Fréttablaðið - 28.12.2005, Side 40
MARKAÐURINN 28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR10
A N N Á L L 2 0 0 5
Samskip kaupa frystigeymslur í Hollandi,
Noregi og Færeyjum af hollenska flutn-
ingafyrirtækinu Kloosterboer. Rúma þær
samtals 84 þúsund tonn.
Það eru tvær megináherslur
í Samskipum; annars vegar
gámaflutningar og hins
vegar frystiflutningarnir.
Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður
Samskipa, 27. apríl.
Harðar deilur verða á milli meirihluta
stjórnar Íslandsbanka og Straums
vegna sölu á Sjóvá til félags í eigu Karls
Wernerssonar. Gamlir vinir, Bjarni
Ármannsson og Þórður Már Jóhannesson,
stjórnendur bankanna, takast á. Hlutabréf
Íslandsbanka hækka í verði.
MAÍ
KB banki slær enn eitt hagnaðarmetið.
Hagnaður bankans fyrstu þrjá mánuði
ársins nam um ellefu milljörðum króna
eftir skatta. Tilkynnt er að bankinn ætlar
að kaupa Singer & Friedlander.
Straumur skilaði 4,6 milljörðum í hagn-
að sömu mánuði, Íslandsbanki rúmum
þremur milljörðum, Og Vodafone 200 millj-
ónum og Össur 195 milljónum. Burðarás
græðir milljarð króna.
Breska verslunarkeðjan Mosaic
Fashions ætlar að skrá sig í Kauphöllina
í júní.
Hluthafar Morgunblaðsins nýttu sér
forkaupsrétt á sextán prósenta eignarhlut
Haraldar Sveinssonar sem Íslandsbanki
hafði boðið í fyrir hönd nokkurra einstakl-
inga.
Þessi hlutur hefur verið
keyptur og greiddur.
Kristinn Björnsson, stjórnarformaður
Straums, 4. maí.
Mikil vinna fer fram bak við tjöldin við
að mynda fjárfestahópa sem bjóða eiga
saman í Símann. Enginn einn aðili eða
tengdir aðilar mega kaupa meira en 45
prósent í fyrirtækinu.
Sagt er frá sex heimsþekktum álfyr-
irtækjum sem íhuga byggingu álvers á
Íslandi. Framkvæmdastjóri í Norðuráli
segir þá hafa áhuga á að reisa eitt álver á
Íslandi til viðbótar.
Bakkavör tekur formlega yfir Geest
föstudaginn 13. maí. Fá stjórnendur
afhenta lykla að verksmiðjunni í Bretlandi
og öllum formsatriðum er þá lokið.
Heildarkaupverðið er um sjötíu milljarðar
króna.
Í ljós kemur að HB Grandi ræður
yfir mestum kvóta. Hlutdeild félagsins í
heildarkvótanum er rúm ellefu prósent
en kvótaþakið er samkvæmt lögum tólf
prósent.
Jón Sveinsson, formaður einkavæð-
ingarnefndar, gerir grein fyrir söluferli
Símans í Markaðnum. Þar kemur fram að
tilboð verða opnuð í viðurvist bjóðenda
daginn sem þeim er skilað. Verði minni
en fimm prósenta munur á tilboðum mega
hæstbjóðendur bjóða aftur.
Landsbankinn skilar sex milljarða
króna hagnaði fyrstu þrjá mánuði ársins.
Burðarás er næststærsti einstaki hluthaf-
inn í Skandia.
Íslenska auglýsingastofan, sú stærsta á
Íslandi, tilkynnir um úrsögn úr Sambandi
íslenskra auglýsingastofa, SÍA, vegna
ósættis. Telja eigendur stofunnar sam-
tökin of gjörn á að gefa eftir skuldir, til
dæmis hvað varðar þrot Góðs fólks.
Við erum ekki sáttir við
stjórnina í einstökum
málum.
Ólafur Ingi Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Íslensku auglýsingastofunnar,
18. maí.
