Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 88
68 3. desember 2005 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Leikmenn meistaraflokks hjá ÍR í körfu-
bolta karla og kvenna eru komnir í
jólaskap og eins og undanfarin ár ætla
þeir að bjóða lesendum heimasíðu
félagsins upp á jóladagatal sem skreytt
er myndum af þeim sjálfum, klæddum
litlu sem engu. Þetta er fjórða árið í röð
sem ÍR-ingar standa fyrir uppátækinu,
að sögn Eiríks Önundarsonar, fyrirliða
og leikreyndasta leikmanns liðsins, og
er það alltaf jafn skemmtilegt. „Það
er alltaf skemmtilegt fyrir hópinn að
standa í einhverju svona saman, og
þetta þjappar mönnum saman.“
Þema myndanna í ár virðast eiga að
vera bleyta því á þeim sjást leikmenn
spóka sig um í ónefndri sundlaug
með ýmis leiktæki við höndina. „Já, er
þetta ekki það sem þjóðin vill?“ spyr
Eiríkur og hlær. „Þetta hentar ágætlega
því að liðið, sérstaklega karlaliðið, er
óvenjulega athyglissjúkt. Mönnum
leiðist ekki að koma fram, í hvernig
formi sem það er,“ sagði Eiríkur við
Fréttablaðið í gær en myndatakan
á honum sjálfum var fyrirhuguð um
kvöldið. Hann fékk einmitt þann heiður
að prýða myndina sem fylgdi 24.
desember á þarsíðasta ár. „Það þótti
einstök yfirburðamynd. Ég hef samt
ekki hugmynd um hvar í röðinni ég
verð í ár.“
Eiríkur segir að myndirnar sem
teknar hafi verið undanfarin ár séu
misgóðar eins og gengur og gerist
en að nokkrar hafi vakið sérstaklega
mikla athygli. „Og enn sem komið er
toppar ekkert einstaka mynd sem tekin
var af Ómari Sævarssyni, sama ár og
hann tók þátt í keppninni um Herra
Ísland, þar sem hann stendur nakinn
með jólasveinahúfu og körfubolta fyrir
djásnunum. Hún birtist að sjálfsögðu á
aðfangadag.“
KÖRFUBOLTADEILD ÍR: ER BÚIN AÐ GEFA ÚT SITT ÁRLEGA JÓLADAGATAL
Er þetta ekki það sem þjóðin vill?
Haraldur til Úkraínu?
Varnarmaðurinn Haraldur Freyr
Guðmundsson er undir smásjánni
hjá úkraínska úrvalsdeildarfélaginu
Metallurg Donetsk, að því er Verdens
Gang í Noregi greinir frá. Haraldur lék
með Aalesund á síðustu leiktíð sem
féll úr norsku úrvalsdeildinni og hefur
Haraldur ekki áhuga á að spila með
liðinu í 1. deildinni.
FÓTBOLTI Michael Barton, bróðir
knattspyrnumannsins Joey
Barton hjá Manchester City,
hefur verið fundinn sekur um
morð og var í gær dæmdur í átján
ára fangelsi. Barton myrti ungan
blökkumann í Liverpool í sumar
og var á flótta undan lögreglunni
í nokkurn tíma. Málið vakti mikla
athygli í Bretlandi og var Joey
einn af þeim sem fram komu í
sjónvarpi og báðu Michael um að
gefa sig fram, en Joey er sjálfur
þekktur ólátabelgur og er með
nokkrar kærur vegna líkamsárása
á bakinu.
„Ég mun gera allt sem ég get
til að styðja Joey á þessum erfiðu
tímum í lífi hans. Hann hefur
verið ótrúlega sterkur ef tekið er
mið af þeirri aðstöðu sem hann
er í,“ sagði Stuart Pearce, stjóri
Manchester City, en ólíklegt þykir
að Barton muni koma við sögu í
leik liðsins um helgina.
- vig
Joey Barton sér ekki bróður sinn á næstunni:
Dæmdur í 18 ára fangelsi
JOEY BARTON Þarf að horfa upp á bróður
sinn fara í fangelsi fyrir morð.
FÓTBOLTI Norski framherjinn
Ole Gunnar Solskjær verður lík-
lega í byrjunarliðinu hjá varaliði
Manchester United gegn Liverpool
um helgina. Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd., sagði að Solskjær
myndi nær örugglega koma við
sögu í leiknum en ekki fyrir svo
löngu síðan sagði hann að ólíklegt
væri að norski framherjinn myndi
nokkurn tíma snúa aftur á völlinn.
„Hann æfði með aðalliðinu
í fyrsta sinn á miðvikudag og
leit hreint frábærlega út,“ sagði
Ferguson í gær en meiðslamartröð
Solskjær hófst í september árið
2003 þegar hann sleit krossbönd í
hné. Hann sneri aftur í lok síðustu
leiktíðar og náði að spila nokkrar
mínútur en varð aftur fyrir
meiðslum sem flestir töldu að
myndu binda enda á feril hans.
