiganda
í FL Group. Að viðbættum hlut
FL Group nálgast eignarhlutur
þessara íslensku fjárfesta um
nítján prósent af hlutafé easyJet.
Höfundar verðmatsins telja að
með innkomu Andrews Harrison
í stól forstjóra easyJet sé félagið
tilbúið til að taka næstu skref.
Bankinn býst við að félagið muni á
næstu árum auka hagnað sinn en
ekki einungis veltu sem einkennt
hefur reksturinn undanfarin
misseri. Kaup FL Group á bréfum
í easyJet auki vitund stjórnenda
félagsins um að hámarka arðsemi
félagsins, enda minnki það líkur á
yfirtöku af hálfu Íslendinganna ef
verðmæti félagsins aukast.
Hækkun verðmatsins byggist
meðal annars á því að afkoma
easyJet á síðasta rekstrarári var
umfram væntingar. Citigroup
hækkar spár sínar um hagnað
easyJet á árunum 2006-´07. Á
næsta ári er búist við að hagnaður
félagsins hækki um 10,7 prósent á
hlut frá fyrri spá en aukist svo um
32 prósent árið 2007 og um 38,5
prósent ári síðar.
Citigroup reiknar það út að
meðalkaupgengi FL Group á 16,2
prósenta hlut í flugfélaginu hafi
verið um 192 pens á hlut. Hefur
því virði hlutanna hækkað yfir
80 prósent ef ekki er tekið tillit til
styrkingar krónunnar gagnvart
pundi. Í greiningunni er gert
ráð fyrir að FL Group auki hlut
sinn enn frekar þar sem nýlegt
hlutafjárútboð gaf félaginu um
65 milljarða til frekari verkefna.
Það er þó óljóst hvert endanlegt
markmið FL Group sé en Citigroup
reiknar með því að FL Group fari
fram á sæti í stjórn easyJet.
eggert@frettabladid.is
Verðmiðinn 400
pens á easyJet
Baugur Group og KB banki meðal hluthafa í
easyJet. Meðalkaupverð FL Group 192 pens á hlut.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, hefur
fallið frá rétti sínum til að
kaupa 2,9 milljónir hluta í
bankanum á genginu 3,58.
Landsbankinn greiðir Halldóri
laun sem nemur mismuninum á
núverandi markaðsgengi, sem
stendur í 24 krónum á hlut, og
kaupréttargenginu. Ætla má að
Halldór fái rétt um 59 milljónir
króna í greiðslu.
Hann nýtir sér þó rétt sinn til
að kaupa eina milljón hluta í
Landsbankanum á genginu 3,58.
Eftir kaupin er markaðsverðmæti
hlutabréfa Halldórs í bankanum
um 250 milljónir króna.
Halldór á nú kauprétt að tæpum
49 milljónum hluta á mismunandi
verði, mest á genginu sjö og
fjórtán. - eþa
Fær 59 milljónir í
stað kaupréttar
MARKAÐSPUNKTAR
Virði evrópskra hlutabréfa náði fjögurra
ára hámarki annan daginn í röð í gær.
Spár um bætta afkomu fyrirtækja
vegna aukins efnahagsvaxtar ýta undir
hækkunina.
Guðmundur A. Birgisson bætti verulega
við hlut sinn í Sláturfélagi Suðurlands
í gær og á nú um þriðjung hlutafjár í
félaginu.
Asísk hlutabréf náðu fimm ára hámarki
í gær eftir útkomu skýrslu sem gefur til
kynna að bandarískur efnahagur færi
vaxandi án þess að valda þenslu.
Engu við að bæta
Davíð Oddsson seðlabankastjóri tilkynnti í gær að
Seðlabankinn ætlaði að hækka stýrivexti bankans um
0,25 prósent. Var það í fyrsta skipti sem hann gerir
grein fyrir vaxtaákvörðunum Seðlabankans og bar sig
vel. Það er kannski ekki auðvelt fyrir lögfræðing að
útskýra alla þá þætti sem snúa að stjórn peningamála
í landinu þrátt fyrir að hafa stýrt efnahagsmálum
ríkisstjórnarinnar frá árinu 1991. Davíð svaraði þó
skýrt og örugglega þeim spurningum sem að honum
var beint og virtist sannfærandi. Reyndar svaraði hann
svo skýrt að þegar hann bauð Arnóri Sighvatssyni
aðalhagfræðingi og samstarfsmönnunum sínum
tveimur í bankastjórninni, Jóni Sigurðssyni og Eiríki
Guðnasyni, að bæta einhverju við hristu þeir hausinn.
Það væri engu við þetta að bæta.
Vinnulaus laun
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnar-
formaður Icelandic, kynnti í gær fyrir greiningaraðilum
uppgjör félagsins fyrir þriðja ársfjórðung. Hann vildi
ekki svara spurningum um hvað brottrekstur Þórólfs
Árnasonar kostaði félagið. Sagði að ekki yrði „tekið
forskot á sæluna“ og menn gætu bara lesið þetta í
ársreikningi! Það er kannski ekkert skrítið að þetta sé
ekki upplýst; svo margir fyrrverandi starfsmenn eru
á launaskrá. Gunnar Svavarsson,
fyrrverandi forstjóri frá því í
vor, fær greidd laun í 24
mánuði. Þórólfur og Magnús
Scheving Thorsteinsson voru
látnir fara og fengu greiddar
sárabætur. Þá var líka gengið
frá starfslokum Magnúsar
Gústafssonar, sem var yfir
Icelandic í Bandaríkjunum, í
mars. Skipulagsbreytingarnar
kosta sitt fyrir hluthafana.
ICEX-15 5.125 -0,01%
FJÖLDI VIÐSKIPTA 369
Velta 14.978 milljónir
Mesta hækkun
Sláturfélagið +3,89%
Flaga +2,25%
Marel +1,41%
Mesta lækkun
Jarðboranir -2,04%
Actavis -0,81%
Bakkavör -0,79%
CITIGROUP HÆKKAR VERÐMAT Nýtt verðmatsgengi hljóðar upp á 400 pens á hlut en
markaðsvirði er í 350 pensum. Baugur og KB banki hafa bæst í hóp FL Group sem hluthafar.
„Ákvarðanir Seðlabankans í dag
eru nokkuð hlutlausar og ættu
ekki að hafa afgerandi áhrif á
þróunina á gjaldeyrismarkaði.
Miklu skiptir þó hvort útgáfur á
skuldabréfum í íslenskum krónum
taka við sér í desember. Ef svo fer
ekki má gera ráð fyrir að krónan
sígi áfram,“ sagði í fréttum
greiningardeildar Landsbankans
í gær eftir að tilkynnt var um
hækkun stýrivaxta Seðlabankans.
„Þessi vaxtahækkun er í lægri
kanti þess sem markaðsaðilar
höfðu búist við og á mörkum
þess að vera í samræmi við þær
yfirlýsingar sem áttu sér stað
á síðasta Peningamálafundi í
september,“ sagði í hálffimm
fréttum KB banka.
Hlutlaus ákvörðun
Peningaskápurinn...