Lífeyrissjóðir skiluðu yfir tíu prósenta
raunávöxtun að meðaltali annað árið í
röð 2004. Lífeyrissjóður sjómanna skilar
bestri ávöxtun.
Fagfjárfestar vilja fjórfalt meira
af hlutabréfum í bresku tískukeðjunni
Mosaic en í boði var.
Björgólfur Thor Björgólfsson er á góðri
leið með að yfirtaka finnska símafélagið
Saunalahti.
Fjórtán óbindandi tilboð bárust í Símann
sem 37 aðilar stóðu að. Trúnaðarákvæði
hindrar tilboðsgjafa í því að gefa sig upp.
FL Group leigir fimm þotur til Kína.
Samskip auka hlutafé um fjóra milljarða
króna.
Actavis kaupir bandaríska samheita-
lyfjafyrirtækið Amide. Kaupverðið er 33
milljarðar króna auk árangurstengdra
greiðslna.
Viðskiptaráðherra skipar Gylfa
Magnússon, dósent við Háskóla Íslands,
formann stjórnar samkeppniseftirlitsins
sem tekur til starfa 1. júní.
JÚNÍ
Nýr mánuður byrjar á tilkynningu um
að Avion Group hefur keypt Eimskip af
Burðarási. Stefnt að skráningu Avion fyrir
lok janúar 2006. Magnús Þorsteinsson
hverfur úr fjárfestingum Samson, sem
Björgólfsfeðgar þá stjórna. Segir það ekki
tengjast kaupunum á Eimskipi.
Himinn og haf hefur verkefn-
ið verið kallað.
Magnús Þorsteinsson, aðaleigandi
Avion Group, 1. júní.
Færeyska olíuleitarfyrirtækið Atlantic
Petroleum sækir um skráningu á Íslandi. Er
þetta fyrsta færeyska félagið sem er skráð
á hlutabréfamarkað. Markaðsverðmætið
er um tveir milljarðar króna.
Fjármálaeftirlitið skoðar viðskipti með
hlutabréf í Actavis í aðdraganda kaupanna
á Amide. Viðskipti með bréf í Actavis voru
stöðvuð þegar grunur vaknaði um að upp-
lýsingar hefðu lekið út.
Framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfesting-
arbankans segir það hafa verið hugsunar-
leysi að tilkynna ekki til Kauphallarinnar að
bankinn væri stærsti eigandi Sláturfélags
Suðurlands.
Steinunn Jónsdóttir, dóttir Jóns Helga
Guðmundssonar í Byko, selur 4,11 prósent
hlut sinn í Íslandsbanka til Burðaráss.
Átök eru í eigendahópnum.
Pálmi Haraldsson heltist úr lestinni í
kapphlaupi um að kaupa litháiska ríkis-
flugfélagið Lithuanian Airlines.
Enginn virðist vita hver var sjötti
stærsti hluthafinn í almenningshluta-
félaginu Icelandic Group eftir sam-
einingu SH og Sjóvíkur.
Penninn er seldur og 36 ára setu
Gunnars Dungal í forstjórastjóli er
lokið. Kristinn Vilbergsson tekur sér
það sæti.
Ég var tvítugur þegar ég
tók við stjórnartaumunum
í Pennanum eftir að faðir
minn féll skyndilega frá.
Gunnar Dungal, forstjóri Pennans, 16.
júní.
Átök standa um völd í Sparisjóði
Hafnarfjarðar. Fjölmargir stofnfjáraðilar
fá tilboð í hluti sína og Fjármálaeftirlitið
óskar eftir skýringum.
Markaðurinn upplýsir að eigandi huldu-
félagsins í Icelandic Group var Ólafur
Ólafsson í Samskipum. Fjármálaeftirlitið
skoðar viðskipti félagsins, Serafin
Shipping.
Stofnfjárbréf í SPRON hafa tvöfaldast
í verði frá því þau voru sett á markaði í
október árið 2004.
JÚLÍ
Forsvarsmönnum Baugs eru birtar
ákærur vegna meintra efnahagsbrota.
Árni Oddur Þórðarson, Hreggviður
Jónsson og Inga Jóna Þórðardóttir segja
sig úr stjórn FL Group. Ágreiningur er um
stjórnun Hannesar Smárasonar stjórnar-
formanns á félaginu.
Eigendur Lyfja og heilsu tilkynna um
kaup á sjötíu prósent hlut í breska fyrir-
tækinu Per-Scent sem markaðssetur og
dreifir ilmvatni.
Jón Ásgeir Jóhannesson, Hannes
Smárason, Sigurður Bollason og Magnús
Ármann kaupa 27 prósenta hlut Saxbyggs
og fleiri í FL Group. Ný stjórn kosin.
Samskip kaupir breska skipafélagið
Seawheel. Eimskip kaupir helmingshlut í
kanadíska skipafélaginu Halship.
Upplýst er að Íbúðalánasjóður lánar
bönkum og sparisjóðum milljarðana sem
hafa streymt inn vegna uppgreiðslna
íbúðalána.
Peningarnir verða ekki
geymdir undir koddanum.
Guðmundur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Íbúðalánasjóðs, 6. júlí.
Markaðurinn segir frá því að tuttugu
stærstu kaup íslenskra fyrirtækja erlend-
is á síðustu átján mánuðum nema 450
milljörðum króna.
Björgólfur Thor
Björgólfsson sækist
eftir því að kaupa 35
prósent hlut í búlgarska
bankanum EI bank.
Baugur þarf hins vegar
að draga sig út úr kaup-
endahópi Somerfield
vegna ákæru fyrir
efnahagsbrot. Hagnast
samt um þrjá millj-
arða við að selja bréf
sín í félaginu.
Íslensku bankarnir þrír eru
meðal þeirra banka sem hækka hvað mest
á lista breska tímaritsins The Banker yfir
1.000 stærstu banka heims.
Íslendingar fjárfestu sem aldrei fyrr
í sögunni í útlöndum í fyrra. Tölur frá
Seðlabankanum eru birtar og kemur í ljós
að erlendar fjárfestingar jókst um 580
prósent.
Erlendir fjárfestar bjóða ekki í Símann
samkvæmt heimildum Markaðarins.
Greint er frá því að þrír hópar fjárfest-
ar, allir skipaðir íslenskum aðilum, muni
bjóða í Símann. Jón Sveinsson vildi ekki
staðfesta þetta.
Sæplast kaupir Bonar Plastics, dóttur-
félag Low and Bonar, fyrir rúma 2,9 millj-
arða króna. Sæplast er breytt í Promens
og til verður eitt stærsta iðnaðarfyrirtæki
í eigu Íslendinga.
Bindandi tilboð í Símann eru opnuð í
viðurvist bjóðenda á Hótel Nordica 28.
júlí. Skipti ehf. er með hæsta tilboð 66,7
milljarða króna. Exista og KB banki eru
með stærstan hlut í Skipti.
Enginn vissi nákvæmlega
hvað upp úr umslögunum
kæmi.
Jón Sveinsson, formaður einkavæðing-
arnefndar, 28. júlí.
Burðarás skilar methagnaði á öðrum árs-
fjórðungi, tæpum tuttugu milljörðum
SJÓVÁ Stjórn
Íslandsbanka
ákveður að
selja Karli
Wernerssyni
og fjölskyldu
tryggingafélag-
ið Sjóvá.
EIMSKIP SELT Avion Group, með Magnús Þorsteinsson í broddi fylkingar, kaupir Eimskip fyrir 22 milljarða. Greiðir
Avion tæpa þrettán milljarða í reiðufé og níu milljarða með hlutafé í sjálfu félaginu.
BÚINN Á VAKT Gunnar Dungal kvaddi viðskiptavini
og starfsfólk Pennans eftir að hafa staðið vaktina
um áratugaskeið. Kristinn Vilbergsson leiddi kaupin á
Pennanum.