Fréttablaðið - 03.12.2005, Qupperneq 90
3. desember 2005 LAUGARDAGUR70
www.skifan.is
...skemmtir þér ; )
ÁRITANIR Í
SKÍFUNNI Í DAG!
Mesta úrvalið
er í Skífunni
Kringlankl.13.00
Ragnheiður Gröndal
Smáralindkl.16.00Hera
Kringlankl.14.00
Björgvin Halldórsson
Smáralind
kl.14.00
Heitar Lummur
Páll Rósinkranz
Kringlan
kl.16.00
Smáralin
d
kl.15.00
Smáralind
kl.13.00
Nylon
Helgartilboð
1.799 kr.
Helgartilboð
2.499 kr.
Kringlankl.15.00Magnús Þór
Helgartilboð
1.799 kr.
Helgartilboð
1.799 kr.
Helgartilboð
1.799 kr.
Helgartilboð
1.799 kr.
Helgartilboð
1.799 kr.
FÓTBOLTI Félagarnir hjá Chel-
sea, John Terry og Eiður Smári
Guðjohnsen, sáust nýlega saman
hjá veðbanka í Lundúnum þar sem
þeir handfjötluðu stærðarinnar
seðlabúnt. Myndir af þeim félö-
gum birtust í enska götublaðinu
The Sun í gær þar sem þeir eru að
horfa saman á veðreiðar í sjónvar-
pinu hjá veðbankanum.
Sun greinir frá því að Terry og
Eiður hafi eytt tveimur og hálfum
tíma í húsnæði veðmangarans en
að það hafi aðeins verið Terry sem
hafi lagt undir. Hann veðjaði með
beinhörðum peningum eingöngu
og í eitt skiptið sást hann rétta Eiði
Smára stærðarinnar seðlabúnt
af 20 punda seðlum. Eiður Smári
viðurkenndi fyrir nokkrum árum
að hann hefði átt við spilafíkn
að stríða og fyrr í vikunni sagði
Jimmy Floyd Hasselbaink, fyrrum
samherji hans hjá Chelsea, frá því
hvernig þeir hefðu tapað stórum
upphæðum í spilavítum Lundú-
naborgar. En The Sun fullyrðir
að Eiður Smári hafi ekki veðjað
á þeim tíma sem hann og Terry
eyddu hjá veðmangaranum.
Spilafíkn Terrys er engin
nýjung og hefur hann oft verið
staðinn að verki við að veðja á
hunda- og hestahlaup, sem eru
mjög vinsæl í Bretlandi. Sun hel-
dur því fram að hann leggi um
60 þúsund krónur undir í hverri
viku og stundum meira. Og þeir
sem hafa séð til hans hjá veð-
mangaranum segja að Terry njóti
mikillar velgengni í veðmálu-
num. „Þó að hann tapi stundum
stórum upphæðum hefur hann
líka unnið mjög mikinn pening.
Hann er klárlega í gróða og veit
augljóslega hvað hann er að veðja
á,“ sagði einn sem stundar sama
veðbanka og Terry. - vig
John Terry hefur ekki náð sér af spilafíkninni:
Terry og Eiður Smári
sáust í veðbanka
SIGURSÆLIR FÉLAGAR Þeir sem til þekkja segja að John Terry njóti jafn mikillar velgengni
hjá veðmangaranum eins og hann gerir hjá Chelsea.
TERRY EYÐIR 5.000 PUNDUM Á VIKU
Forsíðan á The Sun í gær.
AKSTURSÍÞRÓTTIR Í dag fer fram í
annað sinn hin stórskemmtilega
aksturskeppni “Race of champ-
ions” eða keppni meistaranna. Í
þessari keppni mætast ökuþórar
úr hinum ýmsu akstursgreinum.
Allir keppa þeir á eins bílum svo
að hægt sé að komast að því hver
þeirra sé besti ökumaðurinn.
