Fréttablaðið - 03.12.2005, Page 44
[ ]
���������������
�����������������
����������� ��
���������
����������������������������
F
A
B
R
IK
A
N
������������������������������������������
������������������������������������������������
Jói
Fel
BLÓMÁLFURINN
Vesturgötu 4 sími 562 2707
Íslandsmeistari í blómaskreytingum
í i
Bráðum
koma
bleiku
jólin
SKIPHOLTI 21 (NÓATÚNSMEGIN)
SÍMI 561 0847
TEXTÍLGALLERY
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4
Jólakort getur verið gaman að föndra með fjölskyldunni. Þeir sem ætla
að senda heimagerð jólakort til annarra landa þurfa að fara að huga að því..
Á kyrrlátum stað við
Sogaveginn búa hjónin Bragi
Baldursson og Guðrún Lísa
Erlendsdóttir. Frístundum
verja þau gjarnan við
föndur, ekki síst fyrir jólin
og afraksturinn selja þau á
hóflegu verði í Jólaþorpinu í
Hafnarfirði.
Það er heldur betur jólalegt um
að litast heima hjá Braga og
Guðrúnu, jafnt utandyra sem
innan. Bílskúrinn er verkstæði
jólsveinsins en á borðinu og yfir
því eru tréleikföng til skrauts
sem Bragi smíðaði handa börnum
sínum ungum. „Ég er búinn að
dunda mér við smíðar frá því ég
man eftir mér,“ segir hann. „Það
var mikið til af verkfærum heima,
pabbi var handlaginn sem og afi
minn og svo er þetta líka arfgengt
í móðurætt.“
Bragi er á miðjum aldri, einn af
10 systkinum sem ólust upp í litlu
húsi við Kópavogsbrautina. Hann
man eftir þegar vatnið var sótt
um langan veg til heimilisnota
og vegurinn náði ekki alla leið
heim. Nú vinnur hann sem
vörubílstjóri en Guðrún kona
hans er skjalavörður. Á kvöldin
og um helgar finnst Braga gott
að komast í skúrinn þar sem hann
sagar út og smíðar hina fegurstu
gripi. Meðal þess sem hann býr til
er spýtujólatré eins og þau voru í
gamla daga og slík tré eftir hann
eru nú á sýningu Handverks og
hönnunar.
„Ég var búinn að ganga með
þetta tré í undirmeðvitundinni
í áratugi og var ekki svipstund
að búa það til þegar ég byrjaði,“
segir hann brosandi. Við hlið
bílskúrsins er Hreysið, eins og
þau hjón kalla úthýsi við skúrinn.
„Hér mála ég hlutina,“ segir
Bragi. En hvert skyldi þá hlutverk
húsfreyjunnar vera? „Ég sé um
hjartaþræðingarnar,“ segir hún
hlæjandi og bendir á bönd og
slaufur sem hún festir í útskorin
hjörtu og annað punt.
gun@frettabladid.is
Listilega útskorið lítið jólatré.
Föndra saman í skúrnum
Jólatré með gamla laginu.
Bragi við útsögunarvélina og Guðrún Lísa í hjartaþræðingum.
Vandvirknin skilar sér í fallegum munum.