Fréttablaðið - 03.12.2005, Page 46

Fréttablaðið - 03.12.2005, Page 46
 3. desember 2005 LAUGARDAGUR Í dag verður haldinn jólamarkaður Ásgarðs í Mosfellsbæ. Ásgarður er verndaður vinnustaður og þar vinna um 28 þroskaskertir einstaklingar. Verkstæðið framleiðir húsbúnað og leikföng úr tré sem hafa samsvörun í íslenskum þjóðháttum. Fréttablaðið kíkti í heimsókn í Ásgarð í vikunni til að sjá hvernig undirbúningurinn fyrir jólamarkaðinn gengi. Við komuna í Ásgarð var vel tekið á móti blaðakonunni og henni heilsað með breiðu brosi af góðu fólki í listsmiðju Ásgarðs. Allir unnu hörðum höndum við að pússa og skreyta fallega muni sem verða á boðstólnum á jólamarkaðinum, enda voru aðeins tveir dagar til stefnu þegar Fréttablaðið kom í heimsókn og því í nógu að snúast. Óskar Albertsson, talsmaður Ásgarðs, tók sér svo tíma frá annasömum undirbúningi til að spjalla við Fréttablaðið. „Við reynum að halda jólamarkaðinn árlega og það hefur gengið ljómandi vel,“ segir Óskar. „Við höfum selt mikið og verið mikið fjör og mikið gaman. Í fyrra komu um fjögur hundruð manns á markaðinn.“ Allir starfsmenn Ásgarðs taka þátt í jólamarkaðnum og rennur ágóði sölunnar í rekstur h a n d ve r k s t æ ð i s i n s . Óskar segir þó starfsmennina ekki vera þá einu sem leggja af mörkum í jólamarkaðinn. „Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir ætla að koma og syngja og Jónas Þórir leikur undir, þannig að það verður nóg að gera. Svo getur fólk fengið kaffi og kökur á vægu verði,“ segir Óskar og brosir. Leiðin lá svo á smíðaverkstæðið þar sem vinnusamur hópur ungra manna, pússaði og sagaði út trémuni, rétt eins og hjálparmenn jólasveinsins daginn fyrir jól. Allir voru þeir sammála um að mikilvægt væri að framleiða sem mest til að geta selt sem mest á markaðnum í dag. Greinilegt er að mikil kátína ríkir í hópnum og fólk í Ásgarði hlakkar mikið til að fá sem flesta gesti. Til sölu á markaðnum verða leikföng, húsbúnaður, jólaskraut og ýmislegt annað. Allt unnið af mikilli vandvirkni. Allir eru velkomnir, ættingjar, vinir eða aðrir jólaáhugamenn, sem hafa áhuga á að kynnast þeim dásamlegu handverksmönnum sem þarna vinna. Jólamarkaðurinn verður opinn í dag milli 14 og 17 í húsnæði Ásgarðs á Álafossvegi 22 í Mosfellsbænum. AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Sögurnar, tölurnar, fólki›. Skemmtileg og falleg smáhús. Fallegt handverk á jólamarkaði. Óskar Albertsson, talsmaður Ásgarðs, hlakkar til að taka á móti gestum í dag í Ásgarði og segir alla velkomna. Skemmtileg jólatré sem hægt er að púsla saman. Klassískur kertastjaki. Askja með loki og skemmtilegu viðarmynstri. Jólakötturinn og íslenska sauðkindin. Dýrin eru klædd í ull. Óhefðbundin jólatré sem skreyta mætti á skemmtilegan máta. Allir munirnir sem unnir eru í Ásgarði eru handgerðir. Starfsfólkið sagar, pússar, lakkar og skreytir og er hönnunin sérstaklega falleg.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.