Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 37
MARKAÐURINN
Á R I Ð 2 0 0 5
7MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005
ríkustu manna Norður-Evrópu.“
Margir fjárfestingasjóðir reyndu að
kaupa félögin en einhverra hluta vegna
enduðu bréfin í höndum Pálma og
Jóhannesar.
Pálmi sagði við þetta tækifæri að hann
sæi fyrir sér samþjöppun á lággjaldaflug-
félagamarkaði og að félögin yrðu stærri.
Sterling væri því komið í góða stöðu til að
taka þátt í þeirri þróun. „Sameinað félag
verður mjög sterkt fjárhagslega,“ sagði
Pálmi. Hann var spurður að því hvort
Sterling eitt og sér hafi verið óhagkvæm
eining og sagði svo ekki vera: „Sterling
stóð vel fyrir sínu og hvatinn þeirra
megin til sameiningar var meiri en hjá
okkur.“
Íslendingarnir tóku rekstur nýju
félaganna engum vettlingatökum
og komu af miklum krafti inn. Almar
Örn Hilmarsson, mágur Pálma, sem
hafði verið framkvæmdastjóri Iceland
Express, var ráðinn forstjóri Sterling
og tók síðar við hinu sameinaða félagi.
Skrifstofustarfsmönnum var fækkað og
er stefnt að því að þeir verði 230 í stað 600
áður. Heildarfjöldi farþega hins samein-
aða félags er áætlaður um fimm milljónir
og velta áætluð 60 milljarðar króna á því
ári sem er að líða.
Sterling er fjórða stærsta lággjalda-
flugfélag Evrópu á eftir Ryanair, easyJet
og Air Berlin.
FL GROUP KEMUR VIÐ SÖGU
Viðræður Fons eignarhaldsfélags og FL
Group fóru af stað um miðjan september
og mánuði síðar höfðu náðst samningar
um kaup FL Group á Sterling fyrir fimmt-
án milljarða íslenskra króna.
Kaupverðið getur hækkað eða lækkað
eftir því hvernig afkoma ársins 2006 verð-
ur og miðast við að rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir (EBITDA) verði 3,5 milljarður
króna á næsta ári. Kaupendur settu auk
þess skilyrði að Sterling yrði afhent með
þremur milljörðum króna í handbæru fé
um næstkomandi áramót. Fons fékk ellefu
milljarða greidda með peningum en fjóra
milljarða í hlutabréfum sem miðaðist við
útboðsgengi í hlutafjárútboði FL Group
sem fram fór stuttu seinna.
Óhætt er að fullyrða að hagnaður Fons
hafi verið mikill á sölunni á Sterling til FL
Group. Telja má fullvíst að söluhagnaður
hafi numið að minnsta kosti sjö milljörð-
um króna en danska pressan taldi að hagn-
aður Fons hefði verið ellefu milljarðar
króna. Salan var mjög umdeild, ekki síður
vegna tíðra, neikvæðra frétta sem bárust
úr herbúðum FL Group um þetta leyti.
Um söluna sagði Pálmi Haraldsson við
Markaðinn: „Kaupverð Maersk er trúnað-
armál að þeirra [AP-Möller] kröfu og ég
ætla mér ekki að rjúfa þann trúnað. Ég
get þó sagt að þær tölur um tíu eða ellefu
milljarða hagnað af sölunni sem verið hafa
nefndar eru fjarri lagi.“
HAGSTÆÐ VIÐSKIPTI
Báðir aðilar - Fons og Hannes Smárason,
forstjóri FL Group og aðaleigandi - eru
sannfærðir að viðskiptin hafi verið hag-
stæð fyrir báða aðila. Hannes benti á
að kaupin væru hagstæð ef gerður væri
samanburður á rekstri Sterling við önnur
stór lággjaldaflugfélög. Miðað við þær
forsendur sem kaupin byggjast á getur
verðmæti félagsins fimmfaldast á næsta
ári að mati forstjóra FL Group.
Sterling verður rekið sem sjálfstætt
rekstrarfélag innan FL Group-samstæð-
unnar og verða bæði Almar og Pálmi
við stjórnvölinn. Fons hefur þar með
ekki sagt skilið við flugfélagarekstur á
Norðurlöndum með beinum hætti þar sem
félagið er stærsti eigandinn í sænska lág-
gjaldaflugfélaginu FlyMe.
Tíminn einn mun leiða það í ljóst hvort
verulegur viðsnúningur verði á rekstri
Sterling, sem skili þeim væntingum sem
til þess eru gerðar. Hitt er þó víst að koma
Pálma og Jóhannesar í Fons inn á norræn-
an lággjaldaflugfélagamarkað á árinu 2005
fer í sögubækur íslensks viðskiptalífs.
ALMAR ÖRN HILMARSSON, FORSTJÓRI STERLING
Pálmi tók hann með sér frá Iceland Express.
PÁLMI HARALDSSON “Ég ætlaði mér alltaf að ná í Maersk þegar ég keypti Sterling. Þetta átti sér langan aðdrag-
anda. Það var ekki eins og maður læsi bara Börsen einn daginn og ákveddi að kaupa Sterling.”