Fréttablaðið - 03.12.2005, Page 84
3. desember 2005 LAUGARDAGUR64
SMART Glæsileikinn
var allsráðandi á
tískusýningunni.
Soroptimistafélagið hélt tísku-sýningu í Árbæjarkirkju á mánudaginn var og
sýndu hönnuðirnir Katrín Helga
Ágústsdóttir og Hildur Bolladóttir
þar verk sín. „Ég sýndi þarna
vesti sem eru úr ull og silki og
bómullarfatnað sem unninn er með
batik-vinnslu,“ sagði Katrín Helga
Ágústsdóttir, sem einnig kennir
listgreinar við Kvennaskólann.
„Hildur Bolladóttir kjólameistari
sýndi einnig þarna velúrflíkur
og maðurinn hennar, Ófeigur
Björnsson, sýndi skartgripi. Þetta
gekk ósköp vel og konurnar voru afar
ánægðar.“ Að tískusýningunni
stóð Soroptimistafélagið, en
í því kvennafélagi er ein kona
úr hverri starfsgrein. „Vinkonur
félagskvennanna komu á sýning-
una og keyptu sér kvöldverð og
ágóðinn rennur til Leitarstöðva
Krabbameinsfélagsins.“ ■
Glæsileiki í Árbæjarkirkju
Einleikurinn Typpatal hefur
heldur betur farið vel af stað og
er strax búið að panta sýninguna
til Vestmannaeyja. Auk þess
hafa fleiri bæir beðið um að fá
sýninguna til sín á næstu vikum
og greinilegt að gott orð fer af
henni. Leikritið snýst aðallega um
könnun sem höfundurinn Richard
Herring gerði og er stykkið eins
konar karlmannlegt svar hans við
Píkusögunum. Auðunn Blöndal
fer með einleikinn og það er
Sigurður Sigurjónsson sem fer
með leikstjórn. Svo er bara að sjá
hvort Vestmannaeyingar taki jafn
vel í Typpatalið og Reykvíkingar.
Fleiri vilja sjá Typpatal
TYPPATAL Auðunn Blöndal talar um typpi.
GLÆSILEG Falleg flík úr
smiðju Katrínar Helgu.
BATIK Þessi flík er unnin með batik-aðferð
og hönnuð af Katrínu Helgu Ágústsdóttur.
FÍNAR Konurnar voru glæsilegar í hönnun Hildar Bolladóttur.
VELÚRKJÓLL Hannaður af Hildi Bolladóttur. SMART VESTI Hönnuð af Katrínu Ágústsdóttur og eru úr ull og silki.
Hljómsveitirnar Sign og I Adapt
halda tónleika á Lækjartorgi í kvöld
á milli klukkan 22.00 og 24.00.
Tónleikarnir eru liðir í Aygo-
Úti-Blast tónleikaröðinni. Sign
hefur verið á tónleikaferð um
landið og stefnir á erlendar
grundir eftir áramót. I Adapt
hefur verið framarlega í íslensku
neðanjarðarsenunni undanfarin
ár. Ekkert aldurstakmark er á
tónleikana og aðgangseyrir er
enginn. Boðið verður upp á kaffi,
kakó og með því. ■
Lifandi Lækjartorg
I ADAPT Rokksveitin I Adapt heldur tónleika á Lækjartorgi í kvöld ásamt Sign.