Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 36
MARKAÐURINN 28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR6
Vorum að fá í sölu 138,4 fm iðnaðarhúsnæði
auk 120 fm millilofts. Snyrtilegt pláss sem getur
losnað fljótlega. Verð 17,5 milljónir.
Glæsilegt fullbúið 215,9 fm verslunarhúsnæði á
þessum eftirsótta stað. Stefnt er að sölu á eigninni,
en leiga kemur til greina. Verð 43 milljónir.
Heil rishæð í þessu vandaða húsi í miðbænum.
Eignin er tveir eignahlutar en selst sem einn.
Var innréttað sem tannlæknastofur,
en er nú nýtt sem íbúðir. Verð 21,5 milljónir.
Glæsilegt nýtt 546 fm atvinnuhúsnæði til
sölu/leigu. Laus strax. Verð: Tilboð.
Runólfur Gunnlaugsson
lögg. Fasteignasali
Skrifstofur okkar eru opnar
alla virka daga frá kl. 9-17
Sími: 565 8000 Netfang: hofdi@hofdi.is
Vegna miki l lar sölu undanfar ið vantar okkur e igni r á skrá strax - skoðum og metum atvinnuhúsnæði samdægurs.
Trönuhraun 3 Fjarðargata 13-15 Barónsstígur 5 Flatahraun 3
Á R I Ð 2 0 0 5
Kaup þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar
Kristinssonar, í eignarhaldsfélaginu Fons, á
norrænu flugfélögunum Sterling og Maersk Air,
sem sameinuð voru undir merkjum fyrrnefnda
fyrirtækisins, hafa verið útnefnd viðskipti árs-
ins af sérfræðingum í viðskiptalífinu.
Fons hefur selt Sterling til FL Group og er
talið að söluhagnaður af viðskiptunum geti
numið allt að sjö milljörðum króna.
FYRST VAR ÞAÐ STERLING ...
Í mars var greint frá því að Pálmi og Jóhannes,
aðaleigendur Iceland Express, hefðu fest kaup
á lággjaldaflugfélaginu Sterling af Ganger
Rolf og Bonheur, dótturfélögum í eigu norska
skipakóngsins Freds Olsen, fyrir fimm millj-
arða króna. Pálmi sagði að það væri ljóst að
sölu- og leiðakerfi Sterling og Iceland Express
yrðu nýtt saman en vildi ekki gefa upp hvort
sameining flugfélaganna væri á döfinni.
Sterling var stofnað í Danmörku árið 1994, og
hefur höfuðstöðvar sínar í Kaupmannahöfn, en
félög í eigu Freds Olsen eignuðust flugfélagið
árið 1996. Félagið hóf að fljúga til Suður-Evrópu
árið 2000 og tveimur árum síðar var félag-
inu breytt í lággjaldaflugfélag - því fyrsta á
Norðurlöndum. Sterling hefur vaxið gríðarlega
á undanförnum árum, til dæmis fjölgaði farþeg-
um um fjörutíu prósent á milli áranna 2002 og
2003 en vextinum fylgdu miklir verkir. Félagið
tapaði gríðarlegum peningum líkt og Maersk
Air sem rann inn í Sterling nokkrum mánuðum
síðar. Á fyrsta ársfjórðungi tapaði Sterling um
460 milljónum króna.
Þegar kaupin gengu í gegn flaug Sterling á
þrjátíu áfangastaði og velti um tuttugu millj-
örðum króna. Starfsmenn þess voru liðlega 600.
Að mati Fons voru aðstæður ákjósanlegar til
að snúa taprekstri í hagnað. Félagið hefur á að
skipa einum yngsta flugflotanum í Evrópu og er
í miklum vexti eins og flest lággjaldaflugfélög.
... OG SÍÐAN „MEÐGJÖFIN“ MAERSK
Í lok júní tók Sterling yfir danska lággjaldaflug-
félagið og keppinautinn Maersk Air sem hafði
verið vandræðabarnið í AP-Møller fyrirtækja-
samstæðunni.
Kaupin vöktu gríðarlega athygli á
Norðurlöndum og víðar. Börsen greindi frá því
að A.P. Møller - Mærsk hefði borgað Fons yfir
þrjá milljarða króna til að losna
við Maersk Air. Flugfélagið hafði
verið þungur baggi á Dönunum
og var talið að þrjátíu milljarðar
hefðu verið greiddir með rekstr-
inum á fimm árum. Þessu hafa
eigendur Fons ætíð hafnað. Pálmi
hefur sagt að Fons hafi greitt fyrir
Maersk en kaupverðið hefur ekki
fengist uppgefið.
„Ég ætlaði mér alltaf að ná í
Maersk þegar ég keypti Sterling.
Þetta átti sér langan aðdrag-
anda. Það var ekki eins og maður
læsi bara Börsen einn daginn og
ákveddi að kaupa Sterling,“ sagði
Pálmi. Hann segir það hafa verið
stolt eigenda Sterling og Maersk
að láta félögin ekki fara á hausinn
í sínum höndum. „Bæði félögin
voru í eigu mjög fullorðinna manna sem eru
við það að fara í stóra ferðalagið. Báðir meðal
Sterling viðskipti ársins
Sérfræðingar velja kaup Fons á Sterling og Maersk Air sem viðskipti ársins. Félagarnir Pálmi
Haraldsson og Jóhannes Kristinsson högnuðust um fleiri milljarða þegar Sterling var selt FL Group.
STERLING VIÐSKIPTI ÁRSINS Dómnefnd sérfræðinga hefur útnefnt kaup Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, í Fons eignarhaldsfélaginu, á Sterling og Maersk Air, kaup ársins í íslensku viðskiptalífi. Flugfélögin runnu í
eitt og voru svo seld til FL Group.
Kaup á flugfélögum
En hvernig kemst maður að samn-
ingaborðinu til að kaupa eitt stykki
flugfélag? „Það er einfalt. Það
er bara að hringja í 114 og biðja
um símanúmerið hjá Fred Olsen
og segja: Hej, jeg hedder Pálmi
Haraldsson. Svo fer maður í næstu
flugvél og hittir manninn.“ Þar
með voru hafnar viðræður um
kaup á Sterling sem tóku drjúgan
tíma, en hafa þegar skilað þeim
félögum Pálma og Jóhannesi
góðum ávinningi.
(Markaðurinn 26. október 2005)