Ole Gunnar Solskjær er allur að hressast:
Mun spila um helgina
FÓTBOLTI Birkir Bjarnason, sautján
ára unglingalandsliðsmaður
Íslands í knattspyrnu og leik-
maður Viking Stavanger í
norsku knattspyrnunni, spilaði í
fyrrakvöld sinn fyrsta leik með
aðalliði Viking þegar liðið mætti
CSKA Sofia í Evrópukeppni
félagsliða í Búlgaríu, en Viking
tapaði leiknum, 2-0. „Ég fékk að
spila tólf mínútur í leiknum og
mér gekk bara vel. Ég lék sem
miðjumaður og var nokkuð mikið
inni í leiknum þessar mínútur
sem ég var inni á,” sagði Birkir
við Fréttablaðið í gær.
Birkir hefur leikið með
unglingaliði Viking undanfarna
mánuði en hann gerði atvinnu-
mannasamning við Viking í
haust sem gildir til ársins 2007.
Foreldrar Birkis, Halla
Halldórsdóttir og Bjarni
Sveinbjörnsson, voru bæði
landsliðsfólk í íþróttum, Bjarni
í fótbolta en Halla í blaki.
Halla segir það ánægjulegt
hversu vel þeim systkinum hafi
gengið vel í knattspyrnunni, en
Björg systir Birkis er einnig
í unglingalandsliði Íslands í
knattspyrnu.
„Það er auðvitað ánægjulegt
að Birkir sé búinn að spila
sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið.
Hann hefur verið á samningi
hjá Viking síðan í haust. Heima
á Íslandi var hann mest í KA.
Hann spilaði líka með Þór,
aðallega vegna þrjósku í föður
síns, en hann var mikill Þórsari.
Við bjuggum við hliðina á KA-
svæðinu þannig að hann skipti
nú fljótlega yfir í KA. Við vorum
svo eitt ár í Vestmannaeyjum
þegar Bjarni var að leika með
ÍBV. Svo er systir hans líka á
fullu í knattspyrnunni þannig að
það má með sanni segja að það
sé mikill fótbolti á heimilinu.“
Bjarni Sveinbjörnsson, faðir
Birkis, lék einn A-landsleik
fyrir Íslands hönd en hann
var um margra ára skeið
leikmaður Þórs auk þess sem
han lék með ÍBV og Dalvík.
Fjölskylda Birkis hefur búið í
Noregi í sex ár en Halla starfar
sem hjúkrunarfræðingur og
Bjarni sem rafvirki. Birkir er
atvinnumaður í knattspyrnu
en hann stundar einnig nám í
framhaldsskóla.
magnush@frettabladid.is
Birkir kominn í aðallið Viking
aðeins sautján ára gamall
Birkir Bjarnason unglingalandsliðsmaður lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið
Viking í Evrópukeppninni í fyrrakvöld.
BIRKIR BJARNASON Birkir á framtíðina fyrir sér í fótboltanum en hann skrifaði undir tveggja
ára samning við Viking í haust.
> Pattstaða
Deila Páls Einarssonar og Atla
Eðvaldssonar er enn í hnút
en reynt var að höggva
á hnútinn í gær með
litlum árangri. Kristinn
Einarsson, formaður
Þróttur, var fámáll í
meira lagi þegar
leitað var eftir
viðbrögðum í gær
og sagðist ekki
ræða málið að
neinu leyti
fyrr en það
væri leyst.
Hann fékkst
þó til þess
að segja
að málið
yrði til
lykta leitt
um helgina.
FÓTBOLTI Gary Neville hefur verið
gerður að fyrirliða hjá Manchester
United í stað Roys Keane sem
yfirgaf félagið á dögunum. Þessi
þrítugi bakvörður var tekinn fram
yfir þá Ryan Giggs og Ruud van
Nistelrooy sem einnig hafa borið
fyrirliðabandið í fjarveru Keanes.
Giggs hefur verið lengst allra
núverandi leikmanna hjá félaginu
en Neville er með næstmestu
reynsluna.
„Þetta er rétt ákvörðun enda
hefur Gary þjónað félaginu vel.
Ryan kom vissulega til greina
en það er ekki hægt að ætlast
til þess að maður á hans aldri
sé á sífelldri ferð upp og niður
hliðarlínuna. Hann mun spila
eitthvað af leikjum en til að halda
löppunum ferskum verður hann
að fá fína hvíld á milli,“ sagði Sir
Alex Ferguson, stjóri United.
- hbg
Sir Alex Ferguson búinn að útnefna nýjan fyrirliða:
Neville tekur við fyrirliðabandinu
GARY NEVILLE Nýr fyrirliði hjá Man. Utd.
Tekinn fram yfir Ryan Giggs.