Fréttablaðið - 03.12.2005, Page 49
[ ]
Velkomin um helgina
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
HÖFUM OPNAÐ
Á NÝJUM STAÐ
skoðið fallega skartgripi í glæsilegu umhverfi
eru í tísku núna. Það er alveg tilvalið að gefa karlmönnunum í
fjölskyldunni trefla í jólagjöf. Verið samt með það á hreinu áður
hvort viðkomandi karlmaður geti hugsað sér að ganga með trefil.
Röndóttir herratreflar
Skrautnælur hafa verið
vinsælar síðustu tvö árin og
standa enn fyrir sínu.
Ein falleg næla setur afar fallegan
svip á flík eða fylghihlut og gamall
gallajakki getur til dæmis gengið
í endurnýjun lífdaga með nýrri
nælu, jafnvel fleiri en einni.
Mál er að láta hugmyndaflugið
ráða því nælurnar er hægt að setja
í hvað sem er hvenær sem er.
Úrvalið af nælum er yfirdrifið
í bænum og fjölbreytnin og
litagleðin er í fyrirrúmi. Verðbilið
er sömuleiðis breitt og að
sjálfsögðu háð gerð og gæðum
nælunnar. Tískubúðirnar bjóða
flestar upp á tískunælur í ódýrari
kantinum á meðan skartgripa- og
gullsmíðabúðir eru með nælur
í klassískari kantinum og eilítið
dýrari.
Allir ættu því að finna sér nælur
við hæfi til að skreyta kápuna eða
kjólinn fyrir jólin. ■
Skemmtilegar
skrautnælur
Silfurnæla með
rauðum jaspísstein kr.
7.900.
Svört næla úr
geitahorni kr.
4.400 Mona.
Brún næla úr
kindahorni kr.
4.800 Mona.
kr. 3.500 Júníform.
kr. 13.500 Mona.
kr. 2.900 Júníform.
kr. 3.500
Júníform.
Ekki þarf að vera flókið að
versla föt á börnin.
Jólaföt á börnin er best að
kaupa í tíma. Mikið úrval er af
jólafötum bæði á stelpur og stráka
í barnafataverslunum bæjarins.
Í Hagkaupum má til að mynda
finna flott jólaföt á bæði stelpur
og stráka. Stelpurnar geta
valið úr kjólum, pilsum,
bolum og blússum og
á strákana er hægt að
fá jakkaföt í ýmsum
litum, skyrtur, vesti
og bindi. Að ýmsu
er að hyggja
þegar valin eru
föt á börnin.
Til dæmis er
mikilvægt er að
auðvelt sé að þvo
þau. Ef börnin
eru tekin með
í verslunar–
leiðangur er
best að fara á
tíma þegar lítið er
að gera í búðunum.
Nauðsynlegt er að
börnunum líði vel
í fötunum, annars
fást þau ekki til
að fara í þau.
Jólaföt á
börnin
Í Hagkaupum fást
flott jakkaföt á stráka.