Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 12
28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR12
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Starfsmenn Sorphirðu
Reykjavíkurborgar voru
komnir á stjá upp úr sex
í gærmorgun til að tæma
sorptunnur borgarbúa.
Allar tunnur voru troð-
fullar eftir jólahátíðina og
er áætlað að um 800 tonn
af rusli verði ferjuð frá
heimilum í urðunarstöðina í
Álfsnesi milli jóla og nýárs.
„Nú eru allar tunnur fullar,“ segir
Helgi Helgason, bílstjóri á einum
af tíu ruslabílum borgarinnar.
Hann og hans menn tóku daginn
snemma í gær enda er keppt við
tímann um að tæma hverja einustu
ruslatunnu í Reykjavík en þær eru
rétt tæplega fjörutíu þúsund.
„Færðin er í lagi og það skiptir
miklu máli,“ segir Sigríður Ólafs-
dóttir, rekstrarstjóri sorphirðu
Reykjavíkurborgar. „Stefnan er
að ná einni umferð milli jóla og
nýárs og við gerum allt til að ná
því,“ segir hún og bætir við að
umbúðamagnið sé gríðarlegt.
„Megnið af því sem fólk ber út úr
Kringlunni og Smáralind fyrir jól
er umbúðir sem fara í ruslatunn-
una. Fólk verður að fara að læra
að flokka pappa og annað frá og
koma því í endurvinnslu.“
Ekkert aukasorp er tekið frá
heimilum; aðeins það sem er í
tunnunum og svo í sérstökum
pokum sem bera sorphirðugjald.
Tíu sorphirðubílar eru á ferð
um borgina og á hverjum bíl eru
um sex manns. Það er því um
sextíu manna sveit sem fer sem
stormsveipur um Reykjavík og
tæmir þær tunnur sem á vegi
hennar verða.
„Mannskapurinn er sprækur
og tekur þessu með jafnaðar-
geði,“ segir Helgi Helgason, sem
hefur langa reynslu úr faginu.
Hann segir sorpmagnið fara stig-
vaxandi allan desembermánuð og
ná hámarki eftir jólin. „Það má
búast við að hver bíll flytji um
áttatíu tonn af sorpi þessa daga,“
segir hann. Vanalega flytur hver
bíll um 45 tonn svo sjá má að
aukningin er mikil. „Nú bætast
við allir hryggirnir og sósurnar
og svo auðvitað jólapappírinn,“
segir Helgi og hlær. Af þessu má
því áætla að um 800 tonn af sorpi
verði flutt frá heimilunum í bögg-
un hjá Sorpu og þaðan í urðun
í Álfsnesi dagana milli jóla og
nýárs. Til samanburðar má nefna
að það tekur öflugustu togara
flotans um fjórar vikur að veiða
800 tonn af þorski.
bjorn@frettabladid.is
Það væri nú aldeilis
fyndið
„Ætli það verði ekki
brandarinn í fyrsta
þættinum að senda út
hljóðlaust Veggfóður.“
VALGERÐUR MATTHÍASDÓTTIR,
STJÓRNANDI SJÓNVARPSÞÁTTAR-
INS VEGGFÓÐURS SEM SÝNDUR
VERÐUR Á STÖÐ 2 Í VETUR.
FRÉTTABLAÐIÐ.
Þá stöndum við klár
á því
„Árið 2006 gæti orðið
síðasta ár okkar jarðneska
mannkyns, því við höfum
það ár ekki öruggt sem
hluta af lífi okkar fyrr en
vegur þess er genginn.“
RÚNAR KRISTJÁNSSON
HÚSASMIÐUR Í GREIN Í
MORGUNBLAÐINU.
„Maður lætur tíðina ekki hafa áhrif
á jólaskapið,“ segir Sigurður Margeir
Magnússon, gröfumaður hjá SM
verktökum ehf., spurður hvernig
jólaskapið hafi verið í rigningunni
miklu yfir hátíðina. „Það er nú alltaf
skemmtilegra að hafa hvít jól en þau
hafa nú verið rauð meira og minna
undanfarin ár og maður verður bara
að horfa framhjá því,“ segir hann.
Margir létu regnið pirra sig en
Sigurður Margeir var ekki í þeim
hópi.
Starfs síns vegna er hann nokkuð
hrifinn af veðráttunni þessa dagana.
„Það er fínt fyrir okkur að það rigni
og raunar mjög gott á meðan ekki er
snjór,“ segir gröfumaðurinn Sigurður
Margeir, sem grefur eins og ekkert sé
meðan jörð er auð og frostlaus.
SJÓNARHÓLL
RIGNINGIN UM JÓLIN
SIGURÐUR MARGEIR MAGNÚSSON
GRÖFUMAÐUR
ALLT Í RUSLI Starfsmenn sorphirðu Reykjavíkur höfðu í nægu að snúast í gær við að tæma tunnur borgarbúa. Áfram verður haldið fram að
áramótum og er vonast til að hægt verði að tæma allar næstum fjörutíu þúsund ruslatunnur borgarinnar á þeim tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Aldrei meira rusl í Reykjavík
Í lagi
„Ég hef það alveg bærilegt eins
og Ólafsfirðingar flestir held
ég um hátíðina,“ segir Stefanía
Traustadóttir, bæjarstjóri á Ólafs-
firði.
Ýmislegt hefur drifið á daga
bæjarbúa hina síðustu daga.
Aðventuhátíð var haldin með
pompi og prakt nánast allan
desembermánuð og gekk vel
fyrir sig. „Hún tókst vel í alla staði
og vakti lukku meðal bæjarbúa.
Ýmislegt var þar í boði enda
félagslíf hér stór hluti af menn-
ingunni.“
Þegar talið berst að yfir-
standandi ári er pundið þyngra
í Stefaníu. „Ólafsfirðingum hefur
fækkað hlutfallslega meira á
þessu ári en raunin hefur verið í
nálægum sveitarfélögum en ég
bind vonir við að árið 2006 verði
þeirri þróun snúið við. Aðallega
þar sem þá hefjast framkvæmd-
ir vegna Héðinsfjarðarganga og
í framhaldinu sú samvinna sem
verður milli okkar og Siglufjarð-
ar. Svo er ofarlega í huga mér að
sameining sveitarfélaganna hér
hafi verið felld í haust. Að mínu
mati er nauðsynlegt fyrir smærri
bæjarfélög á borð við Ólafsfjörð
að sameinast þó ekki sé til annars
en geta staðið undir því þjónustu-
stigi sem fólk gerir kröfu um í dag.
Það voru mér vonbrigði að ekkert
varð af þeim en líst engu að síður
vel á árið sem er að ganga í garð.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? STEFANÍA TRAUSTADÓTTIR BÆJARSTJÓRI Á ÓLAFSFIRÐI
Vonir bundnar við árið 2006
Heróínið drap Jón Inga
og Ólöfu Lindu á jóladag
-HURÐIN SÖGÐ LÆST UTAN FRÁ
-LÖGREGLAN ÚTILOKAR EKKERT
- I
- I
OG LIFÐU
NÁGRANNARNIR
AFÞÖKKUÐU
HERÓÍN
DV2x15-lesið 27.12.2005 19:22 Page 1