Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 26
[ ] Þó að margur útlendingurinn gæti haldið annað eru snjóbílar ekki svo algeng sjón á Íslandi. Hvað þá snjóbílar á fjögurra metra breið- um beltum, sérútbúnir til björg- unarstarfa, sem geta hringt sjálf- virkt inn staðsetningu sína eins oft og óskað er. Hjálparsveit skáta í Reykjavík tók nýlega í notkun slíkt tæki sem upphaflega var hannað sem snjótroðari. „Hann er sömu gerðar og troð- ararnir sem eru notaðir í Blá- fjöllum, Hlíðarfjalli og víðar. Í staðinn fyrir snjóvinnslutæki er aftan á honum öflugt dráttarbeisli og til viðbótar við stiglausa skipt- ingu eru í þessum bæði hátt og lágt drif,“ segir Hlynur Skagfjörð Pálsson, formaður tækjaflokks hjálparsveitarinnar. Með þess- um drifbúnaði er hámarkshraði snjóbílsins 25 km á klukkustund í stað 19. „Þetta lítur kannski ekki út fyrir að vera mikill hraði en 6 km á klukkustund geta skipt miklu máli. Sérstaklega í miklum vegalengdum í þungu færi,“ segir Hlynur. „Við erfiðar aðstæður getur ferðahraði breyttra jeppa farið niður fyrir 2 km á klukku- stund. Þá munar öllu að hafa svona tæki. Það fer nánast jafnhratt í 2 metra djúpri lausamjöll og svell- hörðu harðfenni.“ Í snjóbílnum er allur sá búnað- ur sem talinn er nauðsynlegur í björgunartæki. GPS-tækið er með auka aflestrarskjá til að ökumað- urinn geti keyrt eftir tækinu þó að aðstoðarmaður hans sé að slá inn í það upplýsingar. Við tækið er tengd myndavél sem er aftan á bílnum og er mikið öryggistæki á svo stóru farartæki. Þá er í bíln- um fartölva með kortagrunni og við hana er tengdur GPS-áttaviti. Hann gerir GPS-tækinu kleift að skynja hvernig snjóbíllinn snýr, meira að segja í kyrrstöðu, en það er nokkuð sem fæst GPS tæki ráða við. Í björgunarbíl þarf að sjálf- sögðu fjarskiptatæki. Auk NMT- farsíma er í bílnum VHF-talstöð sem notar endurvarpskerfi björg- unarsveita og hefur aðgang að rásum vélsleðamanna og Ferða- klúbbsins 4x4 svo unnt sé að not- ast við fjarskiptakerfi þeirra sem verið er að aðstoða. Til að tryggja samband á öllu landinu er svo í bílnum gervi- hnattasími. „Við vitum að meira að segja í innan við 60 km fjarlægð frá Reykjavík eru blettir þar sem önnur símkerfi nást ekki,“ segir Hlynur. Síminn er búinn mótaldi og línutengi sem gerir honum kleift að senda út upplýsingar um staðsetningu snjóbílsins á fyrir- fram ákveðnum fresti. Einnig er hægt að hringja eftir þeim upp- lýsingum án þess að mannshöndin þurfi að koma nærri. „Þetta opnar til dæmis fyrir þann möguleika að hægt er að sjá staðsetningu tækja á landinu öllu á tölvuskjá. Það kemur sér vel við stórar björgun- araðgerðir eða þegar komast þarf að því hvaða tæki eru nálægt slys- stað. Það er líka hægt að senda GPS-leið til bílsins og auka þannig viðbragð, spara tíma og fækka mistökum þegar mest á reynir.“ Snjóbíllinn er skráður fyrir átta farþega en í neyð getur hann borið sextán. Í honum er sjúkra- búnaður, fjallabjörgunarbúnaður, hryggbretti og súrefnistæki. And- virði bílsins er á við þrjár litlar jarðýtur og augljóst að slík fjár- festing getur verið stór biti fyrir björgunarsveit sem byggir allt sitt á sjálfboðaliðastarfi og flug- eldasölu. „Það hefur sýnt sig að það er þörf fyrir svona bíla. Þegar snjó- flóðin urðu fyrir vestan voru þrír snjóbílar sendir með varðskipi vestur. Þessi bíll er ekki bara hugsaður fyrir Reykjavíkursvæð- ið heldur allt landið,“ segir Hlyn- ur að lokum. Naglarnir í beltum snjóbílsins eru mitt á milli nagla í bíldekkjum og nagla í sleða- beltum. Á þeim getur hann klifrað upp ísilagðar brekkur eins og ekkert sé. Hentar jafnt í harðfenni og djúpum púðursnjó Nýr snjóbíll Hjálparsveitar skáta í Reykjavík flýtur vel á snjó vegna fjögurra metra breiðra belta. Full búð af aukahlutum á bílinn þinn lexusljós, angeleyes, neonljós, græjur, spoilerar, lækkunargormar, kraftsíur, racekútar, o.fl. AG Mótorsport - Klettháls 9 110 Reykjavík - s. 587 5547 Verslun á netinu : www.agmotorsport.is Staflarar einnig úrval af pallettutjökkum • Lágmúli 9 / 108 Reykjavík • Sími: 533 2845 / GSM: 896 0515 • www.sturlaugur.is Daewoo lyftarar Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557 Gæði á góðu verði Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Í grunninn til snjótroðari en með breyttum drifbúnaði og viðbættum sjúkra- og fjarskiptabúnaði er nýi snjóbíllinn orðinn að öflugu og fjölhæfu björgunartæki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Snjóbíllinn kemst á 25 km hraða og getur borið allt að sextán farþega í neyð. Við val á tækjabúnaði var þess gætt að hafa sem fæst tæki og skjái svo að vinnu- svæði og útsýni skerðist sem minnst. HLÝ TEPPI geta komið sér vel ef keyrðar eru langar vega- lengdir í miklum kulda. Börnum finnst líka oft gott að breiða yfir sig teppi og leggja sig ef ferðin tekur langan tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.