Fréttablaðið - 03.12.2005, Síða 47
LAUGARDAGUR 3. desember 2005 9
Hópmeðferð – Innsæismeðferð
Á næstunni hefst hópmeðferð fyrir fullorðna einstaklinga sem vilja efla
samskipti, starfsgetu, sköpunargleði, bæta andlega og líkamlega líðan.
Í hverjum hópi verða 8-10 manns sem mætir 3 sinnum í viku.
Meðferðin byggir á „psychoanalytiskum“ grunni, þ.e. kenningum
sálgreiningar sem hafa verið þróaðar með tilliti til hópa.
Að meðferðinni stendur þverfaglegt teymi. Í teyminu eru Anna K. Kristjáns-
dóttir, sjúkraþjálfari, Halldóra Halldórsdóttir, listmeðferðarfræðingur,
Hanna Unnsteinsdóttir, félagsráðgjafi, Ragnheiður Indriðadóttir,
sálfræðingur. Ráðgefandi geðlæknir starfar við teymið.
Nánari upplýsingar eru veittar frá mánudegi til fimmtudags í símum
557-1438 og 553 9655 frá kl. 18:00 til 19:00.
geymið auglýsinguna.
Jólastjarnan heitir Euphorbia
pulcherrima á latnesku,
endingin þýðir hin fegursta.
Hún þarf mikla nærgætni í
umgengni.
Eitt af því sem skapar einstaka
stemningu í aðdraganda jóla er
hin tignarlega jólastjarna. Hún
prýðir margar stofur á Íslandi í
desember en í Mexíkó vex hún
hins vegar villt og getur orðið allt
að fimm metra hár runni.
Eiginleg blóm jólastjörnunar
eru lítil og gul en það eru háblöðin
sem eru ástæða vinsældanna, þau
verða rauð eða hvít og allt þar á
milli.
Jólastjarnan er viðkvæmt
blóm sem þarf sérstaka nærgætni
í umgengni eins og Anna
Hreindal, garðyrkjufræðingur
hjá Garðheimum, lýsir nánar.
„Jólastjarnan þolir ekki
trekk og kulda og þarf
því að standa í miðju
rými í dálítilli birtu
og sem jöfnustum
hita. Rakastig
moldarinnar þarf
líka að vera jafnt.
J ó l a s t j a r n a n
vill ekki vera
rennblaut og
alls ekki standa
í vatni en hún
má heldur ekki
þorna alveg. Það
þarf því að vökva hana
frekar þétt og best er að
vatnið hafi fengið að standa í sem næst
stofuhita.“ Spurð hvort jólastjarnan sé
eitruð svarar Anna. „Ef blað brotnar af
blóminu verður að gæta þess að vökvi
úr sárinu berist ekki í augu eða
munn. Ég veit þetta hljómar eins
og jólastjarnan sé alger
v a n d r æ ð a p l a n t a
en henni fyrirgefst
flest út á fegurðina
og gleðina sem
hún veitir. Hún
er partur af jóla-
s k r e y t i n g u n n i
á mörgum
heimilum.“ ■
Hin fegursta
Jólastjarnan er glæsilegt
blóm sem gleður okkur
í skammdeginu.
Barnabókahátíð hefst í bókabúð
Máls og menningar á Laugavegi kl. 11.
Syngjandi jól í Hafnarborg þar sem
fjöldi kóra og sönghópa kemur fram.
Dagskráin hefst kl. 11 og stendur
fram eftir degi.
Léttsveit Reykjavíkur heldur árlega
jólatónleika sína í Langholtskirkju
kl. 16. Ragnheiður Gröndal
er einsöngvari og Jóhanna
Þórhallsdóttir stjórnar.
Mótettukór Hallgrímskirkju heldur
jólatónleika í Hallgrímskirkju kl. 17.
Þetta eru jafnframt útgáfutónleikar
hljómdisksins Jólagjafarinnar.
Garðar Thór Cortes heldur
útgáfutónleika í Grafarvogskirkju
og syngur þar sígild jólalög ásamt
lögum af fyrstu einsöngsplötu sinni
„Cortes“. Tvennir tónleikar verða
haldnir, kl. 18 og 21.
á jóladöfinni
3. desember
Ljóðadagur í hefst í Bókabúð Máls
og menningar á Laugavegi kl. 14.
Hin árlega Grýluhátíð á Skriðuklaustri
hefst kl. 14.
Kveikt verður á jólatrénu á
Austurvelli kl. 16. Lúðrasveit
Reykjavíkur hefur dagskrána kl.
15.30 með því að leika falleg jólalög.
Aðventutónleikar Kvennakórs
Reykjavíkur og Karlakórsins Þrasta í
Grafarvogskirkju 4. des. kl. 17.
Björn Steinar Sólbergsson leikur
franska jólatónlist í Hallgrímskirkju
kl. 17.00.
Kökubasar Kvenfélags Kópavogs
hefst kl. 14 í sal félagsins,
Hamraborg 10, 2. hæð. Kaffi og
vöfflur á boðstólum. Andvirðið
rennur til styrktar góðum málefnum.
Árleg jólasýning Byggðasafns
Árnesinga verður opnuð í Húsinu
á Eyrarbakka. Í stofum Hússins
er hin árlega jólasýning safnsins
á safngripum tengdum jólunum.
Þar má meðal annars finna elsta
varðveitta jólatré landsins sem er
spýtujólatré frá 1873.
Jólatónleikar Lúðrasveitarinnar Svans
verða í Tónlistarhúsinu Ými við
Skógarhlíð kl. 20.
Aðventukvöld í Lágafellskirkju kl.
20.30. Páll Óskar og Mónika leika
jólatónlist.
4. desember