Michael Schumacher var
meðal þátttakenda í fyrra en í
ár taka meðal annars þátt David
Coulthard, úr Formúlu 1, rallíkap-
pinn Sebastian Loeb og Jeff Gor-
don sem er margfaldur meistari í
Nascar.
Keppt er innanhúss með
útsláttarfyrirkomulagi sem gerir
keppnina enn skemmtilegri en
ella fyrir áhorfendur. Keppnin
hefst klukkan 15 og er í beinni á
Sýn. ■
Áhugaverð aksturskeppni:
Hver er besti
ökumaðurinn?
DAVID COULTHARD Keppir á mótinu í París
í dag.
DHL-deild karla:
VALUR-ÞÓR AK. 37-32 (19-15)
Mörk Vals: Elvar Frðriksson 7, Mohamadi Loutoufi
7, Baldvin Þorsteinsson 7/1, Hjalti Pálmason 5,
Atli Rúnar Steinþórsson 5, Kristján Karlsson 3,
Ingvar Árnason 1, Ægir Hrafn Jónsson 1.
Varin skot: Pálmar Pétursson 22.
Mörk Þórs: Aigars Lazdins 9/3, Sindri Haraldsson
8, Arnór Þór Gunnarsson 4, Rúnar Sigtryggsson 4,
Sindri Viðarsson 4, Bjarni Gunnar Bjarnason 1.
Varin skot: Shota Tezadse 15.
FYLKIR-ÍR 28-27
FH-VÍKINGUR/FJÖLNIR 39-30
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Það sýndi sig enn eina
ferðina í gær að það er glórulaust
að leika handboltaleiki á föstu-
dagskvöldum því það voru undir
50 manns í stúkunni þegar flautað
var til leiks. Áhorfendum fór
ekkert sérstaklega fjölgandi eftir
því sem leið á leikinn.
Leikmenn virkuðu hálfdaufir í
rólegheitunum í Höllinni og tóku
létt hvorir á öðrum. Liðin héldust
í hendur framan af en Valsmenn
byggðu upp forskot síðari hluta
hálfleiksins þökk sé Pálmari
Péturssyni sem varði líkt og óður
væri. Í kjölfarið fengu Valsmenn
hraðaupphlaup sem þeir nýttu vel
en þeir skoruðu úr níu slíkum í
fyrri hálfleik og Valur leiddi með
fjórum mörkum í leikhléi, 19-15.
Valsmenn hófu síðari hálfleikinn
með miklum látum og voru líklegir
til að ganga frá Þórsurum en þeir
hreinlega keyrðu yfir þá og fjögur
af fyrstu fimm mörkum þeirra
komu úr hraðaupphlaupum.
Heimamenn gerðust síðan
værukærir og í kjölfarið hvarf
markvarslan. Það nýttu gestirnir
sér og minnkuðu jafnt og þétt for-
skot heimamanna. Þegar aðeins
munaði einu marki á liðunum,
29-28, tók Óskar Bjarni þjálfari
Vals leikhlé enda allur vindur úr
hans mönnum og mikil sigling á
gestunum.
Einbeiting Valsmanna kom
aftur eftir leikhléið og fljótlega
fór að skilja í sundur með liðunum
á ný. Þórsarar tóku smá dauðakipp
en það var of lítið og of seint. Valur
fagnaði því mikilvægum sigri og
er enn á toppi deildarinnar.
henry@frettabladid.is
Valur sigraði Þór
án mikilla átaka
Valsmenn eru enn á toppi DHL-deildar karla eftir
þægilegan sigur á Þór í Laugardalshöll í gærkvöld,
37-32. Þeir höfðu lítið fyrir sigrinum.
FLUGFERÐ Þessi tilþrif Þórsarans Sindra Viðarssonar dugðu hans mönnum ekki í
Laugardalshöllinni í gær. Sindri átti ágætan leik og skoraði fjögur mörk.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM