Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 86
Hljómsveitinni Sign hefur verið
boðið á SXSW-tónlistarhátíðina í
Texas í Bandaríkjunum sem fer
fram 15.-19. mars á næsta ári.
Hljómsveitirnar Ske, Ampop
og Vinyl spiluðu á sömu hátíð
á þessu ári. Sign ætlar að
nota tækifærið og fara fyrst
í tveggja vikna tónleikaferð
um Bandaríkin. Til aðstoðar
hljómsveitinni þar í landi eru
velunnarar í Bandaríkjunum sem
sáu hana á Iceland Airwaves í
október.
„Þetta verður gaman, ég vona
það allavega. Við erum mjög
spenntir fyrir þessu,“ segir Egill
Rafnsson úr Sign. Þetta verður
í fyrsta skipti sem Sign heldur
tónleika utan Íslands og játar
Egill að sveitin hafi stefnt að því
að spila úti í langan tíma. „Þessir
túrar hjá okkur heima hafa verið
undirbúningur fyrir það að spila
úti. Við viljum spila sem mest og
verða þéttari en hundur,“ segir
hann.
Sign mun á næstunni senda frá
sér lagið A Little Bit í stafrænni
dreifingu bæði í Bretlandi og
í Bandaríkjunum. Hægt er
að ná í U-myx smáskífuna af
laginu frítt á www.visir.is/sign.
Tónleikaferð um Bretland er
einnig fyrirhuguð hjá Sign áður
en farið verður til Bandaríkjanna.
Sveitin spilar næst í Prófastinum
í Vestmannaeyjum á fimmtudag,
í Kópavogi á föstudag og síðan á
Gauki á Stöng á laugardag.
Sign spilar á SXSW-
tónlistarhátíðinni í Texas
SIGN Hljómsveitin Sign spilar á SXSW-
hátíðinni í Texas á næsta ári.
TÓNLIST
[UMFJÖLLUN]
Fyrir ekki margt löngu komu
fram á sjónarsviðið hljómsveitir
sem stimplaðar voru „sveita-
ballahljómsveitir“. Áttu þær að
fylla upp í það tómarúm sem
SSSól, Ný Dönsk og Sálin hans
Jóns míns höfðu skilið eftir
sig þegar þær hægðu aðeins
á langferðabifreiðum sínum
og fækkuðu ferðum sínum í
Varmahlíð og Hreðavatnsskála.
Þó Sálin sé vissulega enn í
góðum gír tilheyrir hún varla
þessum hópi lengur. Uppistaða
tónleikadagskrár þessara sveita
var svokölluð „kóver“-lög en
þau frumsömdu fengu frekar að
fljóta með til uppfyllingar.
Hljómsveitin Írafár var hluti
af þessari bylgju en miðað við
frammistöðuna á nýjustu afurð
sinni getur hún hent „kóver“-
lögunum út í hafsauga. Hún
kemur sér upp að hlið Sálarinnar
og getur byggt upp heila tónleika-
dagskrá á sínum eigin lögum.
Velgengni sveitarinnar er
ekki síst tveimur manneskjum
að þakka: Birgittu Haukdal,
andliti sveitarinnar út á við,
og Vigni Snæ Vigfússyni sem á
allan heiðurinn af lagasmíðum
sveitarinnar. Plötur sveitarinnar
hafa selst í bílförmum og
útlendingar sem hafa dvalið hér
á landi geta raulað með lögum
sveitarinnar. Þar liggur mesti
styrkur sveitarinnar því Vignir
Snær er með eindæmum duglegur
að semja slagara. Þó lögin brjóti
ekki neitt blað í sögu tónsmíða
eru þau bæði skemmtileg og
grípandi eins og popplög eiga að
vera. Það geta allir raulað með,
útlendingarnir líka.
Nýjasta afurð Írafárs er
nefnd í höfuðið á hljómsveitinni.
Hljómsveitin fær ekki prik fyrir
umslagið, sem er hallærislegt.
Þetta hefur átt að vera
einhver húmor en útfærslan er
misheppnuð. Platan sjálf er hins
vegar stútfull af skemmtilegum
lögum sem grípa hlustandann
strax og það er léttara yfir
sveitinni núna. Það er leikgleðin
sem ræður ríkjum. Aukin þátttaka
Vignis Snæs í söng sveitarinnar
eykur á fjölbreytnina en
sumum gæti fundist sífelldar
fiðluútsetningar sveitarinnar
vera orðnar fullþreyttar. Það
verður að teljast ólíklegt að
sveitin komist upp með þær aftur
en strengjahljóðfærin sleppa
í þetta sinn. Platan ber þess
glöggt vitni að Vignir Snær er
ekki fastur í einni tónlistarstefnu
en lagið Of Sein er fulllíkt því
sem Maroon 5 er að gera. Aðrir
slagarar eru velheppnaðir og
rólegu lögin standa fyrir sínu.
Í heild sinni er þessi
þriðja plata sveitarinnar hin
frambærilegasta poppplata sem
svíkur engan. Írafár hefur sig
upp fyrir meðalmennskuna og
er með þessari plötu að sanna
sig sem ein af okkar allra bestu
poppsveitum.
Freyr Gígja Gunnarsson
Besta poppsveit landsins
ÍRAFÁR
FLYTJANDI: ÍRAFÁR
Niðurstaða: Samnefnd plata sveitarinnar er
heilsteypt og fjölbreytt poppplata sem skartar
öllu því besta sem Írafár hefur yfir að ráða í
vopnabúri sínu.
Fyrirtækið Sony Computer
Entertainment Inc. hefur alls
sent út á markaðinn rúmlega
100 milljónir Playstation 2
leikjatölva.
Hún er jafnframt sú tölva
sem hefur náð 100 milljóna
eintaka markinu hraðast allra.
Árangur þessi náðist á fimm
árum og níu mánuðum en tölvan
kom fyrst út í Japan í mars árið
2000. Playstation 2 er þremur
árum og níu mánuðum á undan
fyrstu Playstation-tölvunni að ná
þessum árangri. Salan er mest í
Norður-Ameríku, eða rúmlega
40 milljónir eintaka, næstmest í
Evrópu, eða rúmar 37 milljónir
og síðan kemur Japan með rúmar
22 milljónir.
Í dag eru til meira en 14
þúsund leikir fyrir PlayStation
og PlayStation 2, en af þeim eru
6.200 titlar á PlayStation 2. Alls
hafa tæplega tveir milljarðar
Playstation-leikja selst. ■
100 milljónir
tölva á markað
FIFA 2006 Einn af vinsælustu tölvuleikjum Playstation 2 er FIFA-leikurinn. 6.200 leikir eru til
sölu eingöngu fyrir Playstation 2.
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 2, 5.20 og 10.15 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
Sýnd í Lúxus 3.40, kl. 5.50, 8 og 10.10
���
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.20
���
- HJ MBL
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 8 B.i. 12 ára
���
-L.I.B. Topp5.is
Sýnd kl. 2 með íslensku tali.
450 kr.
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
���
- SK DV
���
- topp5.is
���
- SV MBL
SÍMI 551 9000
3 BÍÓ Á AÐEINS 400 KR.
���
“Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar
þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
���
„Nokkurs konar Beðmál í Borginni í
innihaldsríkari kantinum.“
„...leynir víða á sér og er rómantísk
gamanmynd í vandaðri kantinum.“
- HJ MBL
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
���
- SK DV
���
- topp5.is
���
-L.I.B. Topp5.is
���
- SV MBL
Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 áraSýnd kl. 3, 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára