Fréttablaðið - 28.12.2005, Síða 14

Fréttablaðið - 28.12.2005, Síða 14
 28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR14 fréttir og fróðleikur 1998 2002 2004 43 49 60 37 2000 Nú er innan við vika þangað til árlegt flugelda- æði rennur á landsmenn. Miðað við hina frægu höfðatölu eiga Íslendingar líklega met í fjölda keyptra flugelda á hvern einstakling og í hugum margra er sameiginleg flugeldasýning Íslendinga það skemmtilegasta við gamlárskvöld. Flugeldar geta verið varasamir enda fellur meðferð á þeim undir vopnalög. Hvaðan eru flugeldar upprunalega? Flugeldar voru þróuðir í Kína fyrir tæpum þúsund árum í kjölfarið á því að púður var fundið upp. Í grófum dráttum eru flugeldar hylki úr pappír með púðri í. Upphaflega var púður gert úr við- arkolum, brennisteini og saltpétri. Viðarkolin og brennisteinninn verka sem eldsneyti en saltpét- urinn gefur blöndunni súrefni. Í dag eru notuð önnur og kraftmeiri efni en notuð voru í Kína. Sterkja, sykur og efni sem unnin eru úr jarðolíu er notuð sem eldsneyti og í stað saltpéturs er notað kalíumklórat. Hverjir mega kaupa flugelda? Ráðherra setur ákvæði í reglugerð um sölu og meðferð flugelda og hann getur sett reglur um að ekki megi selja almenningi ýmsar tegundir flug- elda sem geta verið hættu- legar mönnum. Jafnframt getur hann kveðið á um sérstakt eftirlit í því skyni. Innflytj- andinn þarf þá eftir atvikum að bera kostn- að af því. Í sjötta kafla vopnalaga er fjallað um með- ferð á flugeldum. Þar kemur fram að bannað er að selja eða afhenda barni yngra en sextán ára flugelda sé þess getið í leiðbeiningum sem fylgja flugeldunum. Þá er öll sala á flugeldum til barna yngri en tólf ára bönnuð. Hvernig komast flugeldar á loft? Flugeldar eru yfirleitt búnir til úr tveimur aðskild- um hylkjum. Annað er fullt af grófu púðri sem veldur þvi að flugeldurinn skýst upp í loftið, en í hinu er fíngert púður sem veldur sprenging- unni þegar flugeldurinn nær vissri hæð. í Seinna hylkinu eru líka efni sem mynda liti þegar þau hitna. Kveikiþráðurinn kemur fyrst inni í hylkið með grófa púðrinu sem brennur hratt en spring- ur ekki. Þar myndast heitt gas sem streymir út í gegnum lítið rör. Við þetta myndast mikill lyfti- kraftur og flugeldurinn skýst upp. FBL GREINING: FLUGELDAR Bannað að selja börnum flugelda Guðmundur B. Helga- son, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneyt- inu, segir fyrirséð að samþykktir á vegum Al- þjóðaviðskiptastofnunarinn- ar kalli á breytingar á land- búnaðarkerfinu. Hann segir skýrast með vorinu hverjar þær kunni að verða, en býst við helmingsniðurskurði í innanlandsstuðningi við landbúnað. Úrlausn erfiðra álitamála var frestað til aprílloka á fundi Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar í Hong Kong. Guðmundur leiðir viðræður fyrir hönd landbúnaðarráðuneytisins. Guðmundur B. Helgason ráðuneyt- isstjóri segir ákveðinn samhljóm með málflutningi G-10 ríkjanna og þróunarríkja á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Í báðum tilvikum hugnist þjóðun- um lítt frjálshyggjumálflutningur um fyrirvaralaust og algjört afnám tolla og viðskiptahindrana. G-10 er hópur þjóða sem eiga það sammerkt að flytja inn mikið magn matvæla. Guðmundur kom heim af ráðherrafundi Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar í Hong Kong rétt fyrir jól. „Þetta eru stór mál og flók- in og hagsmunirnir margþættir. Þess vegna gefa þau sig mjög illa að einföldum alhæfingum,“ segir Guðmundur og telur að undanfar- ið hafi í sumum málflutningi gætt forsjárhyggju í garð vanþróuðustu ríkjanna. „Kannski er það þannig að menn ættu að eyða meiri tíma í að hlusta á þessi ríki og greina þarfir þeirra frá þeirra bæjardyr- um séð,“ segir hann og harmar gagnrýni sem fram hefur komið á samstarf Íslands innan G-10 ríkjahópsins. „Menn hafa látið að því liggja að stefna G-10 sé fátæk- ustu ríkjunum fjandsamleg. En málflutningur G-10 um hófsam- ari nálganir en þessi hörðu frjálshyggjuöfl hafa boðað hafa mikinn hljómgrunn hjá fátækustu þjóðunum.“ Guðmundur segir fátækari ríkin telja þær leiðir að tryggja algjört og skilyrðislaust viðskiptafrelsi einungis til þess fallnar að önnur og samkeppn- ishæfari ríki hirði upp allan ávinning af frjálsum milliríkj- aviðskiptum. Ísland á undan öðrum Meðal þess sem samþykkt var á fundinum í Hong Kong var að veita útflutningsvörum fátækustu þjóða heims tolla- og magntakmarkanalausan aðgang að mörkuðum iðnríkja frá og með árinu 2008. „Von manna er að þetta megi verða til að bæta hag þessara ríkja eitthvað,“ segir Guð- mundur en bendir á að aðgangur þessara ríkja að okkar markaði hefur verið mjög greiður. Oft eru þessi ríki háð útflutningi á fáum eða jafnvel bara einni grunnafurð, svo sem sykri, ávöxtum, korni, bómull, eða einhverju þess háttar. Þessar vörur koma allar hingað til Íslands án nokkurra tolla eða rík- isafskipta.“ Guðmundur bendir á að G-10 hópurinn hafi barist fyrir þessum markaðsaðgangi fátæk- ustu ríkjanna. „Bandalagið er sum sé ekki verra en svo að málflutn- ingurinn hefur verið mjög vinsam- legur þessum fátækustu ríkjum.“ Hér verður skorið niður Nýafstaðinn fundur í Hong Kong er hluti af heildstæðri samning- alotu um öll svið vöru- og þjónus- tuviðskipta sem ýtt var úr vör í Doha í Katar árið 2001. Fjallað er um skuldbindingar varðandi markaðsaðgang í formi tollkvóta og heimildir til að veita framleiðsl- utengdan og viðskiptatruflandi innanlandsstuðning. Guðmundur segir að ljóst hafi verið fyrir fundinn að ekki næðist að staðfesta endanlega á honum reiknireglur um hversu mikið tollar ættu að lækka og hvernig. „Væntingum var því stillt í hóf,“ segir hann en bætir við að árang- urinn hafi þó verið meiri en búist var við. „Þarna var hins vegar leik- inn ákveðinn biðleikur og erfiðum álitaefnum frestað til 30. apríl á næsta ári.“ Hann segir áhrif á okkur hér verða meiri af því sem eftir á að semja um og stefnt sé að því að gera fyrir 30. apríl. „Náist það markmið næst sjáum við framan í þær tölulegu stærð- ir sem við og aðildarríkin í heild þurfa að framkvæma heimafyrir, hversu mikið tollheimildir okkar þurfa að lækka og framleiðsl- utengdur og viðskiptatruflandi innanlandsstuðningur. Það er er alveg ljóst að þær skuldbinding- ar munu hafa áhrif á landbúnað- arstefnuna hér.“ Hann áréttar þó að ríki muni fá aðlögunartíma að breytingunum, trúlega fimm til sex ár. „Innan G-10 er lögð áhersla á að breytingar séu formaðar og framkvæmdar með hætti sem veiti landbúnaði í þessum ríkjum tækifæri til að laga sig að þessu.“ Guðmundir segir ekki ósennilegt að niðurskurður á heimildum til innanlandsstuðning við landbúnað skerðist um 50 prósent. Fyrirkomulag í skoðun „En nákvæmlega hvernig við útfærum framkvæmd þeirra skuldbindinga liggur ekki fyrir.“ Guðmundur segir margt til skoðunar í þeim efnum, til dæmis fyrirkomulag beingreiðslna til kúabænda og fyrirkomulag opinberrar verðlagningar í mjólk- urframleiðslu. „Samkvæmt fyrir- liggjandi mjólkursamningi liggur fyrir að þegar sést á um hvaða tölur er að ræða er hægt að taka hann upp og gera nauðsynlegar breytingar.“ Þá segir Guðmundur einnig koma til greina að skoða breytt fyrirkomulag styrkja, en nágrannaþjóðir okkar hafi í auknum mæli horfið frá notkun framleiðslutengdra styrkja og tekið upp svokallaða græna styrki. „Það eru þá styrkir sem eru ótengdir framleiðslu og hafa þá ekki nema hverfandi áhrif á viðskipti. Það kann að vera valkostur fyrir okkur í framtíð- inni, að því marki sem stjórnvöld hvers tíma kjósa að miðla stuðn- ingi til landbúnaðarins, hvort sem það varðar byggða-, umhverfis- eða aðra þætti sem falla undir þennan græna stuðning.“ GUÐMUNDUR B. HELGASON Guðmundur, sem er ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneyt- inu, fer fyrir viðræðuhópi Íslands innan G-10 samstarfsins á vettvangi Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar. Þar starfa saman níu ríki, Ísland, Ísrael, Japan, Suður-Kórea, Liechtenstein, Máritíus, Noregur, Sviss og Taívan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Stuðningur við landbúnað gæti minnkað mikið FRÉTTAVIÐTAL ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON olikr@frettabladid.is Jarðlagna- tæknanám Næsta jarðlagnatæknanámskeið hefst nú eftir áramót ! Námið er ætlað öllum þeim sem starfa við jarðlagnir og jarðvinnu, hvort sem þeir starfa hjá veitufyrirtækjum, sveitafélögum, símafyrirtækjum eða hjá verktökum. Orkuveita Reykjavíkur hefur nú sett það sem skilyrði að verktakar sem vinna við lagnakerfi OR hafi starfsmenn sem lokið hafi jarðlagnatækninámi eða sambærilegu námi. Námsgreinar eru m.a. lagnir og lagnaefni, jarðvegsfræði, tæringarfræði, efnisfræði, vélfræði, rafmagnsfræði og tölvur, ásamt almennum greinum. Samþykkt hefur verið af Menntamálaráðuneytinu að meta megi námið um sem nemur allt að 24 einingum í framhaldsskóla. Námið er 300 kennslustundir og er kennt í þremur tveggja vikna lotum: Lota eitt: 9.–13. janúar og 16.–20. janúar Lota tvö: 6.–10. febrúar og 13.–17. febrúar Lota þrjú: 6.–10. mars og 13.–17. mars Mímir símenntun, Samorka, Orkuveita Reykjavíkur, Gatnamálastofa, Síminn, Efling-stéttarfélag, Starfsafl og Landsmennt standa saman að náminu. Skráning og nánari upplýsingar hjá Mími símenntun í síma: 580-1800 eða í tölvupóstfang: ingibjorg@mimir.is Umsóknir þurfa að berast fyrir 3. janúar n.k. Þátttakendafjöldi er takmarkaður. www.mimir.is Ei n n t v e ir o g þ r ír 4 .1 4 3 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI SVONA ERUM VIÐ FJÖLDI ÆTTLEIÐINGA Heimild: Hagstofa Íslands